Morgunblaðið - 19.06.2021, Síða 53

Morgunblaðið - 19.06.2021, Síða 53
Efnisgerð augnablik nefnist sum- arsýning Nýlistasafnsins sem opnuð er í dag milli kl. 15 og 17 í Marshallhúsinu. „Sýningin er samsýning fjögurra listamanna, þeirra Baldurs Geirs Bragasonar, Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur, Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur og Ívars Valgarðssonar. Með sýning- unni er leitast við að efnisgera augnablikið um stund með nýjum verkum sem dvelja í bilinu milli málverks og skúlptúrs,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að efnisgerð augnablik sæki upp- hafspunkt í málverkið, tilurð þess og arfleifð, „en sýningin hverfist í raun um stað og stund sýning- argesta. Markmiðið er að beina sjónum að því hvernig rýmis- verkun listaverka eykur meðvit- und áhorfenda um eigin líkama, nærveru og skynjun á umhverf- inu.“ Sýningin stendur til 8. ágúst. Sumarsýn- ing Nýlista- safnsins Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Okkur langaði að bera á borð sönglist með ólíkum hætti, bæði einsöng og samsöng og því er dag- skráin fjölbreytt, við verðum með níu tónleika. Fjórtán at- vinnueinsöngv- arar koma fram en líka kórinn Schola Cantor- um. Við verðum líka með Óperugala þar sem fimm stór- glæsilegir söngvarar koma saman, Gissur Páll, Hanna Dóra, Kristinn Sigmunds, Oddur Arnþór og Sigrún Pálma,“ segir Guðrún Jó- hanna Ólafsdóttir, söngkona og annar listrænna stjórnenda Sönghátíðar í Hafnarborg sem hefst í dag. „Við bjóðum líka upp á barokk- tónlist því við viljum vekja athygli á þessari gömlu tónlist, en enginn annar en Benedikt Kristjánsson tenór syngur á barokktónleikum okkar. Hann hefur verið að gera garðinn frægan erlendis, sér- staklega þegar hann syngur Bach, sem hann ætlar einmitt að gera á hátíðinni. Við verðum með sembal, orgel, selló og fiðlu á þeim tón- leikum. Á þessum tónleikum blönd- um við verkum barokkmeistaranna, Bach og Handel, saman við mjög einföld íslensk lög frá svipuðum tíma sem voru sungin hér. Þau voru ekki flutt á sama hátt og söngtónlist í Evrópu og sumt verður því sungið án undirleiks, en annað með undir- leik sem er í raun mjög spunninn, Halldór Bjarki Arnarson sem- balleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari sjá um það. Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr þeim spuna hjá þeim frændum,“ segir Guðrún Jóhanna sem syngur einnig sjálf á barokktónleikunum sem og á tónleikum sem kenndir eru við Miðjarðarhafið. Íslensk kventónskáld Guðrún Jóhanna segir að þeim finnist sérstaklega skemmtilegt að fá Schola Cantorum til sín því það hefur jú ýmislegt gengið á undanfarið. „Hörður Áskelsson mun stjórna þeirra söng og það er mikill heiður fyrir okkur að geta boðið kórinn vel- kominn til okkar á sönghátíðina, enda einn helsti kyndilberi kammerkór- tónlistar á landinu til margra ára.“ Hún segir að þau hafi langað að gera íslenskum kventónskáldum hátt undir höfði og því verða sérstakir tónleikar tileinkaðir þeim. „Konur í gegnum tíðina hafa ekki verið jafn áberandi og karlmenn í tónsköpun, flest verkin sem flutt verða á þessum tónleikum eru eftir Þórunni Guðmundsdóttur og Jórunni Viðar en líka eftir önnur kven- tónskáld,“ segir Guðrún Jóhanna og bætir við að margir listamannanna á hátíðinni komi að utan og þurfi að fara í sóttkví. „Ég vona að allt gangi vel og eng- inn smitist á leiðinni, en Andri Björn kemur frá Bretlandi, Benedikt kem- ur líka að utan sem og Oddur barí- tónsöngvari og líka Pétur Björnsson fiðluleikari og Halldór Bjarki sem- balleikari.“ Kristinn örlátur á reynslu sína Sönghátíðin í Hafnarborg er fjöl- skylduvæn og flytjendur á ólíkum aldri. „Auk tónleika eru námskeið bæði fyrir fullorðna og börn og þátttak- endur á þeim eru frá sex mánaða upp í sextíu ára. Kristinn Sigmundsson verður með masterklass og mikill áhugi hjá ungum íslenskum söngv- urum því við þurftum að bæta öðru slíku námskeiði við með Kristni. Þeir sem sækja masterklass eru ýmist í söngnámi hérlendis eða erlendis, en einnig fólk sem hefur lokið námi. Það er mikill fengur fyrir okkur að hafa reynsluboltann Kristin með okkur í liði, hann er örlátur á sína kunnáttu og reynslu. Nemendur læra hjá hon- um í fjóra daga og koma svo fram og syngja á hátíðinni, sem er liður í því að gefa fólki tækifæri til að koma fram. Nemendur öðlast mikla reynslu á hátíðinni og hún er líka at- vinnuskapandi fyrir atvinnufólk, bæði söngvara og hljóðfæraleikara. Það er mikilvægt að hafa tækifæri til að koma fram, fá reynslu og kynnast öðrum, því það er ekki eitt einasta fast starf til á Íslandi fyrir söngvara. Hugmyndin er að skapa samfélag söngvara og söngáhugafólks í kring- um þessa hátíð. Við viljum líka að há- tíðin hafi áhrif út fyrir sig og birtum því myndbandsupptökur á Youtube af tónleikum og viðtölum við söngv- ara,“ segir Guðrún Jóhanna og bætir við að það hafi verið mikil hvatning þegar hátíðin fékk íslensku tónlist- arverðlaunin sem Tónlistarhátíð árs- ins 2020. Nánar á songhatid.is Ljósmynd/Antje Taiga Jandrig Tenór Benedikt Kristjánsson mun syngja á tónleikum á hátíðinni. Ljósmynd/Francisco Javier Jáur Óperugala Gissur Páll Gissurarson tenór, Hanna Dóra Sturludóttir mezzó- sópran, Kristinn Sigmundsson bassi, Oddur Arnþór Jónsson barítón, Sigrún Pálmadóttir sópran og Guðrún Dalía Salómónsdóttir píanóleikari. Samfélag söngvara og söngáhugafólks - Sönghátíð í Hafnarborg hefst í dag með einvalaliði - Söngnámskeið og söngsmiðjur þar sem þátt- takendur eru frá sex mánaða upp í sextíu ára - Nemendur öðlast mikla reynslu á hátíðinni Ljósmynd/Francisco Javier Jáur Mahler mætir Íslandi Andri Björn Róbertsson bass-barítón, Hallveig Rúnars- dóttir sópran og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari verða saman á tónleikum. Guðrún Jóhanna Sýningin I am thinking about sitt- ing down on the ground – tales of/ on/with MotherLands verður opn- uð í Midpunkt í dag milli kl. 14 og 17. Á sýningunni eru verk eftir Elínu Margot, Patriciu Carolina og Salt Collective, sem er sam- starf Juliönu Foronda og Ievu Grigelionyte. „Sýningin kannar samstarf þvert á tegundir, kven- leika og flakk. Rannsóknin snýr að persónulegri og menningar- legri tengingu okkar við landið, fýsnir, frjósemi og gljúpleika,“ segir í tilkynningu. Sýningarstjóri er Ana Victoria Bruno. „Elín Mar- got kannar möguleikana sem fel- ast í mat, endurhugsar gjörðina að borða í samhengi við kyn, menningu og kyngervi, í samstarfi með matreiðslumanninum og hönnuðinum Kjartani Óla Guð- mundssyni, sem sérhæfir sig í notkun og möguleikum örvera í mat. Patricia Carolina vinnur með tengingar vatns, merkingu heim- ilislífsins, gljúpleikann og lekann, til að fylgjast með flæðinu. Undir merkjum Salt Collective vinna Juliana Foronda og Ieva Grigelio- nyte með matvæli, og gjörðina að deila matvælum til að skapa um- ræðu um matarpólitík og skapa samfélag.“ Vatn Patricia Carolina er meðal sýnenda á sýningunni. Matur, menning og kyn í Midpunkt Myndlistarmaðurinn Joris Rademaker opnar sýningu sína Sól og tími í Einkasafninu í Eyjafjarðarsveit í dag kl. 14. Joris sem hefur um árabil verið einn atkvæðamesti mynd- listarmaður á Akureyri segir um list sína: „Síðustu ár hef ég notað lífræn efni í minni listsköpun eins og karftöflur, hvönn, fjaðrir, hnetur og birkigreinar, með því geri ég tengsl manna og náttúrunnar sýnileg. Í því fallega um- hverfi sem Einkasafnið býður upp á með lækinn og birki- skóg, ætla ég að sýna tvö hringlótt verk – eitt úti og annað inni.“ Á opnuninni verður einnig gjörningur með þátttöku áhorfenda, í kringum lækinn. Safnið, sem stendur við syðri enda þjóðvegar 822, Kristnesvegar, er opið þessa og næstu helgi milli kl. 14-17. Aðgangur er ókeypis. Joris Rademaker sýnir í Einkasafninu Joris Rademaker

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.