Morgunblaðið - 15.07.2021, Síða 48

Morgunblaðið - 15.07.2021, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 Atvinnuauglýsingar 569 1100 Rangárþing eystra Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa Aðstoðarmaður starfar með byggingarfulltrúa við alla almenna meðferð byggingarmála samkvæmt lögum um mannvirki svo sem við móttöku og yfirferð séruppdrátta, úttektir, samskipti við umsækjendur, hönnuði, stofnanir og fleira. Um er að ræða 100% starf. Leitað er eftir öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til þess að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf. Rangárþing eystra hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. september 2021. Helstu verkefni: Úttektir og eftirlit með byggingum og framkvæmdum • Yfirferð sérteikninga • Skráning mannvirkja, fasteigna og landeigna í skráningarfor- riti Þjóðskrár • Umsagnir vegna rekstrar- og starfsleyfa • Skráningar í Mannvirkjagátt • Samskipti við hönnuði, byggingaraðila, stofnanir og íbúa • Ýmis önnur tilfallandi verkefni Menntun, reynslu og hæfniskröfur: • B.S/M.s próf svo sem í verkfræði, tæknifræði, byggingarfræði, arkitektúr • Meistararéttindi í iðngrein æskileg • Reynsla á sviði byggingarmála skilyrði • Þekking á teikniforritinu Autocad eða sambærilegum forritum æskileg • Þekking á lagaumhverfi málaflokksins æskileg • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði • Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri • Skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti • Jákvæðni í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt því að eiga auðvelt með að vinna í hópi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Úlfar Gíslason, skipulags- og byggingarfulltrúi á netfanginu ulfar@hvolsvollur.is. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðnin- gur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir skulu sendar á netfangið ulfar@hvolsvollur.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 8. ágúst 2021. Rangárþing eystra auglýsir laust til umsóknar starf aðstoðarmanns byggingarfulltrúa hjá embætti skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra. Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið Tvö embætti héraðsdómara laus til umsóknar Dómsmálaráðuneytið auglýsir laus til umsóknar tvö embætti héraðsdómara, annars vegar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og hins vegar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjaness. Skipað verður í embættin frá 1. október 2021. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 970/2020 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf héraðsdómara. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 26. júlí nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Dómsmálaráðuneytinu, 9. júlí 2021. Lausar stöður hjá Hafnarfjarðarbæ Hafnarfjordur.is Nánari upplýsingar á: Fjölskyldu- og barnamálasvið • Sérfræðingur í málefnumbarna - Brúin Grunnskóli • Deildarstjóri yngsta stigs - Setbergsskóli • Kennari íslenska semannaðmál - Hvaleyrarskóli • UT kennsla - Setbergsskóli Leikskóli • Leikskólakennari - Hvammur • Leikskólakennari -Víðivellir • Leikskólakennari með listgreinamenntun – Arnarberg • #roska"jál! - Álfasteinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.