Morgunblaðið - 15.07.2021, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 15.07.2021, Qupperneq 52
52 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Gott úrval af gæðakjötiá grillið Opnunartími 8:00-16:30 50 ÁRA Jóhann Pétur fæddist 15. júlí 1971 á Akranesi, þar sem hann ólst upp og hefur búið all- ar götur síðan. Hann gekk í Brekkubæjarskóla og síðan í Fjölbrautaskól- ann á Akranesi. „Ég æfði sund alveg frá 10 ára aldri til 18 ára, og hafði alltaf gaman af allri hreyfingu.“ Jóhann fór að læra matreiðslu og vann sem matreiðslu- maður fram að 38 ára aldri. Þá var líkams- ræktin orðin stór hluti af lífsstíl Jóhanns, en árið 2006 vann hann Íslands- meistaratitilinn í Hreysti á Icefit-mótinu í Laugar- dalshöll, þá fyrstur Skagamanna. Hann stofnaði Bootcamp Akra- nes og hefur rekið það núna í tólf ár og aðstoðað fólk við að koma sér í form, bæði með tímum og einkaþjálfun. Hann segist vera í svipuðu formi í dag og fyrir tíu árum, sem sýnir kannski betur en nokkuð annað hvað regluleg þjálfun er góð fyrir lík- amann. „Þetta snýst um að stunda reglulega hreyfingu og borða hollan mat. Ég vil ekki taka neitt út, en kannski hafa sykurneyslu í lágmarki og borða í hófi. Svo eru reykingar mjög slæmar, en sem betur fer sér maður sjaldan í dag einhvern með sígarettu.“ FJÖLSKYLDA Eiginkona Jóhanns Péturs er Rósa Björk Bjarnadóttir, f. 1976. Þau eiga börnin Júlíu Björk, f. 1995; Símon Orra, f 1999; Tristan Sölva, f. 2005 og Aþenu Líf, f. 2009. Jóhann Pétur Hilmarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Hafðu stjórn á tilfinningum þínum þótt eitthvað verði til að róta upp í þeim. Hafðu ekki áhyggjur þótt þú sért hafður fyrir rangri sök. 20. apríl - 20. maí + Naut Njóttu hinna smærri sigra, þeir skipta meira máli en þú gerir þér grein fyr- ir. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Lánið leikur við þig í dag og þú ættir að leyfa sem flestum að hoppa á vagninn og njóta gleðinnar með þér. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú gerir miklar kröfur til annarra en þarft að læra að meta það að fólk hafi gert sitt besta. Brostu og vertu þakklátur. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Það er komið að því að þú þarft að taka ákvörðun í stóru máli. Hörfaðu og þú munt sjá aðra afreka. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það hefur ekkert upp á sig að stytta sér leið til lausnar mála. Margt af því sem sýnist áríðandi leysist upp ef maður lætur sem maður taki ekki eftir því. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þetta er góður dagur til að bæta heimilisaðstæður þínar með einhverjum hætti eða samskiptin innan fjölskyldunnar. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Eitthvað sem gerist í dag kann að leiða til þess að þú skiptir um verustað síðar. En það er einmitt þegar skyndilega reynir á að þú finnur fyrir styrk þínum. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú gætir laðað að þér einhvern í dag sem er staðráðinn í að gera þig að betri manni. Ráðstefnur, fundir og alls kyns mannamót verða lífleg og ánægjuleg. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú verður að ljúka við þau verk- efni, sem þú hefur tekið að þér, áður en þú gerir þér dagamun. Að komast að ýmsu um náungann er viss flótti og mun skemmti- legra en verkefnin sem bíða þín. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Það er gaman þegar vel gengur og þú átt að njóta meðbyrjarins því enginn hefur fært þér hann nema þú sjálfur. Leggðu drög að því að komast í gott ferða- lag. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Að vera hrifinn af einhverjum gæti virst góð ástæða til þess að veita honum mikla athygli, en svo er ekki. Hógværð og auðmýkt eru aðalsmerki þess sem kann að sigra. H ildur Lilliendahl Viggósdóttir fæddist í Reykjavík 15. júlí 1981 og ólst upp í Breiðholtinu en gekk í Langholtsskóla. „Ríkisspítalarnir ráku barnaheimili fyrir börn starfs- fólks og mamma var að vinna á Kleppi. Þess vegna var ég á leikskóla í Langholtshverfi frá tveggja ára aldri og þegar kom að skólagöngunni fylgdi ég bara vinum mínum í Lang- holtsskóla.“ Hildur komst snemma í fjölmiðla, en hún var aðeins sex ára gömul þegar hún vann bíl eftir að spá rétt fyrir um úrslit í Evrópu- söngvakeppninni og birtist grein í DV með fyrirsögninni: „Sex ára bíleig- andi“ og Hildur sitjandi á húddinu á bílnum sem var splunkunýr Skoda. Þegar kom að því að velja fram- haldsskóla ákvað Hildur að fara í Fjölbrautaskólann í Breiðholti. „Vinahópurinn var að dreifast á marga skóla og ég ákvað að prófa eitthvað nýtt.“ Hún kunni mjög vel við sig í skólanum en eignaðist barn aðeins 19 ára gömul, sem seinkaði út- skrift aðeins. „Ég fór í háskólann 22 ára, árið 2003, og byrjaði í sálfræði en fann mig ekki í því námi og fór í ís- lensku og tók kynjafræði sem auka- fag. Síðan voru blikur á lofti í efna- hagslífi þjóðarinnar 2008 og ég ákvað að sækja um vinnu og fór að vinna á skrifstofu borgarstjórnar í Ráðhús- inu. Ég komst aldrei upp á lag með að vera bæði í námi og vinnu á þessum tíma, en dreif mig aftur af stað 2019, lauk síðan náminu 39 ára og er í fram- haldsnámi í kynjafræðum núna og sinni einnig ýmsum störfum fyrir ráð- gjafafyrirtækið JUST Consulting, sem sérhæfir sig í fjölbreytileika- ráðgjöf.“ Hildur gaf út ljóðabókina Sjálf kvíslast ég árið 2009. „Ég var mjög virk í ungskáldasenunni í Reykjavík alveg frá 2002 til ’03 og birti ljóð hér og þar og Nýhil gáfu út bókina mína.“ Þótt fjölbreytt reynsla úr þjóðfélag- inu hafi eflaust haft sinn þátt í að móta hugmyndafræði Hildar segir hún þó að hún hafi strax fengið það orð á sig að vera mikill jafnréttissinni í barnaskóla. „Ég fæddist bara með kvenréttindaáhugann.“ Flestir þekkja Hildi mest sem and- lit kvenfrelsisbaráttunnar síðustu tíu árin og hefur verið stormasamt í kringum hana, enda segir hún sínar skoðanir umbúðalaust. Hún hefur haldið óteljandi fyrirlestra, skrifað greinar og tekið þátt í athöfnum að- gerðasinna og viðburðum tengdum kvenfrelsismálum. En er ekki stund- um erfitt að vera svona umdeild og stöðugt tengd við feminisma? „Það er stundum erfitt, en fyrir mér er þessi barátta bara eins og að vera ást- fangin, þú getur ekkert slökkt á því. En auðvitað dreg ég mig stundum í hlé til að skapa andrými fyrir sjálfa mig.“ Hildur segir að grunnurinn að vandamálinu sem lýtur að allri jafn- réttisbaráttu sé kerfisbundinn hugs- unarháttur, stéttskipting, kynjamis- rétti og kynþáttahyggja. „Þetta helst allt í hendur og það þarf að ræða þessi mál í samhengi.“ Hún hefur helst beitt sér gegn ofbeldismálum og orðræðu og margir minnast mynda- albúmsins Karlar sem hata konur sem vakti gífurleg viðbrögð og svo logar almannarómur um síðustu metoo-málin og fólk skiptist mjög af- gerandi hópa í þessum málaflokki. „Mér finnst ekkert endilega slæmt að við sjáum mjög skýrt hvar línurnar liggja, því það er leiðin til að fylgjast með framförunum og sjá hvernig það fjölgar í öðrum hópnum og fækkar í hinum. Það hefur orðið töluverð vit- undarvakning og það er kannski svo- lítið „brútal“ að segja að feminismi sé í tísku, en hann er það svolítið. Það er að vaxa heil kynslóð upp núna sem veit miklu meira um þessi mál en mín kynslóð gerði. Þegar ég var ungling- ur í gaggó og framhaldsskóla voru fá- ir til að tala við um þessi mál en núna get ég horft á kynslóð sonar míns og vitað að það er rekið feministafélag í nánast hverjum framhaldsskóla. Svo er ég líka bjartsýn kona, en á sama tíma er ég meðvituð um að það skiptir öllu máli að sofna ekki á verðinum.“ Hildur er móðir tveggja sona og hún segir að hún nálgist uppeldið með opnum og heiðarlegum sam- tölum þegar kemur að kvenfrelsis- málum. „Ég held að það virki betur en bein innræting eða kennsla, en það er mjög mikilvægt að við ölum syni okkar upp í anda jafnréttis. „Við vor- um til dæmis að ræða tap Englands gegn Ítalíu um daginn yfir kvöld- matnum og þá kom upp að heimilis- ofbeldi í Bretlandi eykst um 38% þeg- Hildur Lilliendahl Viggósdóttir verkefnastjóri á skrifstofu borgarstjórnar – 40 ára Druslugangan 2012 Hildur í Druslugöngunni á Skólavörðustígnum 2012. Andlit kvenfrelsisbaráttunnar Gleðigangan Hildur, Hrappur, Páll og vinur hans. Á myndina vantar Sævar. Til hamingju með daginn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.