Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Page 108

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2002, Page 108
Múlaþing virðist hafa dottið í hug að reyna að stilla til friðar. Sjálfur bar faktor J. Chr. Thostrup, 35 ára, að hann hafi ekki ætlað að blanda sér í viðskipti þeirra Nielsens og Gísla „því að Gísli var vanur að vera montinn og með hávaða þegar hann kom í kaupstað en hann [þ.e.Thostrup] bjóst ekki við að slys hlytist af og hélt að allt gæti gengið friðsamlega.“ Þó fór svo að faktorinn gekk út á plássið á eftir stúlkunum, vinnukonum sínum. Sá hann Gísla ganga þar aftur á bak undan Nielsen og sagði Gísli honum „að koma ef hann þyrði og þetta sagði hann nokkrum sinnum.“ Ekki kvaðst Thostrup hafa séð Nielsen slá Gísla en „einu sinni ef ekki tvisvar“ ýta við honum með hendinni.. Sýslumaður í Norður-Múlasýslu var um þessar mundir Præpen Böving, danskur maður.1 Réttaði hann í þessu máli dagana 29. og 30. janúar. Síðari daginn kom Gísli Sigfússon í annað sinn fyrir réttinn. ,,[V]ar hann áminntur um að segja satt og meðganga, en hvernig sem dómarinn reyndi til þess gat hann samt ekki fengið hann til að meðganga frekara heldur en hann þegar er búinn. — Gísli vildi ekki játa að hann hefði rifið treyju Nielsens inni í forstofunni og stóð fast á því, að Nielsen fyrir víst 3^21 hefði reynt að slá sig en samt einungis einu sinni hitt sig, og ekki heldur vildi hann kannast við, að hann hafi ráðist áNielsen til þess að berja hann, eptir að hann var búinn að fella hann, eða að hann hafi dregið Nielsen þegar þessi lá á jörðinni og er skýrsla hans í dag alveg samhljóða þeirri, er hann frambar í gær. “ í fýrra framburði sínum lýsir Gísli glímunni svo að hann hafi tekið um mitti Nielsens og fleygt honum til jarðar en ekki kveðst hann hafa ætlað sér að gera honum mein eða brjóta fót hans, og ekki vill Gísli kannast við, að hann hafi tekið í þann fót á Nielsen er þessi braut þegar hann datt og dregið hann og kveðst hann ekki hafa vitað að Nielsen fótbrotnaði um leið og hann fleygði honum til jarðar [...] og að hann laut eptir honum þegar hann datt, og ekki hafi þá ætlað sér að gjöra honum mein.“ I fyrra framburði sínum leggur Gísli nokkra áherslu á að hann hafí verið ölvaður: „[...] hann var reyndar ekki allsgáður það kvöld, og munu fleiri menn geta borið honum vitni um, að hann þá hafi verið drukkinn." Kemur enda fram að hann man suma hluti fremur óljóst. I réttarhaldinu þann 30. jan- úar er eftirfarandi viðbót við fyrri framburð bókuð eftir Gísla: — Hann segir að hann hafi talsverðan bagga að bera, eptir ágizkun um 6 fjórðunga, og bar sjálfur bagga þenna inn að Fjarðarseli þó að það gengi nógu örðugt, en Sveinn Einars- son frá Setbergi bar fyrir hann 6 potta af steinólíu þar eð hann sá að Gísli ekki ætti hægt með að bera allan bagga sinn.“ Ekki liggur í augum uppi hvað þetta kemur málinu við. Kanski hefur Gísli viljað leið- rétta eða árétta framburð Sveins sem getið er hér á undan. Hinsvegar bregður þarna skýru Ijósi á byrðar sem menn báru uppyfir Fjarðarheiði á árum áður. 1 Præben Theodor Emanuel Böving (1834-1908) var sýslumaður (frá 1863) í Snæfellsnessýslu og Borgarfjarðarsýslu áður en honum var veitt N-Múlasýsla 1871. Sat hann á Seyðisfírði þar til hann varð héraðsfógeti í Danmörku 1880; fluttist þá til síns heimalands. Kona hans var íslensk, Kristína Guðrún, yngsta dóttir Kristjáns Skúlasonar Magnusen á Skarði (Bogi Benediktsson 1915:803). 106
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.