Morgunblaðið - 15.07.2021, Side 64

Morgunblaðið - 15.07.2021, Side 64
WWW.ILVA.IS 1.júlí - 9.ágúst ILVA Korputorgi Lau. og sun. 12-18 virkir dagar 11-18:30 ILVA Akureyri Lau. 10-17 Sun. 13-17 virkir dagar 11-18 s: 522 4500 - www.ILVA.is Útsala 40% 40% 50% 30% 50% ORTO 2ja sæta + legubekkur. Grænt Solo velúr áklæði. L 292 x D 164 cm. 279.900 kr. NÚ 167.940 KR. WESTON hornsófi. Brúnt bonded leðuráklæði. L235 x D 285 cm. 359.900 kr. NÚ 215.940 KR. NARKE sólbekkur á hjólum. Burðargeta 120 kg. L186 cm. 46.900 kr. NÚ 23.450 KR. ALMA sumarhúsgögn. Hægindastóll. 74.900 kr. NÚ 52.430 KR. Skemill. 27.900 kr. NÚ 19.530 KR. Borð. 24.900 kr. NÚ 17.430 KR. VEGA hægindastóll með sessu. 74.900 kr. NÚ 37.450 KR. Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Jónas Þórir orgelleik- ari halda tónleika annað kvöld, 16. júlí, í Skálholts- dómkirkju. Bera tónleikarnir yfirskriftina „Heyr himna smiður“ og með henni vísað í helgidóm kirkjunnar og einnig Þorkels Sigurbjörnssonar tónskálds sem samdi lagið við sálminn sem var frumflutt í Skálholti fyrir 50 árum. Dagskrá tónleikanna verður 400 ára ferðalag í tónum, frá Heinrich Iganz Franz von Biber (1644) til Jónasar Þóris (1956) því fluttur verður nýr sálmur eftir Jónas, „Þung er mín sorg og þraut“. Einnig verða leikin verk eftir J.S. Bach, Ennio Morricone o.fl. 400 ára ferðalag í tónum FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 196. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Breiðablik, FH og Stjarnan freista þess í kvöld að kom- ast í aðra umferð Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í karlaflokki en liðin leika þá seinni leiki sína gegn and- stæðingum frá Lúxemborg og Írlandi. Breiðablik stend- ur best að vígi eftir útisigur og mætir Racing Union á Kópavogsvelli á meðan FH og Stjarnan leika bæði á Ír- landi. »54 Komast íslensku liðin í 2. umferð? ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Margar óvenjulegar vélar og flygildi voru til sýnis og í lofti á flugsýning- unni Allt sem flýgur sem haldin var á Hellu um síðustu helgi. Á svæðinu voru stríðsjálkar, drónar, svifflugur, þyrlur og listflugvélar sem fræknir flugkappar tóku til kostanna og léku listir sínar. Allt vakti þetta eftirtekt fólks sem mætt var á svæðið, þá ekki síst gýrókopti Sveins Kjartanssonar. Sá er einskonar blendingur af flug- vél og þyrlu og hefur eiginleika hvorrar tveggja. TF 222 „Flugið hefur alltaf heillað mig og að komast á gýrókopta opnaði mér alveg nýja veröld í þessu sporti,“ segir Sveinn. Gýrókoptinn, sem ber skráningarmerkið TF 222, er ítölsk smíði af gerðinni Magni Gyro M24C og kom nýr til landsins árið 2016. „Svona vélar þurfa mjög stutta braut og ná í loftið á vel innan við 100 metrum og er lendingar- vegalengdin bara nokkrir metrar. Gýrókopti hentar einkar vel við ís- lenskar veðuraðstæður og fer vel með mann í ókyrrð. Um margt virk- ar svona tæki líkt og þyrla. Þó að ekki sé hægt að stoppa alveg í loft- inu er hægt að fljúga mjög hægt.“ Mikil gróska í grasrótarflugi Mikil gróska er í einkafluginu um þessar mundir. Fjöldi ungs fólks sem ætlar sér að ná langt er í flugnámi. Þá er starfið í grasrótinni öflugt. Margir stunda í dag til dæmis flug á fisvélum sem gerðar eru út af flugbraut á Hólmsheiði ofan við Reykjavík. „Fisvélarnar eru skemmtilegar; litlar, meðfærilegar og útgerðin á þeim kostar mun minna en á til dæmis hefðbundnum Cessna-vélum sem alltaf hafa verið áberandi í einkafluginu á Íslandi. Regluverk sem gildir um fisflugið er líka einfaldara en gildir um venju- legar flugvélar,“ segir Sveinn sem er hljóðupptökumaður og eigandi Stúd- íós Sýrlands ehf. Flýgur um 100 tíma á ári „Gýrókoptinn sem ég á er sá eini á landinu í flughæfu ástandi. Þetta er flygildi sem hefur reynst mér vel á ferðum vítt og breitt um landið. Ég hef verið að fljúga oft nærri 100 tím- um á ári. Bensíneyðslan er 14-20 lítrar á klukkustund og getur hann flogið á um 140 kílómetra hraða á klukkustund. Flugþolið er fimm klukkustundir – og flug úr Reykja- vík austur á Egilsstaði er því lítið mál. Mér fannst gaman að vera á Hellu og sýna gripinn þar og fljúga með fólk, rétt eins og til stendur að gera í Múlakoti í Fljótshlíð, á árlegri flugsamkomu sem þar er haldin um verslunarmannahelgina,“ segir Sveinn að síðustu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugmaður Gýrókopti hentar einkar vel við íslenskar veðuraðstæður, segir Sveinn Kjartansson um gripinn. Gýrókoptinn opnar nýja veröld í fluginu - Flygildið vekur athygli - Hægfara og virkar sem þyrla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.