Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Side 92
Múlaþing
lega hafa verið vinnumenn sem gátu haft
þann háttinn á.
Frá Jökuldalsfólki
Vorið 1847 fór Ingibjörg vinnukona að
Amórsstöðum á Jökuldal og áriðl 850 er hún
á Skeggjastöðum, og 1855 í Hofteigi. Enn-
fremur má geta þess að á þessum ámm komu
að minnsta kosti tvö af systkinum hennar,
þau Einar og Olöf, til vistar á Jökuldal
(Hnefilsdalur-Hofteigur) en voru þó aðeins
fá ár. Þá henti það Ingibjörgu að eiga bam,
og er bamið fætt hinn 16. júlí 1857, og faðir
þess er sagður Jón Pétursson frá Hákonar-
stöðum, sem vinnumaður var á Gauksstöð-
um um þær mundir. Bamið hlaut nafnið
Júlíana - Jónsdóttir þó hvíslað væri í öllum
skotum að hún ætti raunar að föður sjálfan
prestinn í Hofteigi, Þorgrím Amórsson, og er
til af því saga sem hljóðar á þá leið, að eitt
sinn í góðri veislu þar á staðnum, en löngum
hafa Jökuldælir verið gefnir fyrir að létta af
sér oki hversdagsins og gleðjast saman af
ýmsu tilefni, (og man höfundur eftir gleð-
skap af svipuðum toga, þá er hann var í
bemsku í Dalnum) hafi veislugestir stigið í
vænginn við vinnukonur, og af því þær hafa
máske verið misjafnlega eftirsóttar eins og
gengur, ellegar í minnihluta, hafí fleiri en
einn gestur komið í hlut hverrar. Svo var það
þegar Ingibjörg var sýnilega farin að þykkna
undir belti er sagt að prestsffúin hafi leitað
frétta hjá henni hver mundi nú eiga þungann,
varð hún niðurlút en minntist á veisluna
góðu, og eftir nánari eftirgrenslan sagði hún
eitthvað á þá leið að um fleiri en einn gæti
verið að gera. Prestfrúin, sem var gæða-
manneskja, spurði þá hver hefði verið
fyrstur, og varð Ingibjörgu þá stirt um svör,
og sagðist ekki þora að segja það, en þegar
hún gekk á hana stundi hún upp að það hefði
raunar verið maðurinn hennar.
Engin sýnileg læti urðu út af þessu, og
Júlíana litla ólst upp á Jökuldal, meðal ann-
ars á vegum Jóns föður síns, og í Hofteigi
hjá séra Þorgrími. Sagt er að er hún var
einhverju sinni í eldhúsi með prestfrúnni,
hafí maddaman, en svo voru þær kallaðar
prestfrúrnar, sagt af einhverju tilefni:
Heyrðu, Júlíana mín Jónsdóttir, eða hvers
dóttir þú ert....
Júlíana Jónsdóttir átti Ólaf Þorsteinsson
frá Engilæk, segir í Ættum (2401-3887), og
er aðeins getið einnar dóttur þeirra sem
Rannveig hét (2402) og fór norður og giftist
og bjó á Hvammstanga, Siglufirði og síðast
í Reykjavík. Eru börn Rannveigar nafn-
greind í Ættum, en ekki gerð nánari grein
fyrir þeim, og hvorki er staður né stund til
að gera það hér í þessum þætti.
Árið 1858 er Ingibjörg enn á ný komin
út í Hlíð til frændfólks, og er vinnukona að
Surtsstöðum, og um haustið, hinn 19. sept-
ember, átti hún barn sem skírt var Finnur.
Bamið dó á jóladag sama ár á Surtstöðum,
en ekki er dánarorsök tíunduð. Faðir bams-
ins, Finnbogi, sagður ógiftur vinnumaður í
Hofteigi, mun vera sá sem kom vorið 1854
frá Álftagerði í Mývatnssveit að Skeggja-
stöðum, sagður ógiftur þá, 40 ára, fæddur í
Grenjaðarstaðasókn nyrðra. Það er svo
önnur saga að hinn 14. ágúst 1859 gekk
hann að eiga Þorgerði Sigurðardóttur sem
var 12 árum yngri en hann, fædd í Hrafna-
gilssókn nyrðra. Þá voru þau bæði í vinnu-
mennsku á Eiríksstöðum.
Kjartan Jónsson hét maður sem var
vinnumaður í Hnefilsdal um þessar mundir.
Hann var fæddur á Eldleysu í Mjóafirði 8.
maí 1830, yngstur sex systkina, og voru
foreldrar hans þau Jón Jónsson og Sigríður
Eiríksdóttir (13314-13674) búandi hjón á
Eldleysu. Óvíst er um fæðingarár Jóns
þessa, sýnist þó stundum vera fæddur um
1796-8, máske í Fáskrúðsfirði eða Stöðvar-
firði, en foreldrar hans, Jón Jónsson og
90