Fréttablaðið - 23.10.2021, Síða 12
og styður í leiðinni við hjálpar- og mannúðarstörf
Þú finnur gersemar
í Rauðakrossbúðunum
og styður í leiðinni við hjálpar- og mannúðarstörf
í Rauðakrossbúðunum
Þú finnur ger emar
Reykjavík
Laugavegur 12
Laugavegur 116
Kringlan
Mjóddin
Borgarnes
Borgarbraut 4
Patreksfjörður
Bjarkargata 11
Blönduós
Húnabraut 13
Skagaströnd
Vallarbraut 4
Sauðárkrókur
Aðalgata 108
Akureyri
Viðjulundur 2
Húsavík
Garðarsbraut 44
Þórshöfn
Glaðheimar
Egilsstaðir
Dynskógar 4
Eskifjörður
Strandgata 50
Stöðvarfjörður
Fjarðarbraut 48
Djúpivogur
Bakki 3
Reykjanesbær
Smiðjuvellir 8
Auglýsing á tillögum að burðarþolsmati og
áhættumati erfðablöndunar ásamt umhverfis-
matsskýrslu burðarþolsmats og áhættumats
erfðablöndunar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, í samvinnu við Hafrannsókna-
stofnun, auglýsir hér með tillögur að burðarþolsmati og áhættumati
erfðablöndunar ásamt umhverfismatsskýrslu burðarþolsmats og áhættu-
mats erfðablöndunar á Austfjörðum og Vestfjörðum.
Tillögur að burðarþolsmati og áhættumati erfðablöndunar ásamt
umhverfismatsskýrslu og fylgigögnum eru aðgengileg á samráðsgátt stjórn-
valda, www.samradsgatt.is, frá og með mánudeginum 25. október 2021.
Allir sem þess óska geta gert athugasemdir við tillögurnar og umhverfis-
matsskýrslu. Frestur til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri er
til og með 6. desember 2021 og skulu þær berast á samráðsgátt stjórnvalda,
www.samradsgatt.is.
Tillögurnar ásamt fylgiskjölum liggja einnig frammi hjá atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytinu, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík.
gar@frettabladid.is
TRÚFÉLÖG Agnes M. Sigurðardóttir
biskup leggur fram tillögu á Kirkju-
þingi sem hefst í dag um að gerð
verði könnun um viðhorf þjóðar-
innar til þjóðkirkjunnar. Tillaga
Agnesar er byggð á vinnu starfshóps
um samskipta-, ímyndar- og kynn-
ingarmál þjóðkirkjunnar.
„Veruleiki þjóðkirkjunnar er
breyttur að því leyti að við erum
á frjálsum markaði og þar gildir
ímyndin þín og að þú sért í kynn-
ingu og aðrir viti hver þú ert,“ segir
í greinargerð starfshópsins, sem
kveður mikilvægt að greint verði
hvaða leiðir séu bestar „til að boða
fagnaðarerindið“.
Til að fá sem raunhæfasta niður-
stöðu er könnunin sögð þurfa að
vera unnin í sátt innan kirkjunnar.
„Það þyrfti að vinna hana í samráði
við Kirkjuþing og prestasamfélagið
og því er mikilvægt að umræða fari
fram um hana á Kirkjuþingi,“ er
undirstrikað í greinargerð starfs-
hópsins. „Mikilvægt er að við
séum tilbúin til þess að taka mark
á henni, sama hverjar niðurstöð-
urnar verða.“
Sérstaklega er ætlunin að styrkja
notkun kirkjufólks á samfélags-
miðlum. Mikilvægt er sagt að sett
séu viðmið og leiðbeiningar um
miðlana. „Dæmi um það er að setja
fram hvað miðlar kirkjunnar mega
líka við (e. like), hvort þeir eigi að
fylgja einstökum miðlum (e. fol-
low), og hvort þeir megi deila efni
frá öðrum,“ segir starfshópurinn.
Verkefninu fylgir ýmis kostnaður.
Meðal annars á að fjölga stöðu-
gildum á samskiptasviði Biskups-
stofu úr einu og hálfu í þrjú og er það
stærsti einstaka kostnaðarliðurinn;
16,5 milljónir króna árlega. Til við-
bótar er tæplega 5 milljóna króna
reikningur frá Gallup vegna við-
horfskönnunar sem gera á bæði
meðal almennings og fjögur hundr-
uð starfsmanna kirkjunnar.
„Við þurfum að spyrja þjóðina
hvað hún vill til þess að við getum
þjónustað hana, í stað þess að okkar
þjónusta beinist að því sem okkur
langar að þjóðin sækist eftir.“
Í umsögn um tillögu biskups
kveðst Margrét Bóasdóttir, söng-
málastjóri þjóðkirkjunnar, sakna
þess að hvorki í nýsamþykktu
skipuriti né í nokkru máli sem liggi
fyrir Kirkjuþingi skuli vera minnst
á að kirkjan syngi. „Sú fjölda-
hreyfing sem þjónar kirkjunni með
söng undir stjórn vel menntaðra
kirkjutónlistarmanna er oftar en
ekki hinn trúi kjarni safnaðarins,"
segir í umsögn Margrétar. n
Biskupinn vill fjölga á samskiptasviði
og kanna viðhorfið til þjóðkirkjunnar
Agnes M.
Sigurðardóttir,
biskup þjóð-
kirkjunnar.
Eftir gott gengi í þingkosning-
um setja Framsóknarmenn
stefnuna á borgina. Margir
Framsóknarmenn íhuga
framboð og stemningin hefur
sjaldan verið betri.
adalheidur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Framsóknarfólk hugsar
sér nú gott til glóðarinnar eftir vel-
gengni í alþingiskosningunum og
eygir möguleika á að endurreisa
flokkinn í borgarmálunum.
Flokkurinn fékk engan mann
kjörinn í síðustu borgarstjórnar-
kosningum. Meðal þeirra sem
nefndir hafa verið sem líklegir fram-
bjóðendur fyrir Framsókn eru Karl
Garðarsson, lögfræðingur og fyrr-
verandi alþingismaður, en hann
birti grein í Fréttablaðinu í gær um
lóðamál í Reykjavík. Þá hefur Guð-
finna Jóhanna Guðmundsdóttir,
fyrrverandi borgarfulltrúi Fram-
sóknar- og f lugvallarvina, verið
orðuð við framboð fyrir f lokkinn
en hún yfirgaf Framsókn skömmu
eftir stofnun Miðflokksins en mun
hafa ratað heim aftur.
Þá hefur Sigrún Elsa Smáradóttir,
fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylk-
ingarinnar, sterklega verið orðuð
við framboð en hún dúkkaði upp á
framboðslista Framsóknarflokks-
ins í Reykjavík fyrir nýafstaðnar
þingkosningar.
Þótt Björn Ingi Hrafnsson hafi
ítrekað haldið því fram að hann sé
hættur í stjórnmálum gefast menn
ekki upp á að orða hann við fram-
boð. Hann veitti Fréttablaðinu ekki
afgerandi svar en sagðist ekki vera í
neinum framboðspælingum.
Framsóknarmenn á höfuðborgar-
svæðinu binda vonir við að Hrannar
Pétursson, aðstoðarmaður Lilju
Alfreðsdóttur menntamálaráð-
herra, fallist á að leiða Framsóknar-
flokkinn í Reykjavík og Brynja Dan
Þorgeirsdóttir hefur líka fengið
töluvert af áskorunum samkvæmt
heimildum blaðsins, þrátt fyrir að
búa í Garðabænum.
Þá er Þor vald ur Daní els son, eða
Valdi í Hjólakrafti, eins og hann er
gjarnan kallaður, oft nefndur sem
kandídat fyrir Framsókn í Reykja-
vík. Hann var valinn Reyk vík ing ur
árs ins 2020 fyrir ötult hjólreiðastarf
með ungmennum.
Framsóknarfólk sem Frétta-
blaðið ræddi við bindur miklar
vonir við næstu borgarstjórnar-
kosningar og áhrifafólk í f lokknum
segir stefnuna setta á að ná allavega
fjórum borgarfulltrúum inn fyrir
f lokkinn. Stemningin á suðvestur-
horninu hafi verið engu lík fyrir
kosningarnar og nýtt og ungt fólk
streymt í f lokkinn.
Áherslan verði á að byggja ofan
á það sem ráðherrar f lokksins
hafa unnið að, bæði Lilja Alfreðs-
dóttir í skólamálum og Ásmundur
Einar Daðason í velferðarmálum,
einkum fyrir börn. Þá binda þau
sem Fréttablaðið ræddi við vonir
við að formaðurinn setjist í veglegt
innviðaráðuneyti með áhrifum sem
skipt geti máli fyrir skipulags- og
húsnæðismál í Reykjavík. n
Framsóknarmenn stefna á fjóra borgarfulltrúa
Framsóknarmenn fögnuðu sigri langt fram á nótt eftir góðan kosningasigur í
síðasta mánuði. Nú á að hamra járnið meðan það er heitt. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Hnignun eftir blómaskeið R-listans
Framsóknarflokkurinn bauð
fram sameiginlega með vinstri
flokkunum undir merkjum
Reykjavíkurlistans árin 1994,
1998 og 2002 og öll þessi
kjörtímabil var R-listinn með
meirihluta í borginni. Flokkarnir
buðu hins vegar fram hver í sínu
lagi í kosningunum 2006 og þá
fékk Framsóknarflokkurinn
einn mann kjörinn, Björn Inga
Hrafnsson.
Þegar Jón Gnarr og Besti
flokkurinn buðu fram árið 2010
náðu Framsóknarmenn engum
inn en bættu úr því í kosning-
unum þar á eftir með samfloti
við flugvallarvini og fengu
tvo borgarfulltrúa kjörna, þær
Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörns-
dóttur og Guðfinnu Jóhönnu
Guðmundsdóttur.
Kosningar Framboðslisti Fjöldi fulltrúa
94 - 02 Reykjavíkurlistinn 8
2006 Framsóknarflokkurinn 1
2010 Framsóknarflokkurinn 0
2014 Framsókn og flugvallarvinir 2
2018 Framsóknarflokkurinn 0
Flokknum hefur gengið betur
í samfloti við aðra síðustu ár
Við erum á frjálsum
markaði og þar gildir
ímyndin þín.
Starfshópur um samskipta- og
ímyndarmál þjóðkirkjunnar
12 Fréttir 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ