Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Page 88

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Page 88
Múlaþing voru gildir bændur þar í nágrenninu; þeir ísleifur Finnbogason á Geirólfsstöðum og Jón Stefánsson í Litla-Sandfelli, og þess er getið að skilmálar (milli hjónanna) séu eftir lögum. í Ættum er getið sex barna þeirra Snjólfs og Ásdísar, en ég hefi þó fundið alls þrettán, og vitnar það um ungbarnadauðann hjá þjóðinni á fyrri tíð, og geta má þess að barnaveikin var skæð og bitnaði á öllum, óháð efnahag, ef einhver skyldi halda ann- að. Þau sem til aldurs komust voru: 1. Rustikus f. 9. ágúst 1819, hann átti Guðríði Jónsdóttur frá Sleðbrjótsseli, drukknaði þar í brunni 1876 að sögn, þau áttu son sem ekki kom ætt af. 2. Rut f. 18. janúar 1822, hún var vinnukona í Flögu 1845, átti Eirík Guð- mundsson (12775). Þau áttu þrjár dætur sem ætt kom frá. Þau bjuggu lítið, segir í Ættum, en þau eru þó við bú í Dalaseli í Útmannasveit um 1872. 3. Guðlaug f. 15. maí 1823. Hún er ekki nefnd í Ættum, en var tökustúlka á Þor- valdsstöðum í Skriðdal 1835, vinnukona á Þorvaldsstöðum í Breiðdal 1845. Hún átti Guðmund Guðmundsson, sem var laun- sonur Guðmundar Sigmundssonar í Geitdal og Þuríðar Björnsdóttur úr Loðmundarfirði (2308-10685), og árið 1860 búa þau Guð- laug með tvö börn sín í hjáleigu frá Beru- firði sem nefnd er Ámahús. Ekki eru bömin nefnd í Ættum. 4. Eyjólfur f. 6. desember 1824. Árið 1860 býr hann á Gíslastöðum í Vallanes- sókn ásamt Rannveigu Olafsdóttur og er hún talin kona hans, en í Ættum segir að hann hafi drukknað í Lagarfljóti, ókvæntur og barnlaus, svo liann hefur drukknað skömmu síðar. Rannveig var fædd í Hólma- sókn um 1830. 5. Ólöf f. 24. maí 1827, var vinnukona á Mýrum 1845, í Hnefilsdal 1855, í Sauðhaga 1860. Hún lést 4. júlí 1879 á Arnaldsstöðum, 56 ára að aldri, ógift að ég held. 6. Halli f. 11. október 1828. Hann bjó á Sturluflöt, átti Maríu Þorsteinsdóttur (12716) og eru í Ættum taldar tvær dætur þeirra. 7. Ingibjörg f. 9. maí 1830. Hún kom ung til Jökuldals þar sem hún giftist og átti böm, og um hana fjallar þessi þáttur. Fram að þessum tíma bjuggu foreldr- arnir á Vaði og föðuramman Guðlaug Snjólfsdóttir, sem ættuð var úr Homafirði eins og áður segir, var jafnan guðmóðir barnanna meðan hún lifði, en hún lést í byrjun árs 1829, hinn 15. janúar. 8. Einar f. 21. september 1836, foreldr- arnir hafa þá hrakist til ljarða, búa á Stuðl- um í Reyðarfirði þá um stundir. Hann var fósturbarn á Hallbjarnarstöðum 1845, kom frá Krossi í Fellum að Hnefilsdal 1853, fór þaðan 1855 að Egilsseli. Hann kom frá Meðalnesi að Skeggjastöðum á Jökuldal 1857, en fór síðan að Rangá í Tungu. Hann bjó með bústýru á Rangá 1860, og í byrjun vetrar það ár gekk hann að eiga Katrínu Þorsteinsdóttur sem fædd var í Þórodds- staðasókn 33 árum fyrr. Þau áttu tvö böm, Sigríði f. um 1858 og Elínu f. 1859. Hann drukknaði í Lagarfljóti 9. júlí 1861.1 Ættum segir að hann ætti eina dóttur Elínu að nafni, svo líklega hefur Sigríður dáið í bernsku. Elín átti barn með Jóhanni Frí- manni Jónssyni tóvélastjóra á Ormarsstöð- um, hét Einar Sveinn síðast kennari á Norð- firði. Börnin sem dóu í bernsku voru: 1. Eyjólfur f. 13. ágúst 1820; hann varð rúmlega ársgamall, dó 15. sept 1821. 2. Sigríður f. 11. janúar 1826, hún varð rúmlega tveggja ára; dó 20. mars 1828. 86
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.