Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 8
hjorvaro@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Nýjustu tilraunir Kín-
verja með langdræg kjarnorkuvopn
hafa valdið titringi hjá Bandaríkja-
mönnum. Joe Biden, forseti Banda-
ríkjanna, hefur, ólíkt Kínverjum,
lagt á það áherslu í stjórnartíð sinni
að draga úr notkun kjarnorkuvopna.
Embættismenn í varnarmála-
ráðuneyti Bandaríkjanna hafa
áhyggjur af því að mismunandi
áherslur landanna muni valda því
að Bandaríkjamenn standi verr að
vígi á vígvellinum ef til átaka kemur.
Þá hafa embættismenn í Pentagon
sömuleiðis áhyggjur af því að Rússar
séu að verða öflugri í vopnakapp-
hlaupinu þegar kemur að kjarnorku-
vopnum.
Kínverjar búa yfir um það bil 100
kjarnorkuvopnum sem draga alla
leið frá Kína til Bandaríkjanna.
Biden kvaðst ekki hafa áhyggjur
af þessu þegar hann var spurður út
í stöðu mála hvað vopnakapphlaup
þjóðanna varðar. Biden bætti þar
við að Bandaríkjamenn væru í start-
holunum að bregðast við ráðist Kín-
verjar á grannríki sitt, Taívan. n
Það er gömul og úrelt
saga að það séu bara
amma og afi sem fara
til Kanarí.
Steinþóra Sigurðardóttir,
sölustjóri VITA
Kínverjar hafa í flota
sínum um það bil 100
kjarnaodda sem draga
til Bandaríkjanna.
Íslendingar á öllum aldri taka
sólarströnd fram yfir hefð-
bundið jólahald. Vont sumar
á höfuðborgarsvæðinu og
uppsöfnuð ferðaþörf eiga þátt
í mikilli eftirspurn eftir sólar-
ferðum um jólin.
thk@frettabladid.is
FERÐALÖG Það er orðið erfitt fyrir
sólarþyrsta Íslendinga að finna sér
flugmiða yfir jólahátíðina, hafi þeir
ekki þegar tryggt sér ferð.
Ferðaskrifstofur sem Fréttablaðið
ræddi við eiga fæstar lausar ferðir
fyrir jólin. Þær eru sammála um að
uppsöfnuð ferðaþörf eigi mikinn
þátt í aukinni eftirspurn eftir sólar-
ferðum.
„Ferðaþorsti landans er í hámarki
og allir vilja komast út í sól sem
fyrst,“ segir Steinþóra Sigurðar-
dóttir, sölustjóri VITA. Tómas Gests-
son, framkvæmdastjóri Heimsferða,
áætlar að um 1.500 Íslendingar verði
í sólarlöndum um jólin á vegum
Heimsferða. Þá leggur stærstur hluti
þess hóps leið sína til Tenerife, hinir
til Alicante og Kanarí.
Sama er upp á teningnum hjá
Úrvali-Útsýn og mikið að gera.
Þórunn Reynisdóttir, forstjóri
Úrvals-Útsýnar, bendir á að aukin
eftirspurn hjá þeim geti líka tengst
öryggi sem fólk leiti nú í á ferða-
lögum vegna heimsfaraldursins.
Um ganginn í bókunum segja
þau að ferðahugur landsmanna
hafi farið minnkandi eftir því sem
fjórða bylgjan sótti á í sumar, en
eftirspurnin rokið aftur upp núna
í september og október.
Nadine Guðrún Yaghi, sam-
skiptastjóri flugfélagsins Play, segir
að ferðalangar séu búnir að bóka
sér lengri ferðir en forsvarsmenn
Play hafi átt von á. Hún segir að ein
skýringin að baki því gæti hugsan-
lega verið sú að „fleiri eigi fasteignir
á Spáni nú heldur en áður“.
Það rímar raunar við það sem for-
svarsmenn þeirra ferðaskrifstofa
sem Fréttablaðið ræddi við segja.
Mikil aðsókn er í f lug til Alicante,
jafnt sem Tenerife, en það virðist
vera sem svo að Íslendingar sæki
í auknum mæli í langtímadvöl á
Alicante.
Aðspurð segja þau mikla breidd í
þeim þjóðfélagshópum sem hyggj-
ast verja jólunum í útlöndum. Þá
hafi færst í aukana að stórfjölskyld-
urnar skelli sér saman í sólina, þá
um 15 til 20 manns, eða jafnvel
fleiri.
„Það er gömul og úrelt saga að
það séu bara amma og afi sem fara
til Kanarí,“ segir Steinþóra hjá VITA
og bætir við: „Fleiri og fleiri Íslend-
ingar hafa uppgötvað að Kanarí er
svo miklu meira en maður heldur.
Í Skandinavíu til dæmis eru það
miklu f leiri sem kjósa að fara á
Kanarí en Tenerife.“ Undir þetta
taka forsvarsmenn Úrvals-Útsýnar
og Heimsferða.
Tómas hjá Heimsferðum segir að
algengara sé að fólk í kringum 75 ára
og upp úr fari frekar út á haustin og
vorin en sleppi jólunum. Nema þá
þegar þau eru með stórfjölskyld-
unni. n
Fleiri velja sólina í
stað íslenskra jóla
Tenerife hefur lengi verið vinsæll ferðamannastaður um jól. Íslendingar
sækja nú þangað í stórum stíl. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
MENNING
Í KÓPAVOGI
KOMDU Í
Í HAUSTFRÍINU
Fjölbreytt dagskrá í Bókasafni Kópavogs,
Náttúrufræðistofu Kópavogs
og Gerðarsafni
23. - 26. október
Allir viðburðir eru ókeypis og eru öll velkomin.
Ókeypis aðgangur á Gerðarsafn fyrir fullorðna í
fylgd barna á meðan haustfríið stendur yfir.
Kynntu þér dagskrána á meko.is.
KÓPAVOGINN
LANDSBANKINN. IS
Samfélags-
styrkir
Landsbankans
Árið 2021 veitir Landsbankinn
15 milljónir kr. í samfélags-
styrki. Umsóknarfrestur er
til og með 28. október 2021.
Styrkjunum er ætlað að styðja við
fjölbreytt verkefni, meðal annars
á sviði mannúðarmála, menningar
og lista, menntamála og vísinda,
forvarna- og æskulýðsstarfs og
umhverfismála.
Veittir eru styrkir
í þremur þrepum:
•
•
•
Kynntu þér málið á landsbankinn.is
1.000.000 kr.
500.000 kr.
250.000 kr.
Kína og Bandaríkin hvort í sína áttina
8 Fréttir 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ