Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 19

Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 19
Stundum eru fótboltaguð- irnir bara einfaldlega í góðu skapi þegar deildarkeppnum er raðað upp. Á morgun verður nefnilega svakalegur sunnudagur þar sem Derby d’Italia er spilaður á Ítalíu, El Classico á Spáni, Le Classique í Frakklandi og meira að segja Pakistan mætir Ind- landi í krikket. Það verða þó allra augu á Leikhúsi draum- anna í Manchester þar sem erkifjendurnir í Liverpool mæta í heimsókn. Smurstöðin Klopp Jurgen Klopp er í öðru sæti í deildinni með Liverpool og kemur inn í leikinn eftir alveg svakalega góða frammistöðu gegn Watford. Þar virkaði Liver- pool sem vel smurð vél. Það er erfitt að sjá tapleik í kortunum þegar liðið spilar af slíkum krafti. Klopp bauðst að taka við Manchester United þegar hann var með Borussia Dortmund árið 2014 en hefur sagt að það hafi ekki verið rétti tímapunkturinn. Hann tók við Liverpool ári síðar og hefur umbreytt liðinu í eitt skemmtilegasta lið Evrópu. Liverpool spilaði gegn Atlet ico Madrid í vikunni í Meistara- deildinni þar sem Mo Salah, hver annar, skoraði eitt marka liðsins. Salah er búinn að spila þannig það sem af er að hann er besti leikmaður heims um þessar mundir. Og hann er að renna út á samningi. Er sagður vilja 400 þúsund pund á viku næstu árin. Það er í raun ótrúlegt að það þurfi einhvern samningafund. Enda hvert ætti skrefið að vera frá Liverpool? Það eru nefnilega fá lið betri í dag. Árangur Klopp eftir 163 leiki n Sigrar: 88 n Jafntefli: 44 n Tap: 31 n Sigurprósenta: 54% n Mörk skoruð: 333 n Mörk fengin á sig: 174 Leikir 207 Sigurleikir Manchester 81 Sigurleikir Liverpool 68 Jafntefli 58 Manchester United gegn Liverpool Titlar Liverpool Deildartitlar 19 Bikarmeistarar 7 Samfélagsskjöldurinn 15 Titlar innanlands 50 Evróputitlar 13 Titlar alls 64 Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas @frettabladid.is 100 mörk er Sadio Mane búinn að skora í deildinni. 22 mörk er Liverpool búið að skora í deildinni. 9 gul spjöld er Liver- pool búið að fá í deildinni. 61,1% er meðaltal Liverpool með boltann í átta leikjum í deildinni. 9 leikjum í röð er Mo Salah búinn að skora í. FÖGNUM VETRI Skoðaðu uppskriftirnar á íslensktlambakjöt.is MEÐ ÍSLENSKRI KJÖTSÚPU – NÁTTÚRULEGA Íslenska kjötsúpan er í grunninn alltaf eins, en samt einhvern veginn aldrei eins. Allir eiga sína uppáhalds kjötsúpu og hefðirnar, uppskriftirnar og leynihráefnin leynast í hverju eldhúsi. Frá upphafi landnáms hefur hún fært okkur yl í kroppinn og kraftmikla næringu – og öll viljum við meina að „okkar súpa“ sé best. Fögnum vetrinum með fjölbreyttri íslenskri lambakjötssúpu – náttúrulega. ÍSLENSKI KJÖTSÚPUDAGURINN VERÐUR HALDINN HÁTÍÐLEGUR Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG Í DAG, FYRSTA VETRARDAG, KL. 13–16. LAUGARDAGUR 23. október 2021 Íþróttir 19FRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.