Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1955, Qupperneq 11
9
voru 136 ær, sem skipt var í tvo jafna flokka, A- og B-flokk, er
tilraunin hófst. Ærnar í A-flokki fengu 100 g af síldarmjöli á dag
hver, en ærnar í B-flokki 50 g. Að öðru leyti fengu ærnar í báðum
flokkum sama fóður og jafna beit.
2. Ærnar voru vegnar fimm sinnum á tilraunaskeiðnu. Lömb til-
launaánna voru vegin á fæti 24. sept.
3. Lagt var stærðfræðilegt mat á árangur tilraunarinnar.
4. Tilraunin sýndi, að 9.71 F.E. af síldarmjöli, sem ærnar í A-flokki
fengu fram yfir ærnar í B-flokki, höfðu ekki áhrif á þrif ánna á
tilraunaskeiðinu, og enn fremur, að mjög lítill og ekki raunhæfur
munur var á þunga lambanna á fæti 24. september.
II. KAFLI
Tilraun í Miðtúni veturinn 1952—1953.
1. Tilhögun og framkvæmd.
Tilraun þessi er endurtekning á tilraun, sem gerð var í Miðtúni
veturinn 1950—1951 og sagt er frá í kafla I hér að framan.
Tilraunin hófst 3. febrúar, og henni lauk 23. maí. 1 henni voru
112 ær, sem skipt var í tvo jafna flokka, A- og B-flokk, er tilraunin
hófst. Ánum í A-flokki var gefið 100 g af síldarmjöli, en ánum í B-flokki
50 g að meðaltali hvern dag á tilraunaskeiðinu. Að öðru leyti fengu
ærnar í báðum flokkum sama fóður og jafna beit. Fram til 10. febrúar
voru ærnar látnar liggja úti, en reknar heim að kveldi og síldarmjölið
gefið. Þann 10. febrúar er byrjað að hýsa ærnar, en mjög lítið hey
gefið fram undir 20. marz. Til 1. apríl fá ærnar engan annan fóður-
bæti en síldarmjölið, en þá er farið að gefa hveitiklíð, 10 g að meðal-
tali á dag hverri á, og var því haldið óbreyttu til loka tilraunaskeiðsins
23. maí. Ánum var beitt stöðugt, er veður leyfði. Þær voru allar vegnar
fjórum sinnum á tilraunaskeiðinu og auk þess haustið eftir. Lömb
tilraunaánna voru öll vegin á fæti 23. sept., og fall vegið sér af hverju
sláturlambi 26. sept.
Hvorki heyið né síldarmjölið var efnagreint, en heyið var allt
óhrakin og vel verkuð taða. Við útreikning á fóðurgildi þess, sjá töflu 6,
er reiknað með meðaltalstölum viðkomandi fóðurefna, það er, að í
fóðureininguna þurfi 2 kg af töðu, 0.75 kg af síldarmjöli o. s. frv.
(Halldór Vilhjálmsson, 1929, og Pétur Gunnarsson, 1955).
í A-flokki urðu þrjár ær geldar og ein í B-flokki. Við uppgjör til-
raunarinnar var þeim sleppt, og koma því til uppgjörs 53 ær í A-flokki
og 55 ær í B-flokki.