Fréttablaðið - 23.10.2021, Qupperneq 86
njall@frettabladid.is
Forlagið hefur gefið út bókina Bíla-
menningu eftir Örn Sigurðsson, en
hún inniheldur 154 kafla um bíla og
bílamenn. Hér eru bílar almennings,
lögreglu og slökkviliðs; trukkar
jafnt sem eðalvagnar, keppnisbílar,
jeppar, vörubílar, húsbílar og snjó-
bílar, svo fátt eitt sé talið.
Auk þess er f jallað á nýstár-
legan hátt um fjölmargt annað sem
tengist bílum, svo sem bensín- og
smurstöðvar, verkstæði, bílasölur,
hjólhýsi, leikföng, söfn og sýningar,
að ógleymdri vega- og gatnagerð.
Íslenskar yfirbyggingar, einstakt
númerakerfi, sölunefndin og ára-
l ö ng b a r át t a
bíleigenda við bifreiðaeftirlitið
fær sinn skerf, líkt og H-dagurinn
og ungir vegfarendur. Íslendingar
hafa ekki fremur en aðrir farið var-
hluta af þeirri áhugaverðu þróun
bílamenningar sem hér er fjallað
um á 320 síðum, en auk texta prýða
bókina yfir þúsund ljósmyndir sem
margar hafa hvergi sést áður. ■
Ný bílabók komin út
Bókin Bílamenn-
ing er eftir Örn
Sigurðsson sem
skrifað hefur
fleiri bækur um
bíla og bíla-
tengd efni.
Bílarnir heita því sérstaka
nafni e:NP1 og e:NS1 og verða
mögulega kynntir í Evrópu
strax á næsta ári.
njall@frettabladid.is
Honda hefur sett tvo nýja rafbíla á
markað í Kína og er e:NP1 rafdrif-
inn jepplingur og e:NS1 sportútgáfa
hans. Munu þeir fara í sölu í Kína
snemma næsta vor og verða smíðað-
ir af samstarfsaðilum Honda í Kína.
Orðrómur er uppi um að bílarnir
verða einnig seldir á öðrum mark-
aðssvæðum og þá einnig í Evrópu.
Bíllinn virðist vera af minni gerð
jepplinga og mun því líkast til keppa
við bíla eins og Hyundai Kona
Electric og Peugeot e-2008. Eins og
sjá má er útlitið mjög svipað e:Con-
cept-tilraunabílnum og byggir að
miklu leyti á útliti HR-V. Komnar
eru afturhurðir á nýju bílunum en
framendi bílsins virðist að mestu
óbreyttur. Eina breytingin er sú að
myndavélar í stað spegla verða ekki
í framleiðslubílunum, allavega ekki
til að byrja með.
Að innan verður stór upplýs-
ingaskjár fyrir framan bílstjórann
og risastór 15 tommu snertiskjár í
miðjustokki. Bílarnir verða fram-
drifnir og eru sagðir hafa allt að
500 km drægi svo að rafhlaðan er af
stærri gerðinni. Samkvæmt skrán-
ingarupplýsingum í Kína verða
bílarnir með 180 og 201 hestafla
rafmótorum og hámarkshraðinn
því aðeins 150 km á klukkustund.
Bílarnir eiga líka að vera vel búnir
öryggisbúnaði eins og 360 gráðu
akstursaðstoð sem líklega er eins
konar árekstrarvörn. Að sögn Jean-
Marc Streng, forstjóra Honda í
Bretlandi, er von á nýjum rafbíl frá
Honda í Evrópu 2023, svo að ef um
þennan bíl er að ræða er líklegt að
hann verði kynntur seint á næsta
ári. ■
Honda setur tvo nýja
rafbíla á Kínamarkað
Honda e:NP1 og e:NS1 svipar mjög til e:Concept-tilraunabílsins með sams konar framenda en komnir eru hliðar-
speglar í stað myndavéla.
njall@frettabladid.is
Nýr Range Rover verður frum-
sýndur í næstu viku en myndum af
bílnum var nýlega lekið á netið. Nóg
hefur verið birt af njósnamyndum
af bílnum sem við fyrstu sýn virð-
ist ekki breytast mikið útlitslega.
Áherslan virðist vera á að mýkja
ríkjandi línur hans en mestar breyt-
ingar er að sjá á afturhluta hans. Þar
hafa afturljósin verið endurhönnuð
algjörlega og nær ljósaröndin yfir
allan afturhlerann í stíl við tísku
dagsins í dag. Að innan virðist vera
kominn nýi 11,4 tommu Pivi Pro
snertiskjárinn.
Bíllinn verður byggður á nýja
MLA Flex undirvagninum og er
fyrsti bíll Land Rover til að koma á
honum. Sá undirvagn er fjölhæfur,
og mun geta notast við bruna-
hreyf la, tengiltvinnútfærslur eða
100% rafmagn. Það verður því
athyglisvert að sjá hvaða útgáfur
verða í boði þegar bíllinn verður
frumsýndur 26. október næstkom-
andi. Líkast til kemur þó rafdrifin
útgáfa hans ekki fyrr en 2024 ef
marka má heimildir. ■
Fyrstu myndir af nýrri
kynslóð Range Rover
Mesta breytingin er á afturenda
nýs Range Rover sem frumsýndur
verður í næstu viku.
njall@frettabladid.is
SsangYong-bílaframleiðandinn
frá Suður-Kóreu hefur verið í fjár-
hagsvandræðum undanfarið ár, en
Ssang Yong sótti um gjaldþrota-
skipti í desember síðastliðnum.
Þá komst gjaldþrotadóm-
stóllinn að þeirri niðurstöðu
að best væri fyrir merkið að
endurskipuleggja reksturinn,
en indverki risinn Mahindra
hefur viljað selja 75% hlut
sinn síðan í júní í fyrra. Fyrir-
tækið sem ætlar að yfirtaka Ssang-
Yong er tiltölulega ungt og óþekkt
og kallast Edison Motors. Það hefur
hingað til framleitt vinnubíla
en mun með kaupunum eignast
fólksbílalínu SsangYong.
SsangYong, sem er fjórði stærsti
b í l a f r a m -
leiðandi Suður-Kór-
eu, er með metnaðarfullar
áætlanir á prjónunum. Stutt er í að
rafdrifin útgáfa Korando-jepp-
lingsins komi á markað og von er
á bíl sem kallast J100
sem er stór jepplingur sem keppa
á við Dacia Bigster. Edison Motors
áætlar að fjárfesta í SsangYong fyrir
um 100 milljarða íslenskra króna
og gera merkið að samkeppnisaðila
Tesla og VW svo dæmi sé tekið. ■
Yfirtaka á SsangYong-bílamerkinu
frá lítt þekktum framleiðanda
njall@frettabladid.is
Tesla hefur gefið upp hagnað merkis-
ins á þriðja ársfjórðungi 2021 og er
óhætt að segja að hagnaðurinn hafi
tekið stökk upp á við. Fjórfaldaðist
hagnaður milli ársfjórðunga og var
hann 1,6 milljarðar dollara. Er það
aukin framleiðsla Tesla sem drífur
áfram hagnaðinn en fyrirtækið
framleiddi 240.000 bíla frá 1. júlí til
30. september. Það er 64% aukning
milli ára þrátt fyrir skort á íhlutum
sem plagað hefur marga framleið-
endur. Tesla er nú með fjórar risa-
verksmiðjur í Sjanghæ, Kaliforníu,
Texas og Berlín. Auk þess hafa nýj-
ustu bílar merkisins, Tesla Model 3
og Model Y, verið mun meiri sölubíl-
ar heldur en Model S og Model X. ■
Methagnaður hjá Tesla
Mikil sala á Model 3 og Model Y er
helsta ástæðan fyrir hagnaði Tesla
en báðir þessir bílar hafa selst í
miklu magni hérlendis.
Honda e:NS1 er sportlegri útgáfa og þá líklega með 201 hestafls rafmótor.
Orðrómur er uppi
um að bílarnir verði
einnig seldir á öðrum
markaðssvæðum og þá
einnig í Evrópu.
Korando EV jepplingurinn
er handan við hornið
ef allt gengur eftir
hjá Edison
Motors.
!"#!"$
!"#$%&'&
Kíktu í heimsókn!
Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is
Vandaðir sófar
frá Franco Ferri Sjá nánar
á patti.is
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 23. október 2021 LAUGARDAGUR