Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 96
Það er hangikjöt
baksviðs og allt eins og
það á að vera.
Einkunnarorðin eru
frelsi í eigin líkama
Valdís
Íþróttafræðingarnir og
jógakennararnir Valdís Þor-
geirsdóttir og Sigrún Hrönn
standa fyrir fjögurra vikna
námskeiði þar sem þær stöllur
kynna líkamsbeitingu í jóga
með aðferðafræði Primal
Iceland. Valdís segist ná
jógastellingum sem hún hefur
aldrei náð áður.
„Við erum mikið að vinna með stoð-
kerfisnálganir og verkjaútrýmingu
og einkunnarorðin eru frelsi í eigin
líkama,“ segir Valdís um grunn-
aðferðafræði Primal Iceland. Hún
útskýrir að þær Sigrún hafi verið í
jóga undanfarin tíu ár og þeim hafi
fundist kjörið að flétta aðferðafræði
Primal við jóganálganir.
„Því það er þekkt að jógar byrji
að fá eymsli í mjóbaki eða öxlum,
úlnliðum eða olnbogum. Og það
er alveg þekkt meðal jógaiðkenda,
brjósklos og þannig,“ segir Valdís.
Námskeiðið, sem er mánaðarlega
og hefst að nýju í nóvember, hafi
því verið vel sótt af jógakennurum.
„Og við erum í rauninni bara að
setja þessar Primal aðferðir inn í
jógapælingar, til að gera fólki kleift
að bæði stunda jóga á öruggan hátt
og fá meira út úr æfingunum, þann-
ig að maður sé að beita sér rétt og sé
ekki að valda sér skaða.“
Hún tekur fram að um grunn-
námskeið sé að ræða, sem sé öllum
opið en ekki bara jóga reynslubolt-
um. „Þú þarft engan grunn og engan
jógagrunn, í rauninni förum við
bara rosa vel í grunninn og erum að
kenna alls konar stoðkerfispælingar
og útskýra af hverju við erum að fá
bakverki í daglegu lífi og líka að
læra aðferðir til að róa taugakerfið.
Við erum mikið að vinna með fólki í
streituástandi líka,“ útskýrir Sigrún.
Aðspurð segist Valdís ekki vita til
þess að þetta hafi verið kennt áður á
Íslandi. Eðli málsins samkvæmt séu
námskeiðin vel sótt. „Það er alveg
nóg að gera,“ segir Sigrún sem leggur
að nýju áherslu á að þeim stöllum
hafi tekist að sameina það besta úr
jóga og það besta úr Primal.
„Þetta er heildræn nálgun, ekki
bara jóga eða bara Primal, heldur
líka að sýna fólki hvernig maður
Frjáls líkami í
ómögulegum
jógastöðum
Sigrún og Valdís hafa báðar stundað jóga um langt árabil og teygja sig í nýjar áttir á námskeið-
unum þar sem þær tengja jógað við Primal-hugmyndafræðina. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Stellingarnar eru alls konar og mjög svo miserfiðar.
Enginn jógagrunnur er nauðsynlegur fyrir námskeiðið.
Oddur Ævar
Gunnarsson
odduraevar
@frettabladid.is
getur átt auðveldara með jógastöðu,
þannig að þetta er mikið af styrk og
liðleika,“ segir Valdís.
Hún nefnir sjálfa sig sem dæmi
og segist í mörg ár hafa átt líkam-
lega erfitt með ýmsar jógastöður.
„Ég var að kenna jóga í nokkur ár
áður en ég fann Primal og hef verið
að æfa þar núna í hvað, fimm ár og
jógastöður sem ég átti ekki breik í
þegar ég var yngri, þær urðu bara
allt í einu aðgengilegar og núna fatta
ég hvernig ég á að fara í þær og jógað
varð miklu auðveldara,“ segir Valdís
og vísar til líkamlega hlutans.
„Og maður hefur séð ótrúlegan
árangur hjá fólki,“ segir hún að
lokum. Fólki líði einfaldlega miklu
betur í líkamanum. n
Hvernig er Leynilögga?
Íslenska hasarmyndin Leynilögga
var frumsýnd í vikunni en í henni
þykir leikstjóranum Hannesi Þór
Halldórssyni takast sérlega vel að
fanga áferð og stemningu rándýrra
Hollywood-mynda í íslenskum
aðstæðum og veruleika.
Bíður eftir framhaldi
Lilja Alfreðs-
dóttir
mennta- og
menningarmála-
ráðherra
Þetta er
skemmtileg og
kraftmikil mynd.
Allir leikararnir
voru í essinu
sínu og sögu-
þráður myndarinnar gekk upp.
Mér fannst skemmtilegur rígur
á milli sveitarfélaga og hlakka
mjög til að sjá framhaldsmyndina.
Þessi frumraun Hannesar sem
leikstjóra jafnast á við þegar hann
varði markið frá Messi! Virkilega
vel gert!
Kallar á minnisblað
Sigurður Ingi
Jóhannsson
samgöngu- og
sveitarstjórnar-
ráðherra
Leynilögga er
svakalega fyndin
og kraftmikil
mynd. Ég hló
mikið. Sam-
kvæmt myndinni er mikill rígur
milli Reykjavíkurlöggunnar og
Garðabæjarlöggunnar. Held að
dómsmálaráðherra þurfi að kafa
ofan í það mál. Það kallar á minnis-
blað fyrir ríkisstjórn.
Varð átján aftur
Björn Ingi
á Viljanum
Mér leið eins og
ég væri orðinn
átján aftur á
frumsýningu
Leynilöggunnar.
Sonur minn,
sem er að verða
átján, var enda
með í för, og saman hlógum við
og hlógum að því sem fyrir augu
bar á hvíta tjaldinu. Leynilöggan
er frábær afþreying, reynir aldrei
að vera eitthvað meira en hún
er, og fyrir vikið skemmta sér
allir konunglega. Hannes Þór þarf
engar áhyggjur að hafa. Ég spái
því að landsmenn muni flykkjast
á þessa mynd. Hollywood verður
heldur ekki lengi að þefa uppi þá
hæfileika sem þarna búa og fá
honum alvöru fjármagn til að gera
stórmyndir á næstu árum. n
n Lykilspurningin
toti@frettabladid.is
Jólatónleikar heimafólks í Hofi
á Akureyri, sem kenndir eru við
Norðurljós, verða haldnir fyrstu
helgina í desember en þeir hafa fest
sig svo rækilega í sessi að tímabært
þykir að taka á móti aðkomugestum
að sunnan.
„Við vöknuðum við þann furðu-
lega raunveruleika fyrir sjö árum
að það voru engir jólatónleikar á
Akureyri. Þegar Baggalútur og allir
nenntu ekki að koma hingað af
því það var svo mikið að gera fyrir
sunnan,“ segir tónlistarmaðurinn
Magni Ásgeirsson.
„Þá ákváðum við bara að telja
í hérna í Hofi. Bara svona Norð-
lendingarnir, og það gekk svona líka
glimrandi vel að við erum ennþá að
gera þetta. Við höfum verið með
svona þrenna til ferna tónleika á
hverju ári og ég held við séum búin
að reikna það út að þetta séu tutt-
ugu tónleikar í allt. Mig minnir það,“
heldur Magni áfram.
„Þetta er svolítið fallegt. Þetta
er heimilisiðnaðurinn. Það eru
bara Norðlendingar að spila,“ segir
Magni og bætir við að framan af hafi
verið gerð krafa um að fólk hefði
einhverjar tengingar við landshlut-
ann til þess að fá að stíga á svið.
„En svo erum við búin með alla,
þannig séð, þannig að við fórum að
bjóða vinum okkar með þannig að
það er einn og einn gestasöngvari.
Núna erum við með Bríeti og
Röggu Gísla sem svona sérstaka
gesti að utan. Og svo Mugison, sem
ég hlakka gríðarlega til að sjá hvað
við ætlum að láta syngja. Hann er
kannski ekki vanastur að syngja
jólalögin,“ segir Magni og hlær.
„Og svo eru það við Norðlending-
arnir bara. Ég, Pálmi Gunnarsson og
Óskar Péturs. Verðum við svo ekki
að plögga miðasölunni? Þetta er það
norðlenskt að hún er inni á mak.is.
Þetta er allt innansveitar. Það er
hangikjöt baksviðs og allt eins og
það á að vera.“ n
Sjálfbær jólagleði hjá Magna og félögum
Það verður gestagangur hjá Magna í
Hofi í desember. MYND/ERNIR
Bríet er
meðal
gestanna
að sunnan.
56 Lífið 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 23. október 2021 LAUGARDAGUR