Morgunblaðið - 15.07.2021, Page 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021
and i v e
35%
AFSLÁTTUR
35%
AFSLÁTTUR
100%
NÁTTÚRULEGAR
AFURÐIR
20%
FERSKT
KJÖT
Kauptúni 3, Garðabæ | www.fisko.is
Opið: Mán.-Fös. 10-19, Laug. 10-18, Sun. 12-18
..kíktu í heimsókn
DENTAL
CARE
SKIN
COMPLEX
STRENGTH
& VITALITY
Kvikmynd leikstjórans Valdimars
Jóhannssonar, Dýrið eða Lamb á
ensku, hefur vakið athygli á kvik-
myndahátíðinni í Cannes og hlotið
lof miðla á borð við Variety og Holly-
wood Reporter. Kvikmyndin var
frumsýnd við hátíðlega athöfn 13.
júlí og stillti leikstjórinn sér upp
með aðalleikurum myndarinnar,
þeim Hilmi Snæ Guðnasyni, Noomi
Rapace og Birni Hlyni Haraldssyni,
fyrr um daginn, eins og sjá má
ámeðfylgjandi mynd.
Kvikmyndin er sýnd í keppnis-
flokknum Un Certain Regard sem
þykir mikil upphefð og sérstaklega
fyrir leikstjóra sem mætir með sína
fyrstu kvikmynd í fullri lengd í far-
teskinu, eins og er tilfellið með
Valdimar.
Dýrið segir af sauðfjárbændunum
Maríu (Rapace) og Ingvari (Hilmi)
sem búa í fögrum en afskekktum
dal. Þegar dularfull vera fæðist á
bóndabænum ákveða þau að halda
henni og ala upp sem sitt eigið af-
kvæmi. Vonin um nýja fjölskyldu
færir þeim mikla hamingju um
stund, hamingju sem verður þeim
síðar að tortímingu, eins og því er
lýst á vef Kvikmyndamiðstöðvar Ís-
lands. Segir á vef The Hollywood
Reporter að myndin sé einn af gull-
molum hátíðarinnar og ekkert kind-
arlegt við þessa íslensku hrollvekju
og með því vísað í enska titilinn.
AFP
Í sólskinsskapi Hilmir Snær Guðnason, Valdimar Jóhannsson, Noomi
Rapace og Björn Hlynur Haraldsson sátu fyrir í Cannes vegna Dýrsins.
Dýrið vekur athygli
oftar en ekki hnyttin.
„Geggjað ósann-
gjarnt!“ eru orð Bjarna
Freys sem er kominn
með nóg af því að vera
ítrekað hafður fyrir
rangri sök. Einn daginn
er honum nóg boðið,
strýkur úr frístund og
býður Mikael bekkjar-
félaga sínum með. Frá-
sögnin er á pari við fínustu
spennusögu og þó svo að
ákvarðanir og hegðun
félaganna sé ekki til fyrir-
myndar tekst höfundi að
greiða vel úr flækjunni og
koma boðskapnum til skila.
Lús! er án efa frumlegasta
bókin í bókaflokknum hingað
til. Lúsin er tíður gestur á heimilum
barnafjölskyldna, það er löngu kom-
inn tími á að normalísera lúsina.
N
adira, Bjarni Freyr og
Sigríður hafa í nægu að
snúast líkt og krökkum
sem eru að taka sín
fyrstu skref í grunnskóla sæmir. Í
bókaflokknum Bekkurinn minn eftir
Yrsu Þöll Gylfadóttur er skyggnst
inn í heim bekkjarfélagana sem
lenda í ólíkum en
skemmtilegum ævintýr-
um.
Prumpusamloka! er
fyrsta bókin í flokknum
og þar segir frá Nadiru
sem er nýflutt til Íslands
frá Írak. Óöryggi, feimni
og tungumálaerfiðleikar
víkja fljótt fyrir hjálpsemi,
vináttu og húmor. Klósett-
ferðir og allt sem þeim
tengist koma einnig við sögu
hjá Nadiru og vinum líkt og
titillinn gefur til kynna og bók-
in ætti því að falla vel í kramið
hjá lesendahópnum sem bóka-
flokkurinn beinist að.
Bekkurinn minn er einmitt
ætlaður byrjendum í lestri. Í
upphafi hverrar bókar er
bekkjarmynd, teiknuð af
Iðunni Örnu myndhönn-
uði, þar sem sjá má fjöl-
breyttan hóp bekkjar-
félaga ásamt Bergþóru
kennara. Í þessum þrem-
ur bókum fá lesendur að
kynnast hvað Nadira,
Bjarni Freyr og Sigríður
bralla á skólatíma en einn-
ig utan veggja skólans. Allir titl-
arnir eru með upphrópun sem á vel
við þar sem atburðarásin er hröð og
Það er einmitt ómeðvitað markmið
Sigríðar sem slæst í lið með lúsinni
eftir áhugaverða heimsókn í
draumalandið.
Bækurnar þrjár sem kynntar
hafa verið til sögunnar draga upp
mynd af veruleika sem krakkar á
grunnskólaaldri geta svo sannarlega
tengt við og því ætti að vera leikur
einn að lesa um bekkjarfélagana
uppátækjasömu. Orðaforðinn er
fjölbreyttur og flókin orð og orða-
sambönd eru passlega mörg. Letrið
er aðgengilegt og línubilið er rúmt,
auk þess sem teikningar Iðunnar
Örnu setja lifandi heildarsvip á
bókaflokkinn.
Með fullri virðingu fyrir Dúbba
dúfu og fleiri sígildum lestrarbókum
er óhætt að fullyrða að bekkjarbæk-
urnar verði ómissandi hluti af lestr-
arbókum yngstu nemenda í grunn-
skólum landsins innan skamms. Ég
þekki alla vega einn lítinn verðandi
lestrarhest sem getur ekki beðið
eftir ævintýrum Mikaels, Jóns
Ingva og Leonoru.
Teikning/Iðunn Arna Björgvinsdóttir
Prump, strok og lús – veru-
leiki sem börn tengja við
Barnabækur
Bekkurinn minn: Prumpusamloka!,
Geggjað ósanngjarnt! og Lús!
bbbbn
Bókaflokkur eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur.
Bókabeitan, 2020. Innbundnar.
ERLA MARÍA
MARKÚSDÓTTIR
BÆKUR
Höfundur Yrsa Þöll Gylfadóttir.
Bekkjarmynd
Bekkurinn sem
bækurnar eru
kenndar við.Bryndís Björnsdóttir, kölluð Dísa,
opnaði 11. júlí sýningu í galleríi SÍM
sem ber titilinn mineral lick*blue
origin. Um sýninguna skrifar Dísa í
tilkynningu: „Frumkýrin Auðhumla
kom Búra, afa allra norrænna guða,
til lífs með því að sleikja hrímstein.
Neikvætt rými allra svitahola og
krika myndaðist við brodd tung-
unnar rétt það augnablik sem lík-
aminn tók á sig mynd. Meðal dýra
býr rík innri þörf til að sleikja jörð-
ina og gera þau sér því langar ferðir
til að finna réttan poll, með réttu
magni af söltum og steinefnum.
Ferðin þangað myndar stíga sem
sagt er að frummenn hafi í árdaga
nýtt sér á veiðum. Þessir stígar urðu
að vegum og vegirnir að innviðum
þess sem heitir siðmenning.
Í dag mæta dýr sömu þörf í þar til
gerðum samanþjöppuðum einingum
sem kallast saltsteinar, eða mineral
lick. Enska heitið segir til um bæði
efnið og athöfnina. Á sýningunni
mineral lick*blue origin birtist þessi
saltsteinn okkur sem grunneining
kosmískrar byggingaframkvæmdar,
hornsteinn að umhverfi okkar, upp-
hafsreitur á vegferð og kennileiti
um stöðu náttúru og vistkerfa. Fyrri
nýting náttúruauðlinda hefur rekið
náttúruna í þrot og vakir því sú
spurning hvort framundan sé tíma-
bil jarðmótunar, þar sem við mætum
plánetunni í tilraun til þess að gera
hana jarðlega aftur, móta hana líkt
og við myndum móta framandi plán-
etu sem við sæjum fyrir okkur að
ílendast á. Hugmyndin um mótan-
leika segir til um rekjanleg vensl í
tungumálinu og milli lífvera, sem
sýningin býður upp á að virða fyrir
sér í sundurleitum vefstól.“
Sýningin er styrkt af myndlistar-
sjóði, launasjóði listamanna og unn-
in að hluta til í samstarfi við tónlist-
arkonuna Teresu Stroetges. Haldin
verður samræðukoma á þriðjudag-
inn, 20. júlí, kl. 19-21, í samstarfi við
Þórhildi Tinnu Sigurðardóttur.
Kýr Kynningarmynd fyrir sýninguna.
Segir til um efnið
og athöfnina