Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 50
Stjórnarráðsfulltrúi
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til
umsóknar starf stjórnarráðsfulltrúa.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf fyrir einstakling sem er nákvæmur
í vinnubrögðum, býr yfir góðri hæfni í mannlegum samskiptum og skipulags-
hæfni. Leitað er eftir áhugasömum og jákvæðum starfsmanni sem hefur hald-
bæra reynslu af sambærilegu starfi.
Nánari upplýsingar um helstu verkefni, hæfni- og menntunarkröfur er að finna
á vefsíðu Starfatorgs.
Umsókn skal skilað rafrænt á Starfatorgi og með umsókn þarf að fylgja ítarleg
starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Verkefnastjóri hjá
framkvæmda- og tæknideild
Sveitarfélagið Árborg leitar að verkefnastjóra hjá fram-
kvæmda- og tæknideild, á mannvirkja- og umhverfissviði.
Um er að ræða starf sem felur í sér stjórnun verkefna á
sviðinu en einnig aðkomu að vali, þróun og innleiðingu á
rafrænum tæknilausnum.
Helstu verkefni
• Verkefnastjórnun í viðhaldi og nýframkvæmdum í sam-
ráði við stjórnendur sviðsins
• Val, þróun og innleiðing á rafærnum tæknilausnum
• Aðkoma að áætlanagerð, hönnun og útboðum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Verk, tækni-, byggingarfræðimenntun eða sambærilegt
nám
• Reynsla af ráðgjöf og verkefnastjórnun er æskileg
• Reynsal af áætlanagerð er æskileg
• Reynsla af verklegum framkvæmdum er kostur
• Reynsla af stjórnun starfsmanna á sambærilegu verks-
viði er kostur
• Reynsla og/eða þekking á þróun landupplýsingakerfa er
kostur
• Reynsla og þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga er kostur
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og rík
þjónustulund
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum er skilyrði
• Færni til að tjá sig í ræðu og riti
Vakin er athygli á stefnu Árborgar að jafna hlutfall kynjanna
í störfum og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika
sveitarfélagins.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig
viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Sigurður Ólafsson deildarstjóri framkvæmda- og tækni-
deildar, sigurdur.olafsson@arborg.is, sími 480 1500.
Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember n.k.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið á ráðningarvef
sveitarfélagsins, http://starf.arborg.is/
Iðnaðarmenn óskast
Vinnslustöðin hf. / Hafnareyri ehf. Hafnargötu 2 900 Vestmannaeyjar
Hafnareyri býður upp á margbreytileg störf og fjölbreytt verkefni þar sem hugvit, þekking
og kunnátta starfsmanna gegnir lykilhlutverki. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
Hafnareyri ehf. óska eftir að ráða vélvirkja, stálsmið eða starfsmann með sambæri-
lega iðnmenntun til starfa á þjónustuverkstæði fyrirtækisins.
Um er að ræða fjölbreytt störf í öflugum hópi starfsmanna sem vinnur
m.a. við eftirlit, þróun, endurbætur og viðhald tækja og búnaðar.
Vinnslustöðin hf. óskar eftir að ráða starfsmann í fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins.
Um er að ræða störf við vélgæslu og viðhald búnaðar og tækja í verksmiðjunni.
Upplýsingar veitir Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri í síma 698 2632
eða á netfangið trausti@vsv.is og Unnar Hólm, verksmiðjustjóri í síma 692 1281
eða á netfangið unnarh@vsv.is.
Umsókn skal skilað með tölvupósti á netfangið: trausti@vsv.is eða unnarh@vsv.is
Umsóknarfrestur er til og með 31. október nk.
Nánari upplýsingar:
Með iðnmenntun, reynslu eða í námi sem nýtist í starfi.
Sem getur unnið sjálfstætt og með lausnamiðaða hugsun.
Með áhuga á tækni og nýjungum.
Sem er jákvæður og tilbúinn að takast á við nýjungar í tækni.
Sem er stundvís og með góða samskiptahæfileika.
Við leitum að starfsmanni:
10 ATVINNUBLAÐIÐ 23. október 2021 LAUGARDAGUR