Fréttablaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 100
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Endar
þetta
einhvern
tímann?
Ef ég hefði ekki komist
áfram þá veit maður
bara að þetta fer allt í
reynslubankann.
Óttar Kjerulf er tíu ára leikari
sem stefndi á Kattholt en
endaði nokkuð óvænt sem
Litli-Bubbi í Níu lífum þar
sem hann þreytti frumraun
sína í gærkvöldi og brunaði
í gegnum dramatískan feril
Bubba Mortens ásamt sex
öðrum mismunandi Bubbum.
toti@frettabladid.is
Litli-Bubbi er ein af sjö hliðum
margbrotinnar persónu Bubba
Morthens sem koma við sögu í sýn-
ingunni Níu líf í Borgarleikhúsinu
þar sem tjúttað er feitt í gegnum
magnaða lífssögu Bubba Morthens.
Níu líf hefur notið mikilla vin-
sælda frá því hún var frumsýnd á
elleftu stundu, í mars í fyrra, rétt
áður en heimsfaraldurinn lagði sína
lamandi krumlu yfir leikhúslífið.
Krafturinn í sýningunni er enn
sá sami og á frumsýningunni fyrir
rúmu ári og á fimmtudagskvöld
urðu þau ánægjulegu tímamót að
Litli-Bubbi, Ungi-Bubbi, Gúanó-
Bubbi, Utangarðs-Bubbi, Egó-Bubbi,
Góðæris-Bubbi og Sátti-Bubbi gátu
loks skellt á skeið fyrir fullum sal af
grímulausum áhorfendum.
Í gærkvöld þreytti síðan hinn
tíu ára gamli Óttar Kjerulf frum-
raun sína, sem Litli-Bubbi, á Stóra
sviðinu þangað sem hann mætti til
leiks nýklipptur, pínu stressaður en
fyrst og fremst mjög spenntur.
Fer allt í reynslubankann
„Ég er sem sagt í Leiklistarskóla
Borgarleikhússins og þar voru flest-
ir strákarnir fengnir í prufur og ég
komst áfram,“ segir Óttar sem hafði
áður reynt fyrir sér í prufum í leik-
húsinu fyrir Emil í Kattholti.
Þá heillaði hann dómnefndina
þótt hann hefði ekki þótt passa í
hlutverk Emils. „Þegar það vantaði
nýjan Litla-Bubba í Níu líf þá var
hann kallaður aftur inn og alger-
lega rúllaði þessu upp,“ segir Alexía
Björg Jóhannesdóttir, kynningar-
stjóri Borgarleikhússins.
L ei k a r i n n u ng i st aðfe st i r
aðspurður að hann hafi verið mjög
kátur þegar hann fékk hlutverk
Litla-Bubba en er greinilega með
báða fætur á jörðinni. „Jú, en ég
meina, ef ég hefði ekki komist áfram
þá veit maður bara að þetta fer allt í
reynslubankann sko.“
Ljósir lokkar fjúka
Óttar fórnaði ljósum lokkum sínum,
sem hefðu hentað Emil betur, fyrir
hlutverkið og þeir fengu að fjúka
á fimmtudaginn. „Hann var með
axlasítt hár en er núna orðinn stutt-
hærður eins og hinir litlu Bubbarnir,“
segir Kristín Lena Þorvaldsdóttir,
mamma nýjasta Litla-Bubbans.
Óttar segir aðspurður að feimnin
sé ekkert að þvælast fyrir honum
og hefur orð pabba síns því til stað-
festingar að leiklistarbakterían hafi
lengi blundað í honum. „Ég var bara
að heyra það núna frá pabba mínum
að þegar ég var fimm ára hafi ég bara
allt í einu spurt: Hvernig er að leika í
bíómynd. Hvað þarf ég að gera?“
Vakað með fjöllunum
Tónlist Bubba Morthens keyrir
sýninguna vitaskuld áfram og þar er
ekki komið að tómum kofanum hjá
Óttari. „Ég kannaðist við öll lögin
af því ég heyrði þau í útvarpinu og
svona en uppáhaldslagið mitt er
Fjöllin hafa vakað,“ segir hann um
einn Bubba-klassíkerinn sem tek-
inn er með tilþrifum í Níu lífum.
Hlutverk Litla-Bubba krefst þess
meðal annars að leikarinn geti
sungið og dansað og Óttar segist
telja sig fullfæran í allt slíkt og ætlar
greinilega að gefa sig allan í um það
bil þriggja klukkustunda kvöldsýn-
ingarnar sem standa frá klukkan 20
til 23.
„Maður leggur sig bara allan fram
og svo eftir það er maður náttúrlega
rosa þreyttur en maður gerir þetta
allt og það verður örugglega rosa-
lega skemmtilegt.“ n
Varð Litli-Bubbi eftir
viðkomu í Kattholti
Óttar Kjerulf lét
ljósu lokkana
fjúka og er klár
í hlutverk Litla-
Bubba í Borgar-
leikhúsinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Hjörtur Jóhann
Jónsson, Edrú-
Bubbi, og Óttar
sem Litli-Bubbi
í stuði ásamt
Rakel Björgu
Björnsdóttur.
MYND/AÐSEND
n Frétt vikunnar
Birgir Olgeirsson
odduraevar@frettabladid.is
„Frétt vikunnar að mínu mati er
dómurinn í Rauðagerði. Stærsta
sakamál síðari ára þar sem héraðs-
dómari skammar lögreglu fyrir að
gæta ekki hlutleysis við rannsókn
málsins,“ segir Birgir sem hefur
undanfarin ár verið fréttahaukur á
Stöð 2 en færir sig f ljótlega til f lug-
félagsins Play þar sem hann mun
sjá um almannatengsl.
„Merkilegur dómur þar sem
dómarinn sýknar manninn sem
ók morðingjanum til og frá vett-
vangi og á staðinn þar sem byss-
unni er kastað út í sjó,“ segir Birgir
og heldur áfram:
„Það verður áhugavert að sjá
hvaða niðurstöðu Landsréttur
kemst að, hvort hann meti öðruvísi
hlutdeild þeirra þriggja sem sökuð
voru um að aðstoða við glæpinn.
Og hvort það leiði til þess að Angj-
elin Sterkaj fái þyngri dóm,“ segir
Birgir.
Þá nefnir fréttamaðurinn næst
Norðvesturkjördæmi. „Í öðrum
fréttum er það skýrsla lögreglunn-
ar vegna rannsóknar á talningu í
Norðvesturkjördæmi. Verður þetta
mál sem eltir okkur næstu árin? Er
nóg að lög hafi verið brotin til að
það verði kosið aftur? Endar þetta
einhvern tímann? Ætli það ekki.“ n
Morðmál og kosningamisferli
Birgir Olgeirsson, fréttamaður og bráðum almannatengill.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
A F S L ÁT T U R
25%
STILL ANLEGIR
DAGAR
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
SETTU ÞIG Í STELLINGAR
FYRIR BETRI SVEFN
MEÐ ÞVÍ EINU AÐ SNERTA TAKKA GETUR ÞÚ STILLT
RÚMIÐ Í HVAÐA STELLINGU SEM ÞÉR HENTAR
Splendid Royal heilsudýnan frá Serta er
pokagormadýna skipt upp í fimm mismunandi
svæði. Gormakerfið er með þéttari stuðning við bak
og mjaðmasvæði en mýkri við axlir. Þannig tryggir
þú rétta svefnstellingu hver sem svefnstaða þín er
og hjálpar þér að ná dýpri og betri svefni. Hægt er
að sérsníða rúmið eftir þínum þörfum; velja um þrjá
mismunandi stífleika sem og fjórar mismunandi
toppdýnur. Áklæðið utan um dýnuna er mjúkt og
slitsterkt, ofnæmisfrítt og andar vel.
Serta Splendid stillanlegt heilsurúm með Ocean gafli
og HR toppi. 2x90x200 cm. Fullt verð: 679.900 kr.
Tilboð 509.925 kr.
60 Lífið 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ