Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 34

Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 34
Gunnar Þór Jóhannesson og eiginkona hans, Sigurborg Íris Vilhjálmsdóttir, stofnuðu Gólf­ efnaval í október 1998. Fyrirtækið heldur því upp á 23 ára afmæli sitt um þessar mundir. Nýlega flutti fyrirtækið í betra húsnæði og getur nú boðið viðskiptavinum að skoða vörur í glæsilegum sýningarsal sem unninn var í samstarfi við THG arkitekta. Gunnar Þór segir að sérstaða fyrirtækisins liggi í mikilli reynslu í sölu og þjónustu með gólfefni. „Við höfum sterka umhverfis­ vitund og góða vöruþekkingu enda höfum við átt ákaflega gott sam­ starf við fagmenntaða iðnaðar­ menn í gegnum árin. Gólfefnaval selur teppaflísar, teppi, vínilgólfefni, lúxus vínil­ parket og lúxus vínilflísar, ofinn vínil, parket og alls kyns hljóð­ vistarlausnir. „Okkar helstu umboð eru Bona, sem hefur í yfir hundrað ár sérhæft sig í viðhalds­ efnum fyrir viðargólf – lökk, olíu, hreinsivörum og vélbúnaði til að slípa og viðhalda parketi. Teppi og teppaflísar koma frá Tarkett Desso, vínildúkar og lúxus vínilparket og vínilflísar frá Polyflor og Moduleo, parket frá Bauwerk og Stile og hljóðvistarlausnir frá Zilenzio fyrir fyrirtæki og einstaklinga,“ útskýrir Gunnar Þór. Vínilparket vinsælast Þegar hann er spurður hvort einhverjar breytingar hafi orðið á vinsældum gólfefna að undan­ förnu, svarar hann: „Gólfefnaval hefur selt vínilparket um 20 ára skeið. Í dag seljum við vínilparket og vínilflísar bæði frá Moduleo og Polyflor. Í Evrópu hefur lúxus vínilgólfefni tekið fram úr sölu á viðar­, plast­ og harðparketi samanlagt. Núna er hægt að kaupa vínilparket eða ­flísar með áföstu undirlagi sem gefur allt að 22 dB hljóðvist á milli hæða og 10 dB inni í rýminu. Efnið er algjörlega vatnshelt og hjá okkar birgjum endurtekur mynstrið sig eftir 88­92 planka, eða eftir rúmlega 23 fermetra. Moduleo LAYRED kemur frá Moduleo. LAYRED má leggja á allt að 260 fermetra rými án þess að setja skil­lista og það veitir okkur ákveðna sérstöðu. Vínil­ parket og vínilflísar eru langvin­ sælasta gólfefnið hjá okkur í dag, Polyflor Encore Rigid og Moduleo Layred,“ segir hann og bætir við: „Parketið á enn góðan sess hjá Íslendingum en áherslur hafa aðeins breyst. Núna erum við að selja parket í f leiri breiddum, til dæmis plankaparket sem er frá 220 til 240 mm og alveg upp í 300 mm á breidd. Fiskibeinamynstrið hefur aldrei verið vinsælla hjá okkur. Við bjóðum þar meðal annars upp á ómeðhöndlað efni sem fólk getur algjörlega gert að sínu. Við bjóðum upp á ellefu grunnliti í tveggja þátta olíu frá Bona sem fólk getur blandað að vild og lakkað svo yfir það og gert það að sínu. Við seljum yfir 60 liti í parketi frá Stile og annan eins fjölda frá Bauwerk.“ Teppaflísar í endurvinnslu Gólfefnaval býður jafnframt upp á teppi og sérpantaðar mottur. „Við seljum teppi og sérpantaðar mottur frá Tarkett Desso. Mott­ urnar verða breiðastar 4 metrar og er hægt að sérsníða eftir þörfum fólks. Jafnframt erum við með stigahúsateppi sem eru mjög vinsæl, eins og Essence frá Tarkett Desso. Lykkjan er gegnumlituð og endurvinnanleg,“ segir Gunnar Þór. „Við erum jafnframt að vinna með einum stærsta teppaflísa­ framleiðanda í Evrópu, Tarkett Desso. Teppaflísar eru líklega besta gólfefnið þegar kemur að því að tryggja góða hljóðvist í fyrirtækjum. Gaman að segja frá því að Tarkett Desso tekur gamlar teppaflísar og endurvinnur þær. Á síðasta ári í samstarfi við Reiti fasteignafélag endursendum við um 4.000 kíló af teppaflísum aftur til Hollands í endurvinnslu, garnið er fjarlægt af baki flísanna, garnið aflitað og endurnýtt, bakið er svo brotið niður í smærri búta og nýtt aftur. Þessi fjögur tonn af gólfefni hefðu annars farið í landfyllingu hér á landi en með ReStart­kerfinu hjá Tarkett Desso getum við tekið allar teppaflísar þeirra til baka og sparað eigendum fasteigna töluvert af peningum í urðun hér á landi því þessi þjónusta er eigendum teppaflísa frá Tarkett Desso að kostnaðarlausu. Umhverfismál í brennidepli Umhverfismál skipta okkur máli og við leggjum áherslu á það. Samstarf okkar við Recofloor og Tarkett ReStart þjónusturnar gerir það að verkum að minna gólfefni lendir í landfyllingum hér á landi. Recofloor tekur við vínil og endur­ vinnur hann. Tarkett hefur lagt mikla áherslu á umhverfisþáttinn eða „frá vöggu til vöggu“ eins og við kjósum að kalla það (e. cradle to cradle), þá er framleiðsla Tarkett Desso að mestu leyti unnin úr polyamid 6 garni sem unnið er úr gömlum fiskinetum (ECONYL),“ upplýsir Gunnar Þór og bendir á að þau hjá Gólfefnavali hafi verið mjög heppin með að vera í sam­ starfi við Polyflor þegar kemur að gólfdúkum. „Við bjóðum upp á mikið úrval gólfdúka frá Poly­ flor. Vinsælasti dúkurinn sem við seljum heitir Palettone og kemur í 50 mismunandi litum, ótrúlega fallegur dúkur. Þá er Polyflor einn­ ig með eitt mesta úrval öryggis­ gólfefna fyrir blautsvæði.“ Hljóðvistarlausnir í úrvali Gunnar Þór segir að nýlega hafi fyrirtækið farið að selja hljóðvistar­ lausnir frá Zilenzio. „Fyrirtækið leggur áherslu á talað mál og að minnka klið í rýmum. Zilenzio hentar mjög vel fyrir vinnustaði sem eru með opin vinnusvæði og sali þar sem kliður getur orðið mikill.“ Í Gólfefnavali eru starfsmenn með mikla reynslu í sölu og þjónustu með gólfefni, sumir hafa starfað við fagið frá 1980 en aðrir eru með minni reynslu en bæta það upp með mikilli ástríðu fyrir því að þjóna hverju verkefni sem best. Gunnar Þór segir að mikil Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Gunnar Þór segir að Gólfefnaval leggi mikla áherslu á um- hverfisvernd. Nýlega flutti fyrirtækið í nýtt og betra húsnæði þar sem er rúmgóður og glæsilegur sýningarsalur og aðkoma þægileg til að skoða úrvalið. Hægt er að velja um ellefu grunnliti í tveggja þátta olíu frá Bona. Bona býður einnig fjöl- breytt úrval ræstingaefna fyrir lökkuð og olíuborin viðar- gólf. Fjölbreytt úrval er af vínilflísum og -parketi í mismunandi útfærslum. Stile býður fjölbreytt úrval viðargólfefna í mörgum plankabreidd- um. Parketið á enn góðan sess hjá Íslendingum en áhersl- ur hafa aðeins breyst. Núna erum við að selja parket í fleiri breidd- um, til dæmis planka- parket sem eru frá 220 – 240 mm og alveg upp í 300 mm á breidd. eftirspurn hefði verið eftir gólf­ efnum á Covid­tímum, sérstaklega hafa sala til einstaklinga aukist. „Margir vildu gefa heimilinu andlitslyftingu enda heima­ vinna algeng og fólk mikið heima. Gólfefnaval hefur ávallt verið í góðu samstarfi við fagaðila. Við höfum meðal annars staðið fyrir námskeiðum erlendis sem og hér á landi í frábæru samstarfi við Iðuna fræðslusetur fyrir fagaðila. Við getum vísað viðskiptavini á góða fagmenn, hvort sem er í parket­ slípun, dúka­ eða teppalögn.“ n Gólfefnaval er staðsett að Höfða- bakka 9b og síminn er 517 8000. Gólfefnaval er með Facebook-síðu þar sem ýmsar góðar upplýsingar birtast. 2 kynningarblað A L LT 23. október 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.