Fréttablaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 26
Mexíkóska leikkonan og
danskennarinn Edna Lupita
Mastache er viðfangsefni
heimildarmyndarinnar Ekki
einleikið. Í henni er barátta
Ednu við geðræn veikindi með
nýstárlegum aðferðum leik-
listarinnar, umfjöllunarefni.
Edna Lupita elti ástina frá
Mexíkó til Íslands fyrir
r úmum t veimur ára-
tugum, heimsóknin átti
að vera stutt en hér er hún
enn ásamt þremur dætrum.
Edna er alin upp í Mexíkóborg og
segir umhverfið að mörgu leyti hafa
verið óöruggt. „Ég var hrædd við að
búa þar enda var barnsfaðir minn
myrtur þegar ég var nýorðin ólétt
af dóttur okkar. Pabbi hafði sagt
mér að ef ég yrði ólétt ógift myndi
hann henda mér út. Eins höfðu fjöl-
skyldumeðlimir varað mig við Dani,
barnsföður mínum. Hann var „el
malo“, en hann var svo sætur,“ rifjar
Edna upp og hlær. Hún var auðvitað
aðeins 19 ára og segist hafa verið
viss um að með henni yrði hann
betri maður. „Hann var í óreglu en
við höfðum rætt það að hann vildi
hætta en sjálf hef ég aldrei notað
fíkniefni.“
„Hann var myrtur tólf árum áður
en þáverandi forseti, Felipe Calde-
rón, lýsti yfir stríði gegn fíkniefna-
innf lutningi. Ástandið var slæmt
og margir í kringum mig myrtir,“
segir Edna, sem fannst hún óörugg
í Mexíkó.
Edna strauk að heiman ólétt enda
hafði faðir hennar lýst því yfir að
hún fengi ekki að búa hjá þeim ógift
með barn. „En hann fór að leita að
mér, sem betur fer.“
Örlagarík afmælisveisla
Edna var því ein með dóttur sína
Angie, sem fæddist árið 1994, en
fékk stuðning frá foreldrum sínum
og fór í háskólanám í leiklist og
þýsku þegar Angie var átta mánaða
gömul. Það var svo í afmælisveislu í
Mexíkóborg árið 1997 sem örlögin
tóku í taumana.
„Vinkona mín var að deita
íslenskan mann sem hélt veislu
vegna afmælis síns. Ég fór með enda
hafði þess vinkona sagt að þar yrði
svissneskur maður sem vildi hitta
mig. Ég var að læra þýsku og var því
spennt að spjalla við hann en hann
hitti ég aldrei,“ það var aftur á móti
íslenskur skiptinemi sem fangaði
undir eins athygli hennar.
„Þegar ég gekk inn í veisluna sá
ég Pétur og hugsaði með mér að ég
yrði alla vega að sofa hjá honum,
enda minnti hann mig á Axl Rose,“
rifjar Edna upp í léttum tón. „Ég
hugsaði með mér að þetta hlyti
að vera Svisslendingurinn sem ég
átti að hitta. Þetta var ekki hann
en Pétur talaði smá þýsku svo við
fórum að tala saman. Ég varð strax
ástfangin af honum, en veit þó ekki
með hann,“ segir hún og hlær.
Ástin virðist hafa verið endur-
goldin, enda voru Edna og Pétur
farin að búa saman eftir tvær vikur.
„Það var ekki planað en bara gerðist.
Ég var undir eins mjög skýr með að
við værum tvær, ég og Angie, dóttir
mín sem hann kynntist mánuði
eftir að við hittumst. Þau náðu strax
mjög vel saman, svo vel að þegar við
Pétur skildum árið 2010 fann ég að
hún var tengdari honum en mér.
Hún er svolítið lokuð eins og Íslend-
ingur þótt hún sé mexíkósk í hjarta.
Hún er ólík yngri dætrum mínum
sem eru opnari og tala mjög mikið.“
Frá Mexíkóborg í Vesturbæinn
Upphaf lega ætlaði unga parið að
búa í Mexíkóborg en árið 1998 fóru
þau í það sem átti að vera heimsókn
til Íslands og hér eru þau enn.
Dóttirin, Angie, varð upphaf-
lega eftir í Mexíkó. „Ég vildi ekki
taka hana frá foreldrum mínum
og við vorum ekki viss um að Pétur
væri í alvöru Pétur en ekki einhver
glæpamaður. Þremur mánuðum
síðar, þegar ég var sannfærð um að
allt væri eins og það ætti að vera,
Vildi vinna með mína djöfla
Edna segir hugræna atferlismeðferð hafa breytt lífi sínu en hún hefur lengi glímt við geðræn veikindi. Leiklistina vill
hún jafnframt nota til hjálpar sér og öðrum sem glíma við slíkar áskoranir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
fór ég að sækja hana. Allt í einu var
allt lífið breytt,“ segir Edna, sem
uppgötvaði fjórum dögum eftir að
hún lenti á Íslandi að hún væri með
barni. „Við ákváðum að stofna fjöl-
skyldu hér og ég þurfti að kveðja
fjölskyldu mína mjög brátt. Ég var
með mikið samviskubit, mamma
grét mikið og sökk í mikið þung-
lyndi eftir að við fórum.“ Edna
bendir á að á þeim tíma hafi verið
mun erfiðara að halda sambandi
á milli landa. „Ég man að mig
dreymdi um síma þar sem ég gæti
séð þau þegar ég talaði við þau. Eins
og eru til í dag.“
Edna kom hingað til lands í
ágúst árið 1998, hún var þá 23 ára
gömul og eldri dóttir þeirra Péturs,
Ariedna, kom í heiminn í maí árið
eftir.
„Það var eftir annað barnið sem
ég upplifði fyrst alvarlegt þung-
lyndi. Ég var rúmföst og man eftir að
hafa upplifað reiði gagnvart mann-
inum mínum og tengdaforeldrum.
Þau vildu leyfa mér að hvílast og
létta undir með stelpurnar. Þær
fóru þá að treysta meira á þau með
allt. Ég er enn að berjast fyrir því að
sýna þeim að ég geti gert ýmislegt
en ég þarf líka að viðurkenna að ég
get ekki hjálpað þeim með allt, eins
og til að mynda skólamál og fjármál.
Þá eru það frekar pabbi og amma og
afi en það getur svo sem líka verið
þægilegt,“ segir Edna og hlær.
Edna og Pétur skildu árið 2011
en það er augljóst á öllu hennar tali
að þau eru enn mjög góðir vinir
og uppeldi dætranna þriggja er á
beggja ábyrgð.
Sjálfsvígshugsanir frá sex ára aldri
Aðspurð segist Edna fyrst muna
eftir sjálfsvígshugsunum þegar hún
var aðeins sex ára gömul en þær hafi
orðið algengar seinna meir. Faðir
Ednu var læknir og móðir hennar
hjúkrunarfræðingur og þó hún
segi föður hennar oft hafa haft það í
f limtingum að hún væri geðhvarfa-
sjúklingur, hafi lítið verið talað um
geðheilsu.
„Það er í raun mjög skrítið að
enginn hafi talað um þetta þegar
ég var krakki því mamma var mjög
þunglynd. Síðar veiktist hún af Alz-
heimer og lést fyrir tveimur árum
eftir 15 ára erfið veikindi.“
Þunglyndið jókst og segist Edna
hafa upplifað mikla þreytu og til-
gangsleysi. Hún hafði kennt þolfimi
og dans en hætti á meðgöngunni.
„Ég fann fyrir að geta ekki lagt neitt
af mörkum til samfélagsins. Ég held
að það hafi haft mikil áhrif. Þegar
barnið fæddist var ég bara mamma,“
lýsir Edna, sem upplifði félagslega
einangrun.
„Ég vildi ekki senda barnið frá
mér svo ég gerðist dagmamma til
að vera með hana heima. Það var
mjög erfitt að vera heima allan dag-
inn og ég upplifði jafnframt reiði
ofan í þunglyndið. Ég var aldrei að
gera það sem ég vildi gera, sem var
að dansa og leika. Ég festist inni í
mínum eigin heimi. Upplifði mikla
þreytu og þyngsli. Lífsstíllinn var í
rusli og ég borðaði og svaf illa. Ég
sem hef gaman af félagslífi forðaðist
jafnframt mannfögnuði.“
Alltaf með grímuna uppi
Edna skráði sig í spænskunám við
Háskóla Íslands en segir að sér hafi
liðið illa meðan á náminu stóð enda
þunglyndið svæsið. „Ég átti erfitt
með að fela líðan mína en maður
þorði ekki að láta á neinu bera. Í dag
spyrja kennarar nemendur hvernig
þeim líði en það tíðkaðist ekki á
þessum tíma. Það var líka erfitt að
kenna salsa á meðan ég var í miklu
þunglyndi. Ég var alltaf með grím-
una uppi.“
Hún segir líðan sína hafa leitt
til þess að þau hjónin skildu árið
2011. „Ástin var alltaf til staðar en
ástríðuna vantaði.“ Eftir skilnað-
inn sökk hún þó enn lengra niður.
„Við reyndum viku og viku með
stelpurnar í upphafi. Það gekk vel á
meðan þær voru hjá mér en þegar
þær fóru var allt hræðilegt. Ég lá
bara í gólfinu og fann fyrir óraun-
verulegum verum í kringum mig. Ég
var farin að vinna í Kramhúsinu og
fannst ég hafa hlutverk. En þegar ég
kom heim fann ég fyrir miklum ein-
manaleika. Ég sá drauga og ofsjónir
og átti erfitt með að skilja á milli.“
Edna leitaði til geðdeildar og fékk
viðtöl einu sinni í mánuði, þó það
hafi hjálpað dugði það ekki til. Eins
fékk hún uppáskrifað þunglyndis-
lyfið Sertral, sem hún telur hafa
verið mistök, enda fékk hún nýja
greiningu fyrir þremur árum síðan,
geðhvörf, og við þeim eru gefin ann-
ars konar lyf.
Sjálfsvígstilraun
„Ég fann að ég var að veikjast, mér
var alveg sama hvort ég lifði eða dó.
Fannst dæturnar ekki þurfa á mér
að halda og ég ekki vera nógu sterk
fyrir þær. Þær voru lengi það eina
sem ég lifði fyrir. Ég treysti mér ekki
til að halda áfram. Fannst ég ekki
góð manneskja, vildi bara hverfa.“
Edna gerði tilraun til sjálfsvígs, tók
lyf en komst sem betur fer undir
læknishendur í tæka tíð. „Ég man
eftir að hafa verið ánægð með mig
að hafa loks hugrekki til að reyna
eitthvað. Ég hafði verið langt niðri
en upplifði þarna maníu.“
Eins og fyrr segir höfðu sjálfsvígs-
hugsanir lengi fylgt Ednu en hún
segir þetta tilfelli þó hafa verið af
hvatvísi. En í framhaldi af innlögn á
geðdeild hafi hún fengið mjög góða
meðferð í Hvíta bandinu.
„Þar lærði ég hugræna atferlismeð-
ferð sem hjálpaði mér mjög mikið. Ég
lærði tilfinninga- og streitustjórnun,
samskiptafærni og núvitund. Þetta
breytti algjörlega lífi mínu.“
Ég var
hrædd við
að búa þar
enda var
barnsfaðir
minn
myrtur
þegar ég
var nýorð-
in ólétt af
dóttur
okkar.
Það gekk vel á meðan
þær voru hjá mér en
þegar þær fóru var allt
hræðilegt. Ég lá bara í
gólfinu og fann fyrir
óraunverulegum
verum í kringum mig.
26 Helgin 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ