Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 43
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna
dóttir (audur@vinnvinn.is) og Hilmar G.
Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is).
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Sviðsstjóri Viðskipta og markaðssviðs
Hæfniskröfur:
• A.m.k. 5 ára stjórnunarreynsla á sviði sem tengist helstu viðfangsefnum starfsins.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun á sviði starfsins er kostur.
• Reynsla af áætlanagerð, samningagerð og markmiðadrifinni verkefnastjórnun.
• Leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaður.
• Mikil færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki.
• Mjög gott vald á íslensku og ensku.
Umsóknarfrestur
er til og með 7. nóvember nk.
Sótt er um störfin á www.vinnvinn.is.
Markaðs og kynningarstjóri
Hæfniskröfur:
• Lágmark 3-5 ára reynsla af markaðs- og kynningarmálum.
• Háskólamenntun á sviði markaðsmála eða sambærilegra greina sem nýtist í starfi.
• Mjög góð þekking, færni og reynsla af stafrænni markaðssetningu og miðlun.
• Mjög gott vald á íslensku- og ensku og færni í textagerð.
• Færni í mannlegum samskiptum og mikil reynsla af teymisvinnu.
• Skapandi, jákvæð og lausnamiðuð nálgun í starfi.
Helstu viðfangsefni eru að leiða skapandi og skemmtileg markaðs- og kynningarmál Hörpu,
umsjón með mörkun auk þess að vera leiðtogi í stafrænni þróun í Hörpu. Yfirumsjón með vefsíðu,
samfélagsmiðlum, skjáum og kynningarefni í gestastofu. Leiðir markaðsráð rekstraraðila í Hörpu
og sér um innlend og erlend fjölmiðlasamskipti. Starfar í fjölbreyttum teymum þvert á félagið.
Langar þig á stóra sviðið?
Harpa hefur mótað sér jafnréttisstefnu,
hlotið jafnlauna vottun og er jafnframt aðili
að Jafnvægis voginni. Öll kyn eru hvött til að
sækja um laus störf hjá félaginu. Sjá nánar
um stefnur og starf semi félagsins á www.
harpa.is.
Við leitum að árangursdrifnu, skapandi og skemmtilegu fólki til að slást í góðan hóp.
Um er að ræða tvö lykilstörf á nýju Viðskipta- og markaðssviði hjá Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi
ohf. Við leitum annars vegar að leiðtoga í starf sviðsstjóra sem leiðir öflug teymi viðskipta- og
sölustjóra og hins vegar að drífandi hugmyndasmið í starf markaðs- og kynningarstjóra sem heyrir
undir sviðið. Hér er einstakt tækifæri fyrir kröftuga einstaklinga sem vilja taka þátt í lifandi starfsemi
og fjölbreyttum rekstri í tónlistar- og ráðstefnuhúsi allra landsmanna.
Helstu viðfangsefni eru forysta fyrir söluteymum á vettvangi viðburðahalds s.s. tónleika-
og ráðstefna, funda og sýninga o.fl. sem og þróun tekjuskapandi þjónustu við ferðamenn.
Markmiðadrifin áætlanagerð og eftirfylgni í tekjuöflun og nýtingu þjónustuþátta. Leiða öfluga sókn
ásamt viðskiptaþróun í samræmi við áherslur stefnumótunar Hörpu. Yfirumsjón með markvissu
markaðs- og kynningarstarfi sem styður við útleigu á rýmum og þjónustu, eigin viðburði og styrkir
Hörpu m.a. sem alþjóðlegt vörumerki. Sviðsstjóri situr í framkvæmdastjórn Hörpu.
Hlutverk Hörpu er að vera vettvangur fyrir
tónlistar- og menningarlíf sem og hvers
konar ráðstefnur, fundi og samkomur, inn-
lendar og erlendar. Hlutverk hússins er jafn-
framt að vera menningarmiðstöð fyrir alla
landsmenn og áfangastaður innlendra og
erlendra ferðamanna. Markmið félagsins er
að efla íslenskt tónlistar- og menningarlíf,
styrkja stöðu Íslands á sviði ráðstefnuhalds
og ferðaþjónustu og stuðla að öflugu
mannlífi í miðborginni. Harpa hefur hlotið
fjölda viðurkenninga og alþjóðlegra verð-
launa fyrir byggingarlist og aðstöðu.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 23. október 2021