Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 50

Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 & "!(%'$# "$&'%#! "-+ ! !" &,'*)%(!$# Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Cloacina var ein af gyðjunum í róm- verskri goðafræði. Hún ríkti yfir Cloaca Maxima, aðalholræsi Róma- borgar, og var verndargyðja hol- ræsa,“ segir Guðjón Friðriksson sagnfræðingur þegar hann er beðinn að útskýra titilinn á nýjustu bók sinni sem fjallar um sögu fráveit- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Guð- jón bendir janframt á að nafn gyðj- unnar sé dregið af sögninni „cluo“ í latínu sem merkir að hreinsa. „Cloacina var því gyðja hreinlætis og hreinsunar en ekki nein skíta- gyðja,“ segir Guðjón og tekur fram bókin hafi vafalítið fengið meiri athygli vegna heitis gyðjunnar held- ur en ef hún hefði einfaldlega haft titilinn Saga fráveitu. „Mér leist nú ekki á blikuna til að byrja með þegar falast var eftir því við mig að skrifa þessa bók, enda vissi ég lítið sem ekkert um holræsin þó ég hafi skrifað Sögu Reykjavíkur að hluta á sínum tíma. En eftir því sem ég kynnti mér viðfangsefnið betur fór mér að finnast þetta mjög skemmtilegt, enda alltaf gaman að fræðast um nýja hluti. Þetta var því verðugt viðfangsefni,“ segir Guðjón og rifjar upp að fyrir um tuttugu ár- um hafi verið gefnar út þrjár bækur þar sem saga vatnsveitunnar, raf- veitunnar og hitaveitunnar var rak- in. „Stjórnendum hjá Veitum fannst vanta bók um sögu fráveitunnar, sem er ekki síður merkilegt fyrir- bæri en hinar veiturnar þrjár,“ segir Guðjón. Cloacina var aðeins prentuð í afar takmörku upplagi en bókin er aðgengileg öllum í rafrænu formi á vefnum veitur.is. Forsenda fyrir velferð Að sögn Guðjóns spannar Cloac- ina tímann frá frumstæðum opnum rennum til holræsa, hreinsistöðva og útrása sem dæla hreinsuðu skolpi langt út á haf. „Umhverfisvitund fólks hefur sem betur fer breyst til batnaðar,“ segir Guðjón og rifjar upp að sjálfur hafi hann alist upp við það að allar fjörur væru löðrandi í skolpi og óþverra. „Þáttaskil urðu hins vegar í kringum 1987 þegar loks var settur kraftur í hreinsun strandlengjunnar. Þá voru lögð snið- ræsi meðfram allri strandlengjunni á höfuðborgarsvæðinu og dælu- stöðvar settar upp með reglulegu millibili til að dæla skolpinu áfram. Þetta endar svo í tveimur megin- stöðvum, í Ánanaustum og Kletta- görðum, sem dæla þessu á haf út.“ Guðjón bendir á að þar sem frá- veitukerfið sé að mestu hulið sjónum borgarbúa, enda annaðhvort neðan- jarðar eða neðansjávar, sé hætt við því að ýmsir vanmeti þýðingu þess eða taki því sem gefnum hlut. „Frá- veitukerfið er þó ein af helstu for- sendum fyrir velferð og heilsu borg- arbúa,“ segir Guðjón og rifjar upp að á fyrstu áratugum þéttbýlis í Reykjavík hafi ýmsir séð ofsjónum yfir því að setja pening í að bæta opin skolpræsi eða rennur sem hvar- vetna lágu eftir götum og enduðu yfirleitt í Tjörninni, Læknum eða sjónum. „Þetta viðhorf breyttist fljótlega, en á árunum 1906 til 1916 var Reykjavík holræsavædd,“ segir Guðjón og bendir á að þetta hafi haldist í hendur við aukna almenna vitneskju um þá smitsjúkdómahættu sem tengist opnum skolpræsum. Skolpið rann inn í kálgarða „Upp úr 1890 komu ungir læknar til landsins eftir nám erlendis og þá var búið að uppgötva sýklaheiminn og samband hans við alls kyns smit- sjúkdóma. Þeir fóru að reka mikinn áróður fyrir því að þetta væri lag- fært, enda mikið heilbrigðismál,“ segir Guðjón og vísar þar til manna á borð við Guðmund Björnsson, sem kallaður hefur verið faðir fráveit- unnar. „Fyrstu menntuðu verkfræð- ingarnir sem komu til landsins um aldamótin 1900 börðust líka af krafti fyrir því að komið væri upp frá- veitu,“ segir Guðjón og nefnir í því samhengi Knud Zimsen og Sigurð Pétursson. „Fyrsta skolplögnin var tekin í gagnið 1902 og lá frá Landakoti nið- ur Ægisgötuna og út í sjó. Þá sá fólk hvað þetta breytti miklu,“ segir Guð- jón og rifjar upp að Reykjavík hafi stækkað mjög ört á þessum tíma. „Almenningur fór að þrýsta á um að bærinn yrði holræsavæddur, enda rann skolpið inn í kálgarða hjá fólki með tilheyrandi eyðileggingu. Sem dæmi fóru íbúar í einstökum götum að safna undirskriftum til að fá hol- ræsi í götur sínar og buðust til að greida framkvæmdirnar á móti bæn- um.“ Aðspurður segist Guðjón hafa leit- að heimilda víða. „Á Borgarskjala- safninu er töluvert af heimildum um holræsin öll. Þar má til dæmis finna handskrifaða heildaráætlun um hol- ræsi Reykjavíkur frá 1911 sem Sig- urður Thoroddsen, fyrsti verkfræð- ingur landsins, var ráðinn til að vinna. „Hann lagði grunninn að hol- ræsakerfinu eins og það var næstu áratugina.“ Algerlega hulið sjónum Spurður hvort eitthvað hafi komið honum á óvart í rannsóknarvinnu sinni svarar Guðjón því neitandi. „Ekki nema það hvað þetta reyndist miklu skemmtilegra verkefni en ég bjóst við eins og ég sagði í upphafi. Reyndar finnst mér flest sagn- fræðileg málefni sem ég sökkvi mér ofan í verða sjálfkrafa skemmtileg. Ég vissi mjög lítið um holræsið þeg- ar ég byrjaði á þessu, en fræddist heilmikið og það er alltaf skemmti- legt,“ segir Guðjón og nefnir sem dæmi að það hafi verið lærdómsríkt að læra meira um stóru holræsin sem eru í mörgum hverfum borgar- innar. „Eins og til dæmis Fossvogs- ræsið sem tekur við öllu skolpi úr Breiðholti, Árbæjarhverfi og Kópa- vogi. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því hversu stóra framkvæmd var um að ræða. Það þurfti meðal annars að grafa tíu metra niður í mýrina í Fossvogi. Þetta er því í raun gríðarlegt mannvirki, en alger- lega hulið sjónum okkar. Annað slíkt ræsi er Laugardalsræsið sem var forsenda þess að hægt væri að byggja upp og koma upp íþrótta- svæði í Laugardalnum því svæðið var svo blautt. Ræsið var einnig for- senda þess að hægt væri að byggja upp ný hverfi í Heimum, Laugarási og víðar. Eitt af því sem ég lærði í ferlinu var að ræsi þurfa ákveðin halla, en það var erfitt að leggja ræsi þar sem var slétt land og mikil mýri. Það skýrir aftur þróun borgarinnar, því svæði þar sem erfitt var að koma við ræsum byggðust síðar og því varð borgin lengi vel býsna dreifð. Helst þurfti byggðin líka að vera ná- lægt sjó til þess að leið ræsanna væri sem styst, en eftir því sem tæknin eykst verður auðvitað auðveldara að leggja ræsi.“ Bókina prýðir mikill fjöldi mynda. „Ég hef það fyrir reglu að finna sjálfur myndir í þær bækur sem ég skrifa. Ég rekst oft á myndir þegar ég er að grúska í skjölum og gögnum og fer fljótt að sjá hlutina myndrænt fyrir mér. Myndræna hlut verksins hef ég því alltaf í huga í vinnuferl- inu,“ segir Guðjón, en um hönnun og umbrot Cloacinu sá Aðalsteinn Svanur Sigfússon. Morgunblaðið/Unnur Karen Sagnfræðingurinn Guðjón Friðriksson á mikinn þátt í því að halda sögu höfuðborgarinnar til haga. Bankastræti Bakarabrekkan skömmu eftir 1880. Skolpið rennur í rás rétt fram hjá einu helsta vatnsbóli bæjarins, Bakarabrunninum, og síast sjálf- sagt að einhverju leyti í jarðveginn þar og dreifist loks frjálst áður en það streymir niður í Lækinn. Læknar fóru brátt að benda á samhengi milli far- sótta og vonds neysluvatns og sóðaskapar í sambandi við frárennsli. „Mér leist nú ekki á blikuna“ - Í bók sinni Cloacina rekur Guðjón Friðriksson sögu fráveitunnar á höfuðborgarsvæðinu - „Eftir því sem ég kynnti mér viðfangsefnið betur fór mér að finnast þetta mjög skemmtilegt“ Sjórinn er fullur af góðum verum. Sjórinn er fullur af rusli! nefnist sýning sem opnuð er í Gerðarsafni í dag kl. 15. Um er að ræða fyrsta áfanga Vatnsdropans, sem er alþjóðlegt samstarfsverkefni Múmínsafnsins í Tampere, H.C. Andersen-safnsins í Óðinsvéum og Ilon’s Wonder- land í Hapsaalu í Eistlandi auk Menningarhúsanna í Kópavogi. Þrettán börn frá löndunum fjórum eru sýn- ingarstjórar undir leiðsögn sýningarstjórans, listfræð- ingsins og heimspekingsins Chus Martinez. „Á sýningunni getur að líta verk sem ungu sýningar- stjórarnir hafa valið frá H.C.-Andersen safninu, Múmín- safninu og Ilon’s Wonderland. Verkin má með einum eða öðrum hætti tengja fjórtánda heimsmarkmiði Samein- uðu þjóðanna, Lífi í vatni. Heimir Sverrisson og sam- starfsfólk hans hjá Irma studio tóku svo að sér að hanna og smíða umgjörð um sýninguna sem verður að finna á 1. hæð Gerðarsafns,“ segir í tilkynningu frá safninu. Vatnsdropinn er þriggja ára menningarverkefni sem er ætlað að tengja höfundarverk norrænu höfundanna Astrid Lindgren, H.C. Andersen og Tove Jansson við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna með listsýningum og viðburðahaldi. „Það má í raun segja að gildi í sög- unum (og teikningunum) séu mikilvægari en nokkru sinni áður í ljósi núverandi loftslagsvanda og hamfara- hlýnunar.“ Sýningin stendur til 31. október. Samhliða sýningunni verður boðið upp á fjölda viðburða í Menn- ingarhúsunum í Kópavogi, sem tengjast Vatnsdrop- anum, en allar nánari upplýsingar eru á vefnum menningarhusin.is. Sjórinn er fullur af rusli! Sýningarstjórar Fimm stúlkur úr Kópavogi, þær Fjóla Kristín Sveinbjörnsdóttir, Freyja Lóa Sigríðardóttir, Íva Jovisic, Lóa Arias og Vigdís Una Tómasdóttir, eru í íslenska sýningarstjórateyminu og hefur Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir leitt vinnu hópsins hér á landi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.