Fréttablaðið - 23.10.2021, Síða 78
Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Friðrik Friðriksson
lést í faðmi fjölskyldu sinnar
laugardaginn 16. október á
Hjúkrunarheimilinu Grund. Útförin fer
fram miðvikudaginn 27. október
kl. 13.00 í Fíladelfíukirkju.
Ársæll Friðriksson Björk Georgsdóttir
Símon Friðriksson Guðrún Hjálmarsdóttir
Hildur S. Friðriksdóttir
Kristin H. Friðriksdóttir Sigurður Þ. Sigurðsson
Ragnheiður E. Friðriksdóttir Arnar H. Ottesen Arnarson
afabörn, langafabörn og langalangafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Björgvin Þorsteinsson
hæstaréttarlögmaður,
Lindargötu 27, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans
þann 14. október. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju þann 27. október kl. 15.00.
Útförinni verður streymt: www.sonik.is/bjorgvin
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð blóð- og
krabbameinslækningadeilda LSH.
Jóna Dóra Kristinsdóttir
Steina Rósa Björgvinsdóttir
Kristinn Geir Guðmundsson Sylvía Rún Ellertsdóttir
Afabörn: Sindri Þór, Kolbrá Sól, Styrmir Jökull,
Katla Nótt, Ellert Úlfur, Emil Huginn, Urður Eldey,
Agla Eilíf og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sigurður Ólafsson,
frá Hábæ, Þykkvabæ,
Skyggnisbraut 26-28, Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans
þann 14. október. Útför hans fer
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Herdís Hallgrímsdóttir
Hildur Sigurðardóttir Robert W. Black
Ólafur Sigurðsson Sonja Schaffelhoferova
Guðrún Á. Sigurðardóttir Vilhjálmur Ó. Sverrisson
Már Ásþórsson Sune Petersen
Grímur Steinn, Anna Karen, Jakob Elías, Ásta og Veronika
Elskulegur bróðir okkar,
mágur og frændi,
Ólafur Ólafsson
(Óli ljós)
lést á heimili sínu Svöluhrauni 19
þann 1. október sl. Útför hefur farið fram.
Þökkum samhug og hlýjar kveðjur.
Hjartans þakkir til yndislegs starfsfólks á Svöluhrauni 19.
Vigdís Ólafsdóttir Agnar Ernuson
Jóna Guðrún Sigurðardóttir
Þorlákur Magnús Sigurðsson
og frændsystkini.
Bróðir okkar,
Skapti Þorgrímsson
Esjugrund 5, Kjalarnesi,
lést 16. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu,
þriðjudaginn 26. október kl. 11.
Einar Þorgrímsson
Sigríður Anna Þorgrímsdóttir
Ástkæri eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, stjúpfaðir og afi okkar,
Stefán B. Ólafsson
(Stebbi í Crawford)
framkvæmdastjóri,
varð bráðkvaddur 13. október.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju
5. nóvember klukkan 15.
Athöfninni verður streymt á mbl.is/andlat
Ingunn Magnúsdóttir
Valgerður Stefánsdóttir Kristján Þór Hlöðversson
Agla Marta Stefánsdóttir
Daníel Traustason
Róbert Traustason Anna Einarsdóttir
og afabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Guðrún Garðarsdóttir
(Dúna)
Kirkjubraut 50, Akranesi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
laugardaginn 16. október. Útför hennar
fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 25. október kl. 13.
Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju
www.akraneskirkja.is
Karl Örn Karlsson
Rakel Karlsdóttir Bjarni Árnason
Styrmir Karlsson Hulda Sigmarsdóttir
Sara Björk, Benjamín Karl, Tristan Bjarki,
Sigmar Örn og Baldur Hrafn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
dóttir, systir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hrafnhildur Einarsdóttir
lést sunnudaginn 17. október á
hjúkrunarheimilinu Hömrum í
Mosfellsbæ. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 28. október
klukkan 11.00. Þeim er vilja minnast hennar er bent á
Alzheimersamtökin.
Guðmundur Konráð Rafnsson
Karlotta Ósk Óskarsdóttir
Hilmar Örn Óskarsson Helga Þóra Ármann
Auður Gréta Óskarsdóttir Pétur Snorrason
Guðjón Ö. Guðmundsson Tavonna N. Strømsengbakken
Einar H. Guðmundsson Ólöf Lára Jónsdóttir
systkini, barnabörn og barnabarnabarn.
Bróðir okkar, mágur og frændi,
Guðmundur Guðjón
Eggertsson
Hjúkrunarheimilinu Fellsenda,
Dölum, áður til heimilis að
Suðurgötu 78, Akranesi,
lést þriðjudaginn 5. október á Hjúkrunarheimilinu
Fellsenda. Útförin hefur farið fram með nánustu
fjölskyldu.
Systkini og fjölskyldur hins látna.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Júlíana Kristín Jónsdóttir
(Stella)
frá Flateyri,
lést 20. október á hjúkrunarheimilinu
Eyri á Ísafirði. Útför hennar fer fram
í Flateyrarkirkju, laugardaginn 30. október kl. 11.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku systir okkar og mágkona,
Ólöf Erna Óskarsdóttir
lést á heimili sínu 23. september.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 26. október kl. 15.
Dóra Björg Óskarsdóttir
Hallgrímur Helgi Óskarsson Pálína H. Magnúsdóttir
Fimmaurabrandarafjelagið gaf
nýlega út sína þriðju bók og nýta
aulahúmorinn aftur til að styðja
við gott málefni.
arnartomas@frettabladid.is
„Það er von að þú spyrjir,“ segir Kristján B.
Heiðarsson, formaður Fimmaurabrand-
arafjelagsins, aðspurður hvort fimmaura-
brandarar séu gengisháðir. „Þetta er alltaf
skemmtilegt, en spurningin er stundum
hvort þetta séu tveir aurar eða sjö.“
Þriðja bók félagsins var nýlega gefin út
og er stútfull af vel völdum fimmaura-
bröndurum frá meðlimum þess. En
hvað er fimmaurabrandari og hvar liggja
mörkin?
„Þessi spurning er eiginlega meira
heimspekilegs eðlis,“ segir Kristján. „Ég
hef oft skilgreint fimmaurabrandara
þannig að hann sé svo slæmur að það sé
eiginlega fyndnara að sjá ofnæmisvið-
brögð fólks sem heyrir hann en brandar-
inn sjálfur. En fólk hefur skiptar skoðanir
á þessu.“
Félagið var stofnað á Facebook árið
2013 og telur nú tæplega 26 þúsund með-
limi og segir Kristján að þeim fjölgi enn.
„Það bætast við tugir í hverjum mánuði,“
segir hann og bætir við að meðlimirnir
séu á öllum aldri. „Þetta er allt frá gömlu
ömmunum sem eru að prófa Facebook
yfir í krakkana sem eru nýbúnir að fá að
stofna aðgang.“
Húmorinn gerir gott
Samhliða útgáfu fyrstu bókarinnar
styrkti Fimmaurabrandarafjelagið
Krabbameinsfélag Íslands um 100 þús-
und krónur og verður haldið í hefðina að
styðja við gott málefni.
„Covid vandaði aðeins að styrk yrði
úthlutað fyrir aðra bókina, en við
stefnum á að gera það samhliða styrk-
veitingu fyrir nýju bókina,“ segir Krist-
ján. „Við höfum annars tekið þann pól í
hæðina að allt sé þegar þrennt er svo það
er allavega ekki á döfinni að gefa út fjórðu
bókina í þessari ritröð. En það er auðvitað
nóg eftir af bröndurum!“ n
Fimmaurarnir draga enn að
Ljósmyndari
náði mynd
af Kristjáni
í brandara-
geymslunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Ég hef oft skilgreint fimm
aurabrandara þannig að
hann sé svo slæmur að
það sé eiginlega fyndnara
að sjá ofnæmisviðbrögð
fólks sem heyrir hann en
brandarinn sjálfur.
38 Tímamót 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ