Morgunblaðið - 15.07.2021, Síða 40

Morgunblaðið - 15.07.2021, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 1428 Sundkjóll 15.990 kr Stærðir 42-56 Bikiní haldari 8.990 kr C-H skálar Bikiní haldari 8.990 kr Stærðir 42-54 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Gleðiskruddan er nýútgefin dagbók fyrir börn og ungmenni sem eflir sjálfsþekkingu og eykur vellíðan. Konurnar á bak við bókina eru þær Yrja Kristinsdóttir og Marit Davíðs- dóttir en þær mættu í morgunþáttinn Ísland vaknar á dögunum og ræddu um bókina sem byggist á jákvæðri sálfræði. „Það er algengur misskilningur að jákvæð sálfræði sé eins konar ham- ingjufræði, þar sem við höfnum erf- iðum tilfinningum. En það sem já- kvæð sálfræði hefur sýnt og hefur verið rannsakað er að það er alls ekk- ert gott og mun ekki leiða til neins góðs ef þú ferð að hafna erfiðum til- finningum. Þú verður bara að finna leið til að taka þær í sátt og finna uppbyggilegar leiðir til að takast á við allt mótlætið sem þú verður fyr- ir,“ útskýrðu vinkonurnar. Gleðiskruddan er afurð lokaverk- efnis Maritu og Yrju í jákvæðri sál- fræði en þær unnu að henni í eitt og hálft ár. Bókin telur 100 daga og er rauður þráður bókarinnar, að sögn Matiru og Yrju, æfing sem heitir „þrír góðir hlutir“ og á eigandi bók- arinnar að skrifa niður þrjá góða hluti á hverjum degi og komast að því hvernig viðkomandi tók þátt í þeim. „Við fengum rosalega góð við- brögð og foreldrarnir voru mjög ánægðir. Það var óvæntur kostur bókarinnar að þetta jók samveru barns og foreldris sem okkur finnst svo skemmtilegt. Svo hefur þetta svona margföldunaráhrif þar sem foreldrarnir fara auðvitað líka að pæla í þessum hlutum og gera æf- ingarnar,“ sögðu þær stöllur í við- talinu. Hlustendur og lesendur K100 fá 10% afsláttarkóða í netverslun Gleðiskruddunnar, gleðiskrudd- an.is, en kóðinn, K100, er virkur fram að helgi. Eflir sjálfsþekkingu og eykur vellíðan Jákvæð Gleðiskruddan, dagbók fyr- ir börn og ungmenni, er nú fáanleg. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Leikkonan Íris Tanja hefur sann- arlega vakið athygli um heim allan fyrir leik sinn í Netflix-þáttunum Katla en hún spjallaði um þættina og leikkonulífið í morgunþættinum Ís- land vaknar á dögunum. Sagðist hún meðal annars fá skilaboð frá fólki hvaðanæva úr heiminum og við- urkenndi að hún fyndi fyrir dálitlum félagskvíða vegna allrar athyglinnar en einnig ljóstraði hún upp uppskrift- inni að öskunni sem umlykur líkama persónanna í þáttunum. Ég hef alveg tekið þátt í verk- efnum áður en ekki af þessari stærð- argráðu. [Þetta er] mikið tækifæri og rosa gaman. Rosa gaman að skapa eitthvað svona sem hefur ekki verið gert áður á Íslandi,“ sagði Íris Tanja. Venjuleg tveggja barna móðir Sjálf segist Tanja ekki upplifa sig sem einhverja fræga stjörnu heldur sé hún afar venjuleg manneskja; tveggja barna móðir í Laugardalnum sem versli í Bónus. „En það er alveg gaman að fá kveðjur frá fólki alls staðar að út heiminum. Alls konar kveðjur á In- stagram, frá Mexíkó og Sádi- Arabíu,“ sagði Íris og bætti við að þættirnir væru sérstaklega vinsælir í Brasilíu þaðan sem mörg skilaboðin koma. „Ég er voða eðlileg manneskja. Eina sem ég finn núna er að ég með smá félagskvíða sem er svolítið skrýtið því ég er algjört fé- lagsfiðrildi. Þannig að þetta er svolít- ið skrýtið. En það er mikið verið að horfa og stara og koma og tala um þetta. Auðvitað vil ég gefa fólki það þannig að ég þarf að velja það hve- nær ég er í standi til þess,“ sagði hún. „Ég er farin að velja það aðeins,“ bætti Íris við en hún sagði að stund- um væri mikið í gangi hjá henni eða hún þreytt og verr upplögð til að upplifa að hún sé þekkt fyrir þættina. Ekki alltaf upplögð „Ég hef alveg lent í því að vera með barnið mitt í sundi klukkan hálf- níu og vera að klæða hana í náttföt og fá hana til að borða banana og svo kemur einhver og byrjar að tala um Kötlu. Þá er ég alveg svona: „Kannski seinna, ég er allsber að klæða barnið mitt“,“ sagði Íris og en bætti við að langoftast væri samt mjög gaman þegar fólk kæmi og segði hæ. „Það er skrítið þegar fólk er að horfa mikið og pískra. Þannig að endilega komið bara frekar og segið hæ, ég er búin að vera að horfa á Kötlu,“ sagði hún. Spurð um „íkonísku“ senuna þar sem Ása, persóna Írisar, rís upp úr ösku Kötlu og öskuna sem þekur líkama henn- ar hló Íris Tanja og spurði hvort hún ætti að uppljóstra leyndarmáli ösk- unnar. Hún viðurkenndi þá að askan væri gerð úr engu öðru en matarlími, svörtum duftlit, haframjöli, hveiti og vatni. „Þetta er ískalt þegar þetta er sett á og svo grjótharðnar þetta og ef ég hreyfi mig aðeins er eins og húðin sé að rifna,“ sagði hún og bætti við: „Þetta voru erfiðustu dagarnir mínir. Andlega og líkamlega. Að vera læst- ur inni í þínum eigin líkama þannig séð og geta lítið gert. Þegar þetta harðnar byrjar þetta að „cracka“ og brotna aðeins og það er náttúrulega „elimentið“ sem við vildum, að þetta myndi brotna eins og askan gerir og hraunið,“ sagði Ír- is. Óvissa vegna Covid Íris sagði að faraldur Covid-19 hefði sett sitt mark á tökur þáttanna en hún benti á að hlé hefði verið gert á tökum eftir aðeins um tvær vikur vegna útbreiðslu sjúkdómsins á Ís- landi. Hún lýsti óvissunni sem ríkti á settinu í kjölfarið. „Erum við ekki alveg að fara að gera þetta? Af því að okkur langaði öll svo að gera þetta. Það er held ég það sem er gegnumgangandi í þess- ari framleiðslu. Það voru allir; frá „rönner“, í leikstjóra, í leikara, í hljóð og búninga, það voru allir sem höfðu svo mikla trú á þessu,“ sagði Íris og bætti við að á tímabili hefðu þau verið eina kvikmyndaliðið sem var starf- andi ásamt einni annarri framleiðslu í Suður-Kóreu. Lýsti hún því hversu vel allt var skipulagt vegna Covid-19 en starfs- fólk á setti var meðal annars hita- mælt mjög reglulega auk þess sem svæðið var allt hólfað niður og lita- kóðað. „Við vildum bara að þetta myndi ganga,“ sagði Íris. Spurð um það hvort von væri á ser- íu tvö af Kötlu varð Íris Tanja leynd- ardómsfull. „Það er spurning. Vilja ekki allir meira? Það væri mjög gaman ef það yrði sería tvö,“ sagði hún. „Þetta velt- ur allt á áhorfi og vinsældum. Þannig að endilega horfa. En auðvitað er þetta mjög vinsælt,“ bætti hún við. Fær skilaboð hvaðanæva úr heiminum Íslenska Netflix-þátta- röðin Katla hefur vakið heimsathygli og nýtur mikilla vinsælda. Íris Tanja sem fer með aðalhlutverk í þáttunum segir ýmislegt hafa breyst eftir leik sinn í þáttunum. Aska Íris Tanja segir að dagarnir, þar sem hún þurfti að vera þakin gervi- ösku, sem gerð var m.a. úr matarlími, hafi verið erfiðastir í tökum á Kötlu. Leikkona Íris Tanja hefur heldur betur vak- ið athygli fyrir hlutverk Ásu í vinsælu íslensku Netflix-þáttunum Kötlu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.