Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1955, Side 7
I. IÍAFLI
Tilraun í Miðtúni veturinn 1950—1951.
1. Tilhögun og framkvæmd.
Eins og vikið er að í inngangi hér að framan, var tilgangurinn með
þessari tilraun að finna, hvað væri hæfileg dagsgjöf af síldarmjöli
handa ám með beit.
Tilraunin hófst 29. desember, og henni lauk 23. maí. í henni voru
136 ær, sem skipt var í tvo jafna flokka, A- og B-flokk, er tilraunin hófst.
Ánum í A-flokki var gefið 100 g', en ánum í B-flokki 50 g af síldarmjöli
hvern dag á tilraunaskeiðinu. Að öðru leyti fengu ærnar í báðum flokk-
um sama fóður og jafna beit. Framan af tilraunaskeiðinu var ánum
ekki gefinn annar fóðurbætir en síldannjölið, en 2. apríl var farið að gefa
þeim maísmjöl til viðbótar. Byrjað var að gefa ánni 25 g á dag', sem var
smáaukið í 40 g til 10. apríl, og var þá einnig bætt við 15 g af hveiti-
klíði handa hverri á. Þessari dagsgjöf af fóðurbætinum var haldið
óbreyttri til loka tilraunaskeiðsins 23. mai. Ánum var beitt stöðugt, er
veður leyfði og' náðist til jarðar eða þara. Þær voru allar vegnar
mánaðarlega á tilraunaskeiðinu eða alls fimm sinnum og auk þess
haustið eftir. Lömbin undan tilraunaánum voru öll vegin á fæti 24.
september.
í A-flokki drápust þrjár ær, og tvær létu lömbum í B-flokki. Til
uppgjörs tilraunarinnar komu því 65 ær í A-flokki og 66 ær í B-flokki.
2. Fóðureyðsla á tilraunaskeiðinu.
Heyið, sem tilraunaærnar fengu, var allt taða frá sumrinu 1950.
Hún var efnagreind, og til efnagreiningar voru tekixr þrjú sýnishorn.
Tafla 1 sýnir efnamagn töðunnar, hve mörg kg þurfti í eina fóðurein-
ingu og' g meltanlegrar hreineggjahvítu í hverri fóðureiningu. Einnig
var síldarmjölið, sem ærnar fengu, efnagreint, og sýnir tafla 2 efna-
magn þess, hve mörg kg þurfti í eina fóðureiningu og g' meltanlegrar
hreineggjahvítu í hverri fóðureiningu.
Tafla 1. Efnagreining töðunnar.
Sýnishorn
I
%
Vatn ......................... 15.00
Hráeggjahvíta ................. 8.70
Hráfita ....................... 1.95
Aska .......................... 7.60
Tréni ........................ 31.39
Önnur efni ................... 35.36
Sýnishorn Sýnishorn Meðaltal sýnishorna
II III I, II og III
% % %
15.00 15.00 15.00
9.05 6.68 8.14
2.10 2.28 2.11
7.35 7.35 7.44
29.70 29.54 30.21
36.80 39.15 37.10
Sanitals 100.00
100.00
100.00
100.00