Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Page 62
Múlaþing
Sprungin setlög úr jökulleir (hvarfleir) í fljótsbakka
gengt Hreimsstöðum. Ljósm. Helgi Hallgrímsson.
í Hamragerði, sem leið liggur ofan Sjónar-
áss út fyrir Hrjótarvatn. Þar kemur nú held-
ur betur rugl á hana eins og hún fái bak-
þanka af stórmennsku sinni, því að í stað
þess að halda áfram til hafs rennir hún sér
krappa beygju fyrir endann á vatninu. A
þessari tungu sem áin afmarkar norðaustan
við vatnið er rnikið af fornum garðhleðslum
og allt að 20 tóftir af ýmsum stærðum og
hafa þessar fornminjar valdið mönnum
nokkrum heilabrotum. Kristján Jónsson,
sem bjó á Hrjót fyrir tæpum 100 árum, setti
fram þá tilgátu að þarna hefði verið þing-
staður sá, sem á er minnst í Drop-
laugarsonasögu og kenndur er við
Lambanes. Þarna heitir Lambhagi
og hólmi er í vatninu rétt við land og
gæti hafa verið landfastur í þá daga
(Lambanes?). Þetta bíður úrlausnar
vísindamanna.
Skoðum þá áfram ferli hinnar
hverflyndu Hurðarbaksár. Hún tók
beina stefnu inn neðan við vatnið,
nokkuð suðvestur fyrir syðri enda
þess, áður en næsta sveifla er tekin
og nú til norðurs. Nokkru utar steyp-
ir hún sér síðan í fallegum fossi 12 -
15 m háum niður í svokallaðan Víði-
dal og áfram til norðurs meðfram
eyðibýlinu Hurðarbaki sem er á bak-
við Bæjarásinn á Hreimsstöðum.
Munnmæli segja að þar hafí Galdra-
Imba síðast búið og gert sér leik að
því að ganga frá þeim embættis-
mönnum sem ekki voru henni þjálir.
Samanber sagnir tengdar Sýslu-
mannsklauf og Prestaklauf, en það
er önnur saga. Beitarhús voru á
Hurðarbaki fram um 1980. Þar
skammt fyrir utan er brú á ánni. Nú
er líka sjálfstæðri tilveru hennar að
ljúka og liðast hún mjúklega til vinstri og
blandar sér í Selfljót nokkuð norðan við
Hreimsstaðatún.
Selfljótið heldur nú áfram for sinni allt
að 16 km leið áður en það tekur við næstu
þverá. Sú heitir Staðará. Ánastaðaá og
Hrjótará mynda stofn að henni og eiga
upptök sín á Fram-Hálsunum, nálægt
sveitamörkum Eiða- og Hjaltastaðarþing-
hár. Þær slá sér saman í túninu á Ánastöð-
um, komnar þangað út eftir sitt hvoru
megin við Hrjótarfellið og fara að kallast
Staðará úr því. Hún heldur sínu striki án
stórra króka nokkuð beint til hafs vestan
túns í Svínafelli, sem og Kóreksstaða, en
60