Morgunblaðið - 15.07.2021, Side 2

Morgunblaðið - 15.07.2021, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 Verona Verð frá kr. 19.950 önnur leið m/ handfarangri Verð frá kr. 39.900 báðar leiðir m/ handfarangri TAKTU FLUGIÐ TIL ÍTALÍU Í SUMAR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bitvargurinn lúsmý (Culicoides re- conditus), sem er blóðsuga á mönn- um og öðrum spendýrum, hefur numið ný svæði á Íslandi. Nátt- úrufræðistofnun Íslands birti grein um þessa tegund lúsmýs árið 2019 og þá var aðalútbreiðslusvæði þess Suðvesturland upp í Borgarfjörð og austur í Fljótshlíð. Einnig fannst það í Eyjafirði. Nú hefur þess einnig orðið vart m.a. í Stykkishólmi, Húnavatnssýslu og í Fnjóskadal. Gísli Már Gíslason, prófessor em- eritus í vatnalíffræði við HÍ, segir að lúsmýið sé nokkuð algengt í sveitum Suðurlands og í Fljótshlíð. Þá sé það mjög algengt á Vesturlandi, t.d. í Kjósinni, Hvalfjarðarsveit og í Borg- arfirði og nú komið víðar. „Sjálfur var ég bitinn fyrir ári í Miðfirði í Húnavatnssýslu og ég veit að fólk hefur verið bitið í Eyjafirði og í Vaglaskógi í Fnjóskadal. Svo var ég að frétta af fólki sem var illa bitið í Helgafellssveit,“ sagði Gísli. Hann kveðst telja óhætt að telja að lúsmý sé nú að finna víða inn til landsins á Suðurlandi vestan Mark- arfljóts, á Vesturlandi og Norður- landi allt austur í Fnjóskadal. Ekki hefur frést af því utarlega á Snæ- fellsnesi, á Vestfjörðum, í Þingeyj- arsýslum nema í Fnjóskadal, né heldur á Austfjörðum og Suðaust- urlandi. Mikil sala í vörnum gegn biti Róbert Arnar Stefánsson, líffræð- ingur og forstöðumaður Náttúru- stofu Vesturlands, býr í Stykkis- hólmi. „Við urðum fyrst vör við lúsmý hér í Stykkishólmi helgina 3.-4. júlí. Þá var mjög stillt veður og hlýtt. Ég hafði aldrei heyrt af lúsmýi hér fyrir þann tíma. Við hér á heimilinu vor- um bitin. Ég fór í apótekið í Stykkis- hólmi og starfsfólkið sagði að mikið hefði verið keypt af vörum gegn mý- biti,“ sagði Róbert. Hann segir ekki fara á milli mála að um lúsmý hafi verið að ræða. „Mér finnst líklegt að fyrst það er hér þá sé það komið víð- ar,“ sagði Róbert. Bitvargurinn lúsmý er um 2 milli- metrar á lengd en bitmý, mývargur, er miklu stærra eða 8-10 millimetra langt. Bitmýið setur undir sig haus- inn eins og vísundur. Það finnst víða um land. Kvendýrið þarf að fá blóð Gísli segir að sjö tegundir lúsmýs finnist hér á landi en aðeins ein þeirra bíti fólk og spendýr. Hinar tegundirnar eru rándýr á öðru mýi. Kvenflugur tegundarinnar sem bít- ur þurfa blóð til að geta þroskað egg. Fái þær ekki blóð geta þær ekki orp- ið eggjum. Lúsmýið getur illa athafnað sig ef það hreyfir vind. Þess vegna verður þess síður vart við sjávarsíðuna en inn til landsins. Gísli benti á að fólk byggi sumarhús sín gjarnan á skjól- góðum stöðum og rækti tré til skjóls við bústaðina. Þar með eru skapaðar góðar aðstæður fyrir lúsmý til að at- hafna sig. Í híbýlum getur verið gott að hafa viftur til að trufla lúsmýið. Útbreiðsla lúsmýs *Heimild: Náttúrufræðistofnun Fundarstaðir skv. eintökum í safni Náttúrufræði- stofnunar árið 2019* Aðrir staðfestir fundarstaðir Áætluð útbreiðsla lúsmýs Lúsmýið hefur numið ný svæði - Lúsmý hefur nú bitið fólk í Stykkishólmi, Húnavatnssýslu og Fnjóskadal - Lúsmýið er ekki nema um tveggja millimetra langt - Bitmýið sem finnst víða um landið er 4-5 sinnum lengra Guðni Einarsson gudni@mbl.is GPS-stöð Jarðvísindastofnunar HÍ og jarðskjálftamælir Veðurstof- unnar urðu hraunstraumi frá gígn- um í Geldingadölum að bráð. Tækin voru um 15 metra uppi í hlíð um 500 metra beint austur af gígnum. Hæð- in lokaðist tiltölulega fljótt af vegna hraunflæðis. Halldór Geirsson, jarðeðlisfræð- ingur og dósent við HÍ, sagði að þessi staðsetning hefði talist til- tölulega örugg. „En þegar hraun- flæðið beindist allt niður í Meradali þá breyttist þetta mjög hratt. Hraunið hefur nú víða runnið yfir þennan háls,“ sagði Halldór. Allt leit þetta vel út á sunnudag í vefmyndavél. Hraunið fór svo að fikra sig nær á sunnudagskvöld. Fjarskiptabúnaður stöðvanna bilaði fyrir um tíu dögum og átti að laga hann. Á mánudag sást að hraunið var komið mjög nærri stöðvunum og var þá ákveðið að reyna að bjarga þeim. Farið var með þyrlu eftir há- degi á þriðjudag á staðinn en þá voru stöðvarnar komnar undir hraun. Halldór sagði það hafa komið á óvart hvað hraunið hækkaði hratt. Tjónið nemur nokkrum milljónum króna. „Það er töluvert af mælistöðvum í nágrenninu en þessi stöð var næst gígunum,“ sagði Halldór. „GPS- stöðin mældi sig sem hefur orðið samfara gosinu mjög vel. Hún var búin að síga um fjóra sentimetra frá því að gosið hófst og þar til hún datt út. Sigið er líklega að mestu vegna þess að kvika er að fara úr jarð- skorpunni.“ Stöðin nýttist einnig mjög vel þeg- ar ný gosop opnuðust. Við hvert gos- op myndaðist lítill gangur í efstu 200-300 metrunum út frá stóra kvikuganginum sem myndaðist í mars. Þetta var eina síritandi stöðin sem náði því merki. Nú er til skoð- unar að setja fleiri svona stöðvar á hæðir í kringum gíginn. Eitt af hraunrennslislíkönunum sem gerð voru tiltölulega snemma í eldgosinu spáði því að hraun gæti einhvern tíma runnið um þetta skarð. Hraunið gleypti mæli- tækin næst gígnum - GPS-stöð og jarðskjálftamælir hurfu undir hraunið Ljósmyndir/Halldór Geirsson Horfin Mælistöðin var þar sem rautt X er merkt inn á myndina. Hraunið gleypti hana líklega á mánudaginn var. Tjónið hleypur á milljónum. Mælistöðin Um var að ræða jarðskjálftamæli frá Veðurstofunni og GPS- mæli frá Jarðvísindastofnun HÍ sem mældi hreyfingar yfirborðsins. Pólski flugherinn undirbýr nú brottför flugsveitar til Íslands til að gæta loftrýmis Íslendinga. Er þetta í fyrsta skipti sem pólski flugherinn tekur að sér þetta verk- efni. Í fréttabréfi pólska varnarmála- ráðuneytisins, Polska Zbrojna, er haft eftir Michal Kras, yfirmanni flughersins, að herliðið verði tilbú- ið að fara í loftið allan sólarhring- inn, sjö daga vikunnar. Verkefnið sé sambærilegt því sem Pólland þekki nú þegar af því að gæta loft- rýmis Eystrasaltslandanna. Hann bendir meðal annars á að staðsetning Íslands sé einstök fyrir eftirlit Atlantshafsbandalagsins með Norður-Atlantshafinu. Íslenskt veðurfar og síbreytileiki þess var tekið til sérstakrar skoð- unar við undirbúninginn að sögn Kras. Einnig var litið til kulda Norður-Atlantshafsins og munu hermenn klæðast sérstökum sjó- búningum af öryggisástæðum. Það verður ný reynsla fyrir her- liðið að vinna með Landhelgisgæsl- unni, að sögn Kras, því hingað til hefur pólski flugherinn aðeins unn- ið slík verkefni í samvinnu við önn- ur heryfirvöld. Pólverjar gæta loft- rýmis Íslendinga - Íslenskt veðurfar tekið með í reikninginn AFP Herþota Þoturnar eru af gerð F-16.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.