Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 90
Ég hef mikinn áhuga á
listasögu og því eru
margs konar tilvísanir í
verkum mínum.
Breski listamaðurinn Perry
Roberts heldur fyrstu einka-
sýningu sína hér á landi í
Hverfisgalleríi og ber hún
yfirskriftina Below/Beyond.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Perry Roberts er fæddur árið 1954 og
býr og starfar í Antwerpen í Belgíu.
List hans og hönnun hefur verið
sýnd víða, í þremur heimsálfum, á
þrjátíu einkasýningum og yfir sex-
tíu samsýningum auk fjölda verka
hans í opinberu rými.
Í Hverfisgalleríi sýnir hann nýleg
verk á pappír og málverk á léreft og
striga. „Þetta eru ekki hefðbundin
málverk, ég strekki ekki léreft og
mála á það. Ég nota málningu og
sauma oft saman í vél mismunandi
gerðir af hráum striga og lérefti.“
Þessi aðferð hans gerir að verkum
að líta má á verkin sem unnin eru á
léreft í senn sem málverk, textílverk
eða jafnvel veggteppi.
„Verkin virðast á yfirborðinu
vera mjög einföld en þegar kemur
að hönnuninni þá eru þau nokkuð
f lókin,“ segir hann. „Ég er í eins
konar rannsókn á aðferðum við
að mála, sýni í formum það sem er
venjulega falið í málverki. Ég hef
mikinn áhuga á listasögu og því
eru margs konar tilvísanir í verkum
mínum, til dæmis til myndlistar
endurreisnartímans. Mér finnst
þessar tilvísanir mikilvægar, þær
skipta mig miklu máli. En ég vil að
áhorfandinn túlki verkin á sinn átt,
ég ætla ekki að segja honum hvað
hann eigi að sjá.“
Svart og hvítt er áberandi í verk-
um hans. „Ég hef gert litrík verk en
ég er ekki litaglaður. Það á ekki við
mig að nota grænt, rautt og blátt,
þegar ég geri það lendi ég í alls kyns
vandræðum. Það er áhugavert að
ef maður takmarkar sig við svart
og hvítt, þá kemst maður að því
að til eru ótal gerðir af svörtu og
sömuleiðis af hvítu. Þetta sést vel í
verkum mínum.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Roberts
kemur hingað til lands. „Það að
koma með verkin til Íslands hefur
gert að verkum að ég sé þau í öðru
samhengi en áður. Mér finnst eins
og þau hafi öðlast aðra vídd. Ég
hef fylgst með veðrabrigðunum á
Íslandi og mér finnst ég koma auga
á þau í myndum mínum.“
Sýning Perry Roberts í Hverfis-
galleríi stendur til 6. nóvember. ■
Rannsókn á aðferðum við að mála
Þetta er í fyrsta sinn sem Perry Roberts sýnir verk sín hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
kolbrunb@frettabladid.is
Nýstofnaður Kór Hallgrímskirkju
kemur fram í fyrsta sinn við hátíð-
armessu sunnudaginn 24. október
klukkan 11. Minnst er Hallgríms-
dagsins, 347. dánarártíðar Hall-
gríms Péturssonar, og haldið upp
á 35 ára vígsluafmæli kirkjunnar.
Kórinn hóf æfingar 14. september
síðastliðinn undir stjórn Steinars
Loga Helgasonar, nýs kórstjóra
kirkjunnar.
Í tilefni af afmæli Hallgríms-
kirkju og stofnun Kórs Hallgríms-
kirkju skrifaði tónskáldið Þor-
valdur Örn Davíðsson nýtt verk við
sálm Hallgríms Péturssonar, Vaktu,
minn Jesú, vaktu í mér, og verður
verkið f lutt í hátíðarmessunni. ■
Nýtt verk við sálm Hallgríms
Kór Hallgríms-
kirkju flytur
nýtt verk.
kolbrunb@frettabladid.is
Hádegistónleikar verða í Hafnar-
f jarðarkirkju þriðjudaginn 26.
október k lukkan 12.00-12.30.
Eyþór Franzson Wechner, organisti
Blönduóskirkju, leikur verk eftir
Heinrich Scheidemann, Giovanni
Battista Martini, Johann Sebastian
Bach, Juozas Naujalis og Alexandre
Guilmant. Aðgangur er ókeypis. ■
Bach í Hafnarfirði
Johann Sebastian Bach.
kolbrunb@frettabladid.is
Þriðjudaginn 26. október mun
Ar t húr Björgvin Bollason kynna
þýðingu sína á skáldsögunni Hýper-
íon eftir Friedrich Hölderlín í Gunn-
arshúsi. Kynningin hefst klukkan
18.
Friedrich Hölderlín (1770-1843)
var eitt af fremstu ljóðskáldum
Þjóðverja. Hýperíon eða Einfarinn
á Grikklandi var eina skáldsagan
sem hann sendi frá sér um dagana.
Sagan er talin eitt merkasta skáld-
verk rómantíska tímabilins í Þýska-
landi í óbundnu máli. Arthúr Björg-
vin spjallar um skáldið og les brot úr
þýðingu sinni á þessu sígilda meist-
araverki, sem nú kemur fyrir sjónir
íslenskra lesenda í fyrsta sinn. ■
Kynning á Hölderlín
Arthúr Björgvin Bollason.
Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum fyrir leikskáld
Borgarleikhússins. Stjórn sjóðsins býður leikskáldi úr hópi umsækjenda samning
við Borgarleikhúsið. Laun sem eru greidd mánaðarlega taka mið af starfslaunum
listamanna. Skáldið fær aðstöðu í leikhúsinu, vinnur þar á samningstímanum og
verður hluti af starfsliði Borgarleikhússins og mun njóta aðstoðar, leiðsagnar og
stuðnings leikhússtjóra og leiklistarráðunauta.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum, uppruna og samfélagshópum til þess að sækja um.
Umsókn skal innihalda:
- Nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer
- Ferilskrá
- Stutt sýnishorn af leikrænum texta
- Hugmynd að sviðsverki
- Annað sem umsækjandi telur að eigi erindi
Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með þær allar sem trúnaðarmál.
Leikskáld Borgarleikhússins hefur störf á leikárinu 2022–2023
Umsóknir skulu sendar á leikritun@borgarleikhus.is merktar Leikskáld Borgarleikhússins
fyrir miðvikudaginn 1. desember 2021.
Leikskáld
óskast
50 Menning 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ