Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 40
Rauði krossinn sinnir
viðamiklu starfi með sjálf-
boðaliðum. Þeir eru meðal
annars hundavinir, heim-
sóknarvinir, gönguvinir,
leiðsöguvinir og símavinir.
Allir sjálfboðaliðar fara á undir-
búningsnámskeið hjá Rauða kross-
inum og eru bundnir trúnaði við
þá sem þeir heimsækja. Hlutverk
vina er fyrst og fremst að veita
félagsskap, nærveru og hlýju.
Ávallt er þörf á fleiri sjálfboða-
liðum og hægt er að skrá sig á
heimasíðunni raudikrossinn.is.
Dagmar Traustadóttir og
hundurinn hennar, Ruby Rose, eru
sjálfboðaliðar Rauða krossins. „Ég
byrjaði í mars á þessu ári. Sum-
arið áður var ég úti í göngu með
hundinn þegar ég mætti konu sem
bað um að fá að klappa honum.
Þegar konan sá hvað hundurinn
var ljúfur fór hún að segja mér
frá hundavinaverkefni Rauða
krossins. Ég fór heim og las mér til
um þetta verkefni og leist vel á það.
Fannst þetta kjörið verkefni fyrir
mig og hundinn en ég var barns-
hafandi á þessum tíma. Mér fannst
tilvalið að við Ruby ættum okkar
eigin verkefni þegar barnið kæmi
í heiminn. Við fórum á námskeið
í febrúar og byrjuðum síðan eftir
það,“ segir Dagmar.
„Við reynum að fara einu sinni
í viku til Hólmfríðar Benedikts-
dóttur en hún er einstakur hunda-
vinur. Hún er ljósmyndamenntuð
og finnst gaman að taka myndir af
hundinum. Ruby Rose er fimm ára
og stendur sig frábærlega. Þetta
er mjög skemmtilegt verkefni. Ég
hef gaman af því að spjalla við
eldra fólk, var alltaf mikið með
langömmu minni og -afa. Við
Hólmfríður getum rabbað mikið
saman og ræðum alls konar hluti.
Heimsóknin gerir jafnmikið fyrir
mig og hana. Ruby er alsæl með
að láta klóra sér og kjassa. Við
löbbuðum mikið úti í sumar sem
var heilsusamlegt fyrir okkur öll,“
segir Dagmar.
Eignaðist hundavin fyrir tilviljun
Hólmfríður Ben Benediktsdóttir
er ákaflega ánægð með Dagmar
og Ruby Rose. „Ég hef átt erfitt
með gang og f lutti í þjónustuíbúð
vegna veikinda. Ég eignaðist
hundavin fyrir tilviljun. Foreldrar
mínir bjuggu á hjúkrunarheimil-
inu Mörk á meðan þau lifðu. Faðir
minn var sérstakur dýravinur.
Ég sá auglýst að hægt væri að fá
hundavin Rauða krossins og ég
hjálpaði honum að fá slíkan vin.
Hundaeigandinn fór síðan í barn-
eignarleyfi og ég sótti um annan
hund. Það reyndist vera Ruby. Þá
var Covid og heimsóknarbann.
Ég óskaði þá sjálf eftir að fá hann
til mín sem var samþykkt. Þannig
að eiginlega stal ég hundinum frá
pabba,“ segir Hólmfríður og hlær.
„Faðir minn lést í sumar, og ég fæ
Ruby reglulega í heimsókn sem
gefur mér mikla gleði,“ segir hún.
Ruby er æðislegur hundur, sér-
lega fallegur og góður. Mér finnst
til dæmis mjög gaman að taka
myndir af honum,“ segir hún.
Ég var hundaeigandi áður fyrr
en get það ekki lengur vegna
heilsufars. Það er því æðislegt að
fá Dagmar og Ruby í heimsókn.
Dagmar er líka frábær vinur og
það var aukabónus að kynnast
henni. Við erum alltaf í netsam-
bandi fyrir utan heimsóknirnar.
Við getum spjallað um allt og
það er ekkert kynslóðabil á milli
okkar. Hún hefur allt það sem
sjálf boðaliðar þurfa að hafa,
hjálpleg og þægileg. Sjálf boða-
liðar bæta samfélagið að mínu
mati.“ n
Mjög ánægjulegt að vera hundavinur
Dagmar og Hólmfríður með Ruby á milli sín. Það fer sannarlega vel á með þeim hundavinunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gönguvinir Rauða krossins hitt-
ast reglulega og fara í göngutúr.
Kristín Ásbjörnsdóttir er göngu-
vinur Kóreks Hreins Stefánssonar.
„Mér fannst ég hafa nægilegan
tíma til að láta gott af mér leiða
og hef alltaf verið mikil útivistar-
manneskja. Ég setti mig þess vegna
í samband við Rauða krossinn og
ætlaði í fyrstu að bjóða mig fram
sem heimsóknarvin en þeim
fannst henta mér betur að vera
gönguvinur.
Þetta hefur gengið afskaplega
vel frá því ég byrjaði í fyrrahaust.
Við hittumst einu sinni í viku og
löbbum oft hring í Efra-Breiðholti,
iðulega í hálftíma til þrjú korter.
Göngurnar gera mikið fyrir okkur
bæði auk þess sem þetta er góður
félagsskapur. Við getum rabbað
saman allan göngutúrinn.“ n
Gönguvinirnir Kristín Ásbjörnsdóttir
og Kórekur Hreinn Stefánsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hulda Ólafsdóttir er símavinur Rauða krossins. Hún segir
að sjálfboðaliðastarf geti bæði verið skemmtilegt og
erfitt. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Heimsóknarvirnirnir Sigríður María Torfadóttir og Ásta
Pétursdóttir. Þær eru orðnar mjög góðar vinkonur.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Rannveig Garðarsdóttir og Hossam
eru leiðsöguvinir í gegnum Rauða
krossinn. MYND/AÐSEND
Rannveig Garðarsdóttir og
Hossam frá Írak eru leiðsögu-
vinir. „Maður fær tækifæri til að
kynnast manneskju úr öðrum
menningarheimi. Vinátta myndast
á milli okkar og ég aðstoða hann
við íslenskuna. Hann hefur verið
að læra málið og er mjög áhuga-
samur. Við reynum að tala saman
á íslensku þar sem hann er stöðugt
að æfa sig. Hossam er nýbúinn að
fá vinnu og við höfum einmitt rætt
mikið um atvinnumöguleika.
Honum finnst gaman að hlusta
á hvernig hið daglega líf Íslendings
er og hann segir mér frá sínu
lífi. Þetta er mjög skemmtilegt
verkefni. Hossam horfir á íslenska
fréttatíma og er að læra ljóð utan-
bókar. Hann fer með ljóð fyrir
mig í hvert sinn sem við hittumst.
Alveg dásamlegt,“ segir Rannveig
og Hossam tekur undir að það sé
mjög dýrmætt að hittast og ræða
saman. n
Sigríður María Torfadóttir er heimsóknarvinur Rauða
krossins. „Ég vissi um þetta verkefni í langan tíma
og fannst það spennandi og þarft, eitthvað sem mig
langaði til að gera. Þegar ég sá auglýsingu frá RK um
námskeið fyrir tæpum fimm árum ákvað ég að drífa
mig,“ segir Sigríður María en hún hefur heimsótt Ástu
Pétursdóttur vikulega í fjögur ár. „Ásta hafði ekki
búið á Íslandi í áratugi og hafði ekki mikið tengslanet.
Við erum orðnar mjög góðar vinkonur, smullum vel
saman þótt við séum ólíkar og með ólíkan bakgrunn.
Það er alltaf gaman að hitta hana. Hún er skemmtileg
og við hlæjum mikið saman. Við lesum báðar mikið
og skiptumst á bókum. Það er alltaf tilhlökkunarefni
að fara í heimsókn enda hollt fyrir alla að kynnast
nýju fólki.“
Ásta Pétursdóttir segir að það sé dásamlegt að fá
Siggu Mæju, eins og hún kallar hana, í heimsókn einu
sinni í viku. „Við eigum margt sameiginlegt eins og
bækur og blómabúðir. Við skemmtum okkur konung-
lega þegar við förum í slíkar búðir. Yfir sumartímann
förum við út að labba. Upphaflega var mér bent á
heimsóknarvin eftir hjartaskurðaðgerð. Það hefur
orðið til mjög góð vinátta á milli okkar sem er dýr-
mæt. Það má segja að ég hafi unnið í happdrættinu að
fá Siggu Mæju.“ n
Hulda Ólafsdóttir hefur verið símavinur Rauða kross-
ins í rúmlega ár. Hún og Ingibjörg Magnúsdóttir eiga
gott spjall í síma einu sinni í viku. „Ég er í sambandi
við þrjá símavini. Verkefnið er fyrst og fremst hugsað
fyrir þá sem eru mikið heima, eru jafnvel einmana.
Við spjöllum og ég reyni að vera á jákvæðum og upp-
byggilegum nótum. Stundum þarf reyndar að ræða
erfiða hluti. Mér finnst mikilvægt að ræða eitthvað
sem gleður og er áhugavert. Símavinir hittast ekki. Við
ræðum saman í að minnsta kosti hálftíma einu sinni
í viku,“ segir Hulda. „Þetta getur verið mjög gefandi
starf en erfitt líka þegar maður upplifir erfiðleika við-
mælanda. Ég hef samt oft fengið skemmtilegar sögur.
Maður lærir líka ýmislegt í gegnum símtölin,“ segir
hún.
Ingibjörg Magnúsdóttir er viðmælandi Huldu. Hún
segir að sér finnist æðislegt að heyra í Huldu. „Við
getum rabbað um allt mögulegt. Það gefur mér mikið
að fá símtalið frá henni. Hulda er hvetjandi og mér
líður vel eftir símtalið. Ég er stundum einmana og er
alltaf full tilhlökkunar þegar ég bíð eftir símtali. Við
náum vel saman og hún er mjög traust. Ég er líka að
bíða eftir gönguvin,“ segir Ingibjörg og hlakkar til að
fara út að ganga. n
Vildi láta gott af
mér leiða
Erum orðnar mjög góðar
vinkonur
Mikilvægt að veita gleði Kynnist öðrum
menningarheimi
Hún er skemmtileg og við
hlæjum mikið saman. Við
lesum báðar mikið og skiptumst á
bókum.
Sigríður María Torfadóttir, heimsóknarvinur
Maður fær tæki-
færi til að kynnast
manneskju úr öðrum
menningarheimi.
Rannveig Garðarsdóttir,
leiðsöguvinur
Göngurnar gera
mikið fyrir okkur
bæði.
Kristín Ásbjörnsdóttir, gönguvinur
Við spjöllum og ég reyni að vera
á jákvæðum og uppbyggilegum
nótum. Stundum þarf reyndar að
ræða erfiða hluti.
Hulda Ólafsdóttir, símavinur
4 23. október 2021 LAUGARDAGURHJÁLPIN