Fréttablaðið - 23.10.2021, Síða 20

Fréttablaðið - 23.10.2021, Síða 20
Venjulegar fjölskyldur munar um minna. Íslenska krónan er komin í vaxta- hækkunarferli, einn vestrænna gjaldmiðla, þrátt fyrir að vextir á Íslandi séu þegar margfaldir á við það sem tíðkast í öllum helstu við- skiptalöndum okkar. Ástæðan er veikur gjaldmiðill sem hvergi er gjaldgengur utan íslenskrar land- helgi. Engin önnur lönd í okkar heimshluta eru farin að huga að vaxtahækkunum í miðjum heims- faraldri. Greiningardeild Landsbankans spáir 4,25 prósenta stýrivöxtum 2023, en þeir standa nú í 1,5 pró- sentum. Af þessu leiðir að vaxta- og greiðslubyrði íslenskra heimila og fyrirtækja hækkar til muna, en hún er nú þegar miklu þyngri en þekkist í öðrum löndum. Greiðslubyrði af 30 milljóna króna óverðtryggðu húsnæðisláni myndi þannig hækka um 36 þús- und krónur á mánuði, 432 þúsund krónur á ári. Venjulegar fjölskyldur munar um minna. Ekki má gleyma því að þessi hækkun kemur ofan á þá háu greiðslubyrði sem fyrir er. Íslensk fyrirtæki keppa á hverj- um degi við erlend fyrirtæki sem búa við allt annan fjármögnunar- veruleika en ríkir hér í landi krón- unnar. Enn fremur kallar sligandi greiðslubyrði heimila á íþyngjandi launakröfur sem draga enn frekar úr samkeppnishæfni íslenskra fyr- irtækja gagnvart erlendum keppi- nautum. Stærsta hagsmunamál íslensks Aðeins tveir kostir eru í boði n Í vikulokin Ólafur Arnarson Við mælum með BJORK@FRETTABLADID.IS almennings og atvinnulífs er traust- ur gjaldmiðill. Eina leiðin til að bæta varanlega fjármögnunarumhverfi heimila og fyrirtækja hér á landi, og þar með samkeppnishæfni Íslands, er að taka hér upp stöðugan gjald- miðil. Til þess eru tvær raunhæfar leiðir. Við getum annaðhvort tekið upp evru með inngöngu í ESB eða fest gengi krónunnar við evru með fulltingi Evrópska seðlabankans. Reynist seinni leiðin ófær er sú fyrri eini kosturinn. n Sóley Björg Ingibergsdóttir leyfði ljósmyndaranum Þór- dísi Erlu Ágústsdóttur að fylgja sér í lyfja- og geislameð- ferð og tvöfalt brjóstnám og verður í dag opnuð sýning með afrakstrinum. bjork@frettabladid.is Sóley var aðeins 25 ára þegar hún fékk þær fréttir að hún væri BRCA2 arf beri, þrátt fyrir að ekki væri þekkt áhætta um krabbamein í nánustu fjölskyldu hennar. Hún átti að hefja eftirlit fimm árum síðar en aðeins liðu tvö ár þar til Sóley sjálf fann hnút í brjósti og greindist í kjölfarið með brjóstakrabbamein. Þegar hún sá póst frá Þórdísi Erlu Ágústsdóttur ljósmyndara, þar sem hún leitaði að konu í meðferð til að taka þátt í vitundarvakningarverk- efni, ákvað hún að senda henni línu. „Fyrst átti ég bara að vera hluti af stóra verkefninu en eftir því sem leið breyttist planið og hún og Anna Margrét Bjarnadóttir, formaður Brakka samtakanna, vildu halda sýningu bara um mig. Í fyrstu var þetta allt mjög yfirþyrmandi en á sama tíma fannst mér ég þurfa að taka þátt, enda ótrúlega mikilvægt málefni.“ Sóley segist hafa ákveðið um leið og hún greindist að vera opin með sín veikindi á Instagram-síðu sinni, @soleybjorg, og segist hafa sótt mikinn styrk í skilaboð frá jafnvel ókunnugu fólki. Hún verður við- stödd opnunina ásamt fjölskyldu sinni og segir eftirvæntinguna mikla. Af hverju ekki ég? „Ég er búin að sjá nokkrar myndir og það var ótrúlega erfitt að sjá sumar af því ég man nákvæmlega hvernig mér leið þarna og þá ósjálf- rátt fer maður að hugsa til baka hversu veik ég var.“ Þórdís fylgdi Sóleyju alla leið og var tekið vel á móti þeim á spítal- anum, segir Sóley það jafnvel hafa minnkað stressið að hafa hana með. „Óþægilegasta myndin var samt þegar hún tók myndir af mér berri að ofan fyrir aðgerðina. Þarna stóð ég með mín brjóst og leið eins og ég ætti að skammast mín fyrir þau. Þau voru ekki fullkomin og ég er búin að hugsa mikið um það hvað fólk muni hugsa þegar það sér mig standa þarna með mín lafandi brjóst.“ Aðspurð segist Sóley ekki hafa efast um ákvörðunina en nokkrum sinnum hugsað sig um. „En ég end- aði alltaf á þeirri skoðun að ég hefði viljað að einhver annar hefði haft hugrekkið í þetta. Þannig, af hverju ekki ég?“ Sýningin Of ung fyrir krabba- mein verður opnuð í Gallery Ramskram, Njálsgötu 49, í dag, laugardag, en mun svo verða far- andsýning um landið. Í tengslum við sýninguna munu Brakka- samtökin halda fræðslufund 23. október um arfgeng krabbamein, BRCA og aðrar erfðabreytingar í Klínikinni, Ármúla. n Of ung fyrir krabbamein Sóley segir að eftir á að hyggja sé það gríðarlega dýrmætt fyrir sig að eiga myndir af öllu ferlinu en einnig fyrir fjöl- skyldu hennar þar sem þau fengu aldrei að koma með henni í neinar meðferðir vegna Covid-reglna.  MYNDIR/ÞÓRDÍS ERLA Sóley er spennt fyrir opnun sýningarinnar og segist hafa séð nokkrar myndir. Veitingastaðnum Gandhi Indverski veitingastaðurinn Gandhi er f luttur úr kjallaranum undir Skólabrú og í bjartara og betra hús- næði við Bergstaðastræti, þar sem Bernhöftsbakarí var áður til húsa. Hvað eru mörg B í því? Maturinn sem þar er boðið upp á er eins og hann gerist bestur og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem þú ert grænmetisæta, með glú- tenóþol eða einfaldlega gourmet aðdáandi. Eimbaðinu í Sundhöllinni Eimbaðið á bökkum nýju laugar- innar í Sundhöll Reykjavíkur er ekkert minna en hamingjunnar hof, en það er eitthvað í rými þess og lögun sem skapar einstaka stemningu á meðal sundlaugar- gesta, gott ef núið sem þar er að finna er ekki afslappaðra og hægara en gengur og gerist. n Edna Lupita Mastache, líf hennar og barátta við geðhvörf, er til umfjöllunar í heimildarmynd sem sýnd er í Bíó Paradís. Í einlægu viðtali í þessu tölu- blaði segir hún jafnframt sögu sína. Edna, sem er lærð leikkona, hefur lengi viljað nýta þá menntun sína, leiklist og listþerapíu, til bættrar andlegrar líðanar. Með stuðningi Hlutverkaseturs stofnaði hún leikhóp þar sem saman koma ólíkir einstaklingar og nota leik- tjáninguna til að vinna með tilfinningar. Sjálf segir Edna þá útrás geta jafnast á við tíma hjá sálfræðingi. Þótt undirrituð ætli alls ekki að mæla með að eitt komi í stað annars fagnar hún opinni umræðu um geðsjúkdóma, geðheilbrigði og ólíkar leiðar til bættrar geðheilsu. Saga um geð- hvörf í kvikmyndahúsi á Hverfisgötu er skref í rétta átt. Leiksýning um veröld stjórnleysis og örvæntingar hinum megin við götuna, í Þjóð- leikhúsi allra landsmanna, er af hinu góða. Og leikhópur sem notar slagorðið „geðveikt leikhús fyrir alla“, er svo sannarlega góð leið til að halda umræðunni um geðheilbrigði á lofti. Geggjað! n Geðveikt leikhús Saga um geðhvörf í kvik- myndahúsi á Hverfis- götu er skref í rétta átt. 20 Helgin 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 23. október 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.