Fréttablaðið - 23.10.2021, Qupperneq 66
Skjólstæðingar
fara oft helst ekki
til læknis því þeir hafa
margir slæma reynslu
af heilbrigðiskerfinu,
finnst þeir oft mæta for-
dómum og að ekki sé
tekið mark á þeim.
Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir
Frú Ragnheiður tók til starfa
á Suðurnesjum 4. júní 2020.
Það árið voru heimsóknir í
bílinn alls 138, frá tíu körlum
og fimm konum. Á þessu ári
er talan komin upp í 22 og
heimsóknirnar orðnar fleiri.
„Þegar þarfagreining á þjónustu
Frú Ragnheiðar á Suðurnesjum
var gerð var talið að 38 einstakl-
ingar notuðu vímuefni um æð. Við
vitum því að fleiri einstaklingar
eru þarna úti og við viljum vera
til staðar fyrir fólk sem gæti nýtt
sér þessa þjónustu,“ segir Jóhanna
Björk Sigurbjörnsdóttir, verkefna-
stjóri Frú Ragnheiðar á Suður-
nesjum.
Frú Ragnheiður grípur einstakl-
inga sem nota vímuefni um æð.
„Við viljum að þau komi til
okkar til að fá skaðaminnkandi
leiðbeiningar og fræðslu um bæði
efni og búnað til vímuefnaneyslu.
Við athugum líka hvernig staða
þeirra er; hjálpum þeim jafnvel
að tengjast félagsráðgjafa og leita
til læknis. Skjólstæðingar fara oft
helst ekki til læknis því þeir hafa
margir slæma reynslu af heilbrigð-
iskerfinu, finnst þeir oft mæta for-
dómum og að ekki sé tekið mark á
þeim. Fólk hikar því oft við að leita
sér hjálpar en þá reynir Frú Ragn-
heiður að koma því til hjálpar.“
Meðal þess sem sjálfboðaliðar
Frú Ragnheiðar gera er að spyrja
skjólstæðinga sína hvaða vímuefni
þeir noti.
„Við biðjum alltaf um leyfi til að
spyrja og fræða. Þau sem sprauta
sig með vímuefnum um æð nota
bæði læknalyf og önnur efni, svo
sem kókaín, amfetamín og heróín,
sem komið er í umferð hér á landi,
en að mjög litlu leyti, tel ég. Sum
lönd skipta út heróíni fyrir morfín
því þá er vitað um innihaldsefnin.
Við ráðleggjum þeim hvernig
á að umgangast sum efnin með
skaða minnkun að leiðarljósi.“
Skilningur og umhyggja
Hjá Frú Ragnheiði er einstakling-
um í vímuefnavanda mætt eins og
þeir eru.
„Það er ekki alltaf sem fólk getur
verið edrú, og það hefur líka sín
mannréttindi. Fordómar og þekk-
ingarleysi almennings veldur því
að fólk er hrætt við einstaklinga
sem nota vímuefni, en mæti
einstaklingar í vímuefnavanda
skilningi og umhyggju verður
framkoma þeirra og viðhorf líka
annað,“ segir Jóhanna.
Sjálfboðaliðar Frú Ragnheiðar
eru líka ósparir á hvatningu og
huggunarorð.
„Með skaðaminnkun erum við
í raun að draga úr skaða sem af
vímuefnanotkun getur orðið. Við
skimum eftir því hvort skjólstæð-
ingar okkar séu í sjálfsvígshættu
og tökum stöðuna á því hvort
þeir sofi úti og lifi við óöruggar
aðstæður, sem er oft og iðulega.
Við bjóðumst til að keyra þau í
athvörf en sum kæra sig ekki um
að nýta sér þau og sofa heldur í
bílageymslum, stigahúsum eða við
aðrar hættulegar aðstæður. Við
erum því alltaf með tjöld, svefn-
poka og hlýjan fatnað til taks,
en margar prjónakonur styðja
Frú Ragnheiði með lopapeysum,
húfum, sokkum og vettlingum, og
erum við afar þakklát fyrir það.“
Hægt er að hringja í Frú Ragn-
heiði Suðurnesjum í síma 783
4747 eða senda einkaskilaboð
á Facebook-síðunni Frú Ragn-
heiður Suðurnes. Þá kemur bíllinn
þangað sem óskað er.
„Þau sem koma til okkar eru
ánægð með þjónustuna og treysta
okkur. Þau sýna líka eindreginn
samstarfsvilja og vilja gera vel.
Við kennum þeim að meðhöndla
búnaðinn og skila notuðum
búnaði til förgunar, svo börn finni
hann ekki í umhverfinu. Það skilja
þau algjörlega og biðja alltaf um
box til að gera rétt,“ segir Jóhanna.
Hún bætir við að enginn ætli sér
að lenda á götunni. „Það býr alltaf
eitthvað að baki og það hefur verið
sýnt fram á að vímuefnanotkun
tengist gjarnan áföllum á lífsleið-
inni. Margir eru mjög berskjald-
aðir eftir áfall ofan í áfall.“
Fólk eins og ég og þú
„Mér finnst málaflokkurinn
áhugaverður. Ég er í meistaranámi
í félagsráðgjöf og finnst sjálfboða-
starfið góð reynsla samhliða nám-
inu,“ segir Sigfríður Ólafsdóttir sem
starfað hefur sem sjálfboðaliði hjá
Frú Ragnheiði Suðurnesjum frá því
í fyrrasumar.
„Starfið er aðeins öðruvísi en ég
gerði mér í hugarlund. Á vaktinni
veiti ég sálrænan stuðning, spjalla
við þá sem koma, gef þeim hreinan
búnað, næringu, fatnað og skaða-
minnkandi leiðbeiningar.“
Sigfríður segir starfið gefandi.
„Það er misjafnt hvernig liggur á
þeim þegar þau sækja þjónustuna
en oft eru þau tilbúin að opna á
áfallasöguna sína en einnig ræðum
við líka bara daginn og veginn.“
Sigfríður ber hlýhug til einstakl-
inganna sem nýta sér þjónustu Frú
Ragnheiðar.
„Þótt ég hafi ekki haft fordóma
gagnvart einstaklingum sem nota
vímuefni hef ég nú lært enn meira
um málaflokkinn og skil margt svo
miklu betur en ég gerði áður. Þetta
er fólk eins og ég og þú, nema það
notar vímuefni. Flest þeirra mæta
miklum fordómum í samfélaginu.“
Sigfríður telur að fræða þurfi
almenning svo fólk geti mætt ein-
staklingum í vímuefnavanda þar
sem þeir eru staddir.
Hún hafði áhyggjur af því að geta
ekki sleppt hugsunum af skjól-
stæðingum sínum á kvöldin.
„En það rændi mig ekki nætur-
svefni. Almennt kveðjast allir sáttir
og maður hefur gert allt sem maður
getur gert hverju sinni.“ ■
Hjálpin kemur
til þeirra
Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir verkefnastjóri og Sigfríður Ólafsdóttir sjálfboðaliði hjá Frú Ragnheiði Suðurnesjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bolungarvíkurkaupstaður
Sveitarfélagið Ölfus
Þjónustustofa ehf
Hársnyrtistofan Nína ehf
Malbikunarstöðin Höfði
Fjárhald ehf
Óskirnar þrjár ehf.
Sjúkranuddstofa Óskars ehf.
Síldarvinnslan hf.
Eðalbílar ehf.
Útgerðarfélagið Gummi ehf
Gistihúsið Seljavellir ehf.
OSN ehf
Landssamband lögreglumanna
Trausti fasteignasala ehf.
THG Arkitektar ehf.
GR Verk ehf
Þ.S. Verktakar ehf.
Vísir hf
Argos ehf arkitkektar stofa Grétars og
Stefáns.
Baugsbót ehf
Brauðhúsið ehf
Blikksmiðjan Vík
Úti og Inni arkitektar
Hótel Leifur Eiríksson ehf
Hjallastefnan ehf.
Netorka hf.
Geir ehf útgerð
Málarameistarar ehf.
Wurth á Íslandi ehf.
SR-Vélaverkstæði hf.
Samtök sveitarfélaga á Vesturla
Hlíð ehf
BSRB
SSF
Ráðhús ehf
Rafmiðlun hf.
Þorsteinn Bergmann ehf
Hvalur
PFAFF hf.
Loftorka hf
Múlaradíó ehf.
Eldvarnarþjónustan ehf.
Höfðakaffi
Landsnet hf.
Blómasetrið ehf.
Terra Efnaeyðing hf
Ísfell ehf.
Verkval ehf
Bílasmiðurinn
Ósal ehf
Endurskoðun Vestfjarða ehf.
Grófargil ehf
Klausturkaffi ehf
Egilsstaðahúsið ehf
Íslensk verðbréf hf.
Samstaða stéttarfélag
Veiðivon ehf
Efling stéttarfélag
Ásvélar ehf
Þórsberg ehf.
Nonni litli ehf
Járnsmiðja Óðins
Verslunartækni og Geiri ehf
Fiskbúð Hólmgeirs ehf.
DMM Lausnir
Sveitarfélagið Hornafjörður
Endurskoðun Helga Númasonar ehf
Ós ehf
Fjallasýn Rúnars Óskarssonar ehf
SE ehf
Bókráð bókhald og ráðgjöf
Samvirkni ehf
Rósaberg ehf
Verktækni ehf
Hveragerðissókn
Tölvar ehf
Garðabær
Brunavarnir Suðurnesja
DS Lausnir
Skólavefurinn ehf
Segull ehf.
Dýralæknirinn á Breiðdalsvík
Halldór Ólafsson úr og skartg.
Sæfell ehf
Ottó B. Arnar ehf.
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
Tannlæknastofa A.B. slf.
SS gólf ehf
Gróðrarstöðin Réttarhóll ehf.
Útilegumaðurinn ehf.
Rafsvið sf
Gjögur ehf
Tannréttingar sf.
Smurstöð Akraness
Norm X ehf.
Gasfélagið ehf
Rarik
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða
Hlaðbær Colas
Fjárstoð ehf.
Vagnar og þjónusta ehf
Flóahreppur
Laugarnesskóli
Sjúkrahúsið á Akureyri
SÍBS
Orkubú Vestfjarða ohf.
N1 ehf.
Akureyrarbær
Manna ehf.
Míla ehf.
Hreinsitækni ehf
Valafell ehf.
Framtal sf.
Arkitektastofan OG ehf.
B.R. Sverrisson ehf
First Class ehf.
Beyki ehf
Reykjaprent ehf.
Fjallabyggð
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu
Íslensk erfðagreining
Við þökkum fyrir stuðninginn
6 23. október 2021 LAUGARDAGURHJÁLPIN