Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Blaðsíða 102

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Blaðsíða 102
Múlaþing kvæmt forðagæsluskjölum úr Hlíð í byrjun vetrar það ár hafði hann á fóðrum hjá sér á Torfastöðum 45 ær og 10 lömb, og auk þess einn hest, sem má teljast bjarglegt á þessum tíma hjá óbreyttum vinnumanni sem ekki er eldri, sem bendir til að hann hafí verið hygginn ijármaður og ef til vill fremur verið sjálfs sín, eða húsmennskumaður. Vilhelm er enn á Torfastöðum vorið 1920 og hinn 20. júní gekk hann að eiga Þórunni Sigurð- ardóttur, Þorleifssonar frá Hrjót (1799 -1800) og Þórstínu Þorsteinsdóttur, As- mundssonar (5766) á Steinaborg á Beru- ijarðarströnd. Þórunn var fædd hinn 11. apríl 1881. Samkvæmt forðagæslu í byrjun vetrar 1920 eru þau Vilhelm og Þórunn á Ketils- stöðum með svipaðan bústofn og hann var áður með. Síðar munu þau hafa verið í tvíbýli á Hreimsstöðum í Hjaltastaðaþinghá með Lárusi bróður hennar, líklega frá 1921 eða 1922, og einnig voru þar foreldrar þeirra, þau Sigurður og Þórstína, en ná- kvæmar heimildir skortir. Vilhelm og Þór- unn voru við bú á Ásgrímsstöðum 1924 og 1925, og hjá þeim voru foreldrar hennar sem íyrr, þau Sigurður og Þórstína, og einnig var hjá þeim bróðursonur hús- freyjunnar á 10. ári, Ingólfur Lárusson frá Hreimsstöðum, en faðir hans hafði látist úr lungnabólgu í mars 1924. Vilhelm og Þórunn voru vinnuhjú í Klúku árið 1926, en fóru svo að Torfastöðum í Hlíð. Árin 1935 til 1944 voru þau í tvíbýli í Eyjaseli, móti Einari Hólm Elíssyni frá Skeggjastöðum í Fellum, en eftir það voru þau í tvíbýli móti Birni Guðmundssyni í Sleðbrótsseli, eru þar 1946, en vorið 1949 hafa þau flutt að Hall- geirsstöðum, hvar þau voru fyrst í hús- mennsku en síðan sjálfrar sín. Þau voru barnlaus en ólu upp að nokkru fósturson að nafni Ólafur Einar Magnússon, sem fæddur var á Sleðbrjót 27. júlí 1932. Á efri árum fluttu þau til Reykjavíkur hvar Vilhelm stundaði vinnu um skeið, og nutu jafnframt stuðnings fóstursonar síns. Vilhelm lést í Reykjavík hinn 20. desember 1966, 76 ára að aldri, en Þórunn þrem árum síðar, hinn 26. nóvember 1969, 88 ára að aldri. Eftirmáli Vangaveltur um rétt manna til að hnýsast í einkamál fólks. Þátt þann sem hér fer að framan hefi ég nokkur undanfarin ár haft í smíðum ásamt nokkrum öðrum af sama tagi, en þó hefúr oft orðið hlé á vinnslu og lítið miðað í lang- an tíma. Orsökin fyrir því er mestan part sú að mér hefur raunar fundist sem ég hefði engan rétt til að grafast fyrir um ævi fólks, allt væri það einkamál sem óviðkomandi ætti ekki að vera að hnýsast í. Líkja má embættisbókum presta þ.e. bæði ministerialbókum og sóknarmanna- tölum við gagnagrunn sem vafasamt væri að hver sem er ætti að geta unnið úr að eigin geðþótta, þar sem ýmsar viðkvæmar upp- lýsingar geta komið fram auk hinna al- mennu, sér í lagi um fólk sem þurfti að þiggja af sveit, stundum með óviður- kvæmilegum ummælum, einnig þekking heimilisfólks, svo sem lestur og skrift, og einnig má nefna nokkurs konar stigagjöf fermingarbarna sem manni dettur oft í hug að stundum hafi hjá sumum prestum fremur mótast af þjóðfélagsstöðu viðkomandi bams fremur en getu til lærdóms, samanber þó börn sem ólust upp við illt atlæti og/eða í niðursetu, sem seinkaði þroska þeirra, stundum ævilangt. Fyrir kemur að rangt er farið meó nafn sóknarbams og líka er uppnefni þénanlegt. Einnig var ætlast til að prestar segðu nokkuð um dánarorsök fólks í kirkjubók- um, hvað þeir komu sér oftast hjá að gera, 100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.