Fréttablaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 26
Mexíkóska leikkonan og danskennarinn Edna Lupita Mastache er viðfangsefni heimildarmyndarinnar Ekki einleikið. Í henni er barátta Ednu við geðræn veikindi með nýstárlegum aðferðum leik- listarinnar, umfjöllunarefni. Edna Lupita elti ástina frá Mexíkó til Íslands fyrir r úmum t veimur ára- tugum, heimsóknin átti að vera stutt en hér er hún enn ásamt þremur dætrum. Edna er alin upp í Mexíkóborg og segir umhverfið að mörgu leyti hafa verið óöruggt. „Ég var hrædd við að búa þar enda var barnsfaðir minn myrtur þegar ég var nýorðin ólétt af dóttur okkar. Pabbi hafði sagt mér að ef ég yrði ólétt ógift myndi hann henda mér út. Eins höfðu fjöl- skyldumeðlimir varað mig við Dani, barnsföður mínum. Hann var „el malo“, en hann var svo sætur,“ rifjar Edna upp og hlær. Hún var auðvitað aðeins 19 ára og segist hafa verið viss um að með henni yrði hann betri maður. „Hann var í óreglu en við höfðum rætt það að hann vildi hætta en sjálf hef ég aldrei notað fíkniefni.“ „Hann var myrtur tólf árum áður en þáverandi forseti, Felipe Calde- rón, lýsti yfir stríði gegn fíkniefna- innf lutningi. Ástandið var slæmt og margir í kringum mig myrtir,“ segir Edna, sem fannst hún óörugg í Mexíkó. Edna strauk að heiman ólétt enda hafði faðir hennar lýst því yfir að hún fengi ekki að búa hjá þeim ógift með barn. „En hann fór að leita að mér, sem betur fer.“ Örlagarík afmælisveisla Edna var því ein með dóttur sína Angie, sem fæddist árið 1994, en fékk stuðning frá foreldrum sínum og fór í háskólanám í leiklist og þýsku þegar Angie var átta mánaða gömul. Það var svo í afmælisveislu í Mexíkóborg árið 1997 sem örlögin tóku í taumana. „Vinkona mín var að deita íslenskan mann sem hélt veislu vegna afmælis síns. Ég fór með enda hafði þess vinkona sagt að þar yrði svissneskur maður sem vildi hitta mig. Ég var að læra þýsku og var því spennt að spjalla við hann en hann hitti ég aldrei,“ það var aftur á móti íslenskur skiptinemi sem fangaði undir eins athygli hennar. „Þegar ég gekk inn í veisluna sá ég Pétur og hugsaði með mér að ég yrði alla vega að sofa hjá honum, enda minnti hann mig á Axl Rose,“ rifjar Edna upp í léttum tón. „Ég hugsaði með mér að þetta hlyti að vera Svisslendingurinn sem ég átti að hitta. Þetta var ekki hann en Pétur talaði smá þýsku svo við fórum að tala saman. Ég varð strax ástfangin af honum, en veit þó ekki með hann,“ segir hún og hlær. Ástin virðist hafa verið endur- goldin, enda voru Edna og Pétur farin að búa saman eftir tvær vikur. „Það var ekki planað en bara gerðist. Ég var undir eins mjög skýr með að við værum tvær, ég og Angie, dóttir mín sem hann kynntist mánuði eftir að við hittumst. Þau náðu strax mjög vel saman, svo vel að þegar við Pétur skildum árið 2010 fann ég að hún var tengdari honum en mér. Hún er svolítið lokuð eins og Íslend- ingur þótt hún sé mexíkósk í hjarta. Hún er ólík yngri dætrum mínum sem eru opnari og tala mjög mikið.“ Frá Mexíkóborg í Vesturbæinn Upphaf lega ætlaði unga parið að búa í Mexíkóborg en árið 1998 fóru þau í það sem átti að vera heimsókn til Íslands og hér eru þau enn. Dóttirin, Angie, varð upphaf- lega eftir í Mexíkó. „Ég vildi ekki taka hana frá foreldrum mínum og við vorum ekki viss um að Pétur væri í alvöru Pétur en ekki einhver glæpamaður. Þremur mánuðum síðar, þegar ég var sannfærð um að allt væri eins og það ætti að vera, Vildi vinna með mína djöfla Edna segir hugræna atferlismeðferð hafa breytt lífi sínu en hún hefur lengi glímt við geðræn veikindi. Leiklistina vill hún jafnframt nota til hjálpar sér og öðrum sem glíma við slíkar áskoranir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is fór ég að sækja hana. Allt í einu var allt lífið breytt,“ segir Edna, sem uppgötvaði fjórum dögum eftir að hún lenti á Íslandi að hún væri með barni. „Við ákváðum að stofna fjöl- skyldu hér og ég þurfti að kveðja fjölskyldu mína mjög brátt. Ég var með mikið samviskubit, mamma grét mikið og sökk í mikið þung- lyndi eftir að við fórum.“ Edna bendir á að á þeim tíma hafi verið mun erfiðara að halda sambandi á milli landa. „Ég man að mig dreymdi um síma þar sem ég gæti séð þau þegar ég talaði við þau. Eins og eru til í dag.“ Edna kom hingað til lands í ágúst árið 1998, hún var þá 23 ára gömul og eldri dóttir þeirra Péturs, Ariedna, kom í heiminn í maí árið eftir. „Það var eftir annað barnið sem ég upplifði fyrst alvarlegt þung- lyndi. Ég var rúmföst og man eftir að hafa upplifað reiði gagnvart mann- inum mínum og tengdaforeldrum. Þau vildu leyfa mér að hvílast og létta undir með stelpurnar. Þær fóru þá að treysta meira á þau með allt. Ég er enn að berjast fyrir því að sýna þeim að ég geti gert ýmislegt en ég þarf líka að viðurkenna að ég get ekki hjálpað þeim með allt, eins og til að mynda skólamál og fjármál. Þá eru það frekar pabbi og amma og afi en það getur svo sem líka verið þægilegt,“ segir Edna og hlær. Edna og Pétur skildu árið 2011 en það er augljóst á öllu hennar tali að þau eru enn mjög góðir vinir og uppeldi dætranna þriggja er á beggja ábyrgð. Sjálfsvígshugsanir frá sex ára aldri Aðspurð segist Edna fyrst muna eftir sjálfsvígshugsunum þegar hún var aðeins sex ára gömul en þær hafi orðið algengar seinna meir. Faðir Ednu var læknir og móðir hennar hjúkrunarfræðingur og þó hún segi föður hennar oft hafa haft það í f limtingum að hún væri geðhvarfa- sjúklingur, hafi lítið verið talað um geðheilsu. „Það er í raun mjög skrítið að enginn hafi talað um þetta þegar ég var krakki því mamma var mjög þunglynd. Síðar veiktist hún af Alz- heimer og lést fyrir tveimur árum eftir 15 ára erfið veikindi.“ Þunglyndið jókst og segist Edna hafa upplifað mikla þreytu og til- gangsleysi. Hún hafði kennt þolfimi og dans en hætti á meðgöngunni. „Ég fann fyrir að geta ekki lagt neitt af mörkum til samfélagsins. Ég held að það hafi haft mikil áhrif. Þegar barnið fæddist var ég bara mamma,“ lýsir Edna, sem upplifði félagslega einangrun. „Ég vildi ekki senda barnið frá mér svo ég gerðist dagmamma til að vera með hana heima. Það var mjög erfitt að vera heima allan dag- inn og ég upplifði jafnframt reiði ofan í þunglyndið. Ég var aldrei að gera það sem ég vildi gera, sem var að dansa og leika. Ég festist inni í mínum eigin heimi. Upplifði mikla þreytu og þyngsli. Lífsstíllinn var í rusli og ég borðaði og svaf illa. Ég sem hef gaman af félagslífi forðaðist jafnframt mannfögnuði.“ Alltaf með grímuna uppi Edna skráði sig í spænskunám við Háskóla Íslands en segir að sér hafi liðið illa meðan á náminu stóð enda þunglyndið svæsið. „Ég átti erfitt með að fela líðan mína en maður þorði ekki að láta á neinu bera. Í dag spyrja kennarar nemendur hvernig þeim líði en það tíðkaðist ekki á þessum tíma. Það var líka erfitt að kenna salsa á meðan ég var í miklu þunglyndi. Ég var alltaf með grím- una uppi.“ Hún segir líðan sína hafa leitt til þess að þau hjónin skildu árið 2011. „Ástin var alltaf til staðar en ástríðuna vantaði.“ Eftir skilnað- inn sökk hún þó enn lengra niður. „Við reyndum viku og viku með stelpurnar í upphafi. Það gekk vel á meðan þær voru hjá mér en þegar þær fóru var allt hræðilegt. Ég lá bara í gólfinu og fann fyrir óraun- verulegum verum í kringum mig. Ég var farin að vinna í Kramhúsinu og fannst ég hafa hlutverk. En þegar ég kom heim fann ég fyrir miklum ein- manaleika. Ég sá drauga og ofsjónir og átti erfitt með að skilja á milli.“ Edna leitaði til geðdeildar og fékk viðtöl einu sinni í mánuði, þó það hafi hjálpað dugði það ekki til. Eins fékk hún uppáskrifað þunglyndis- lyfið Sertral, sem hún telur hafa verið mistök, enda fékk hún nýja greiningu fyrir þremur árum síðan, geðhvörf, og við þeim eru gefin ann- ars konar lyf. Sjálfsvígstilraun „Ég fann að ég var að veikjast, mér var alveg sama hvort ég lifði eða dó. Fannst dæturnar ekki þurfa á mér að halda og ég ekki vera nógu sterk fyrir þær. Þær voru lengi það eina sem ég lifði fyrir. Ég treysti mér ekki til að halda áfram. Fannst ég ekki góð manneskja, vildi bara hverfa.“ Edna gerði tilraun til sjálfsvígs, tók lyf en komst sem betur fer undir læknishendur í tæka tíð. „Ég man eftir að hafa verið ánægð með mig að hafa loks hugrekki til að reyna eitthvað. Ég hafði verið langt niðri en upplifði þarna maníu.“ Eins og fyrr segir höfðu sjálfsvígs- hugsanir lengi fylgt Ednu en hún segir þetta tilfelli þó hafa verið af hvatvísi. En í framhaldi af innlögn á geðdeild hafi hún fengið mjög góða meðferð í Hvíta bandinu. „Þar lærði ég hugræna atferlismeð- ferð sem hjálpaði mér mjög mikið. Ég lærði tilfinninga- og streitustjórnun, samskiptafærni og núvitund. Þetta breytti algjörlega lífi mínu.“  Ég var hrædd við að búa þar enda var barnsfaðir minn myrtur þegar ég var nýorð- in ólétt af dóttur okkar. Það gekk vel á meðan þær voru hjá mér en þegar þær fóru var allt hræðilegt. Ég lá bara í gólfinu og fann fyrir óraunverulegum verum í kringum mig. 26 Helgin 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.