Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 30
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Það er fátt betra en að sofa í góðum rúmfötum og rúmfötin sem við flytum inn eru svo sannar­ lega mjúk og dásamleg viðkomu,“ segir Björn Þór Heiðdal, eigandi einu sérverslunarinnar með rúm­ föt á Íslandi. Rúmfötin sem fást í Rúmföt.is koma langflest frá Ítalíu, Þýska­ landi og Kína. „Áður en ég opnaði Rúmföt.is vann ég í þvottahúsi A. Smith, sem afi minn stofnaði. Þar þvoði ég rúmföt allan daginn í yfir tuttugu ár, og þaðan er áhugi minn á rúm­ fötum líklega kominn,“ segir Björn. „Það var svo dag einn árið 2003 að ég vildi gera eitthvað meira og byrjaði að flytja inn rúmföt fyrir hótel. Ég man ekki nákvæmlega hvað ég hafði samband við margar verksmiðjur en þær skiptu tugum, ef ekki meira. Ég fékk prufur frá merkjum eins og Frette á Ítalíu og Dibella í Þýskalandi, en bæði eru mjög stór í hótelbransanum og með breiða vörulínu. Ég verslaði líka við frönsk fyrirtæki, eitt í Belgíu og annað frá Danmörku, og einhverjar prufur fékk ég frá Portúgal og gott ef ekki frá Make­ dóníu. Eftir smá tíma var ástandið orðið svo alvarlegt að ég þurfti að nota skóhorn til að komast inn á skrifstofuna. Prufur út um allt og kassar upp í loft!“ segir Björn og skellir upp úr. Ekki lengur framleitt í Evrópu Flestar prufurnar komu frá Kína. „Ég áttaði mig nefnilega fljótlega á að evrópsku fyrirtækin voru ekki endilega að framleiða sín rúmföt sjálf, í eigin verksmiðjum. Stærsta fyrirtækið lét til dæmis framleiða flest handklæðin sín á Indlandi og margt var framleitt í Tyrklandi. Þaðan fékk ég líka prufur, og frá sömu verksmiðjunum og evrópsku merkin keyptu frá,“ greinir Björn frá. Ekkert af því heillaði hann upp úr skónum. „Það var ekki fyrr en ég datt niður á rétta verksmiðju í Kína, að hjólin fóru að snúast. Tveimur árum síðar byrjaði ég að selja rúm­ föt frá ítalska fyrirtækinu Quagli­ otti, en það fyrirtæki framleiðir enn allt sitt í eigin verksmiðju. Mér finnst það skipta svo miklu máli. Að versla beint við fyrirtæki sem framleiða sín rúmföt sjálf.“ Stórbruni breytir framtíðinni Líða nú árin í þvottahúsinu eitt af öðru. „Þegar mest var störfuðu hjá mér fimmtán manns, sem var mikill lærdómur. Árið 2014 verða svo ákveðin tímamót, þegar þvotta­ húsið Fönn brann í júlí. Ég var þá staddur í sumarbústað og sá svart­ an reyk stíga til himna. Við móðir mín, sem á þvottahúsið, ákváðum strax að rétta Ara Guðmundssyni í Fönn hjálparhönd, sem hann þáði. Þarna, á einni nóttu, tvöfaldaðist því þvottamagnið og við bættist brjáluð helgarvinna,“ upplýsir Björn. Á svipuðum tíma fann hann saumastofu í Kína sem gat fram­ leitt fyrir hann vönduð rúmföt fyrir heimili í litlu magni, en fram að því hafði slíkt verið vandamál. „Um haustið var ég orðinn svo uppgefinn að ég sagði við sjálfan mig að þetta væri komið gott. Ég þyrfti að breyta til og finna skemmtilegri vinnu sem gæti líka verið áhugamál,“ segir Björn. Þó liðu fjögur ár enn þar til hann hætti og opnaði Rúmföt.is. „Áður en ég opnaði búðina heim­ sótti ég Heimtextil­sýninguna í Franfurt. Fyrsta daginn ráfaði ég stefnulaust um gangana og spjallaði meðal annars við nokkra Pakistana sem allir spurðu hvað ég vildi marga. „Marga hvað?“, hváði ég. „Jú, hvað viltu marga gáma af vörum?“ Svo kom næsta spurning: „Hversu oft á ári?“ Einn Pak­ istananna sá strax að ég væri ekki margra gáma maður og sagði allt í lagi að byrja smátt og panta bara einn gám. Svo rakti karlinn sögu af Pólverja sem hafði byrjaði smátt en væri nú með heila keðju af búðum um allt Pólland og orðinn virkilega stór viðskiptavinur.“ Gæði frekar en magn Björn langaði hins vegar ekkert að verða umsvifamikill og stór. „Ég vildi bara finna flottustu og bestu rúmfötin á sýningunni. Að flytja inn gáma frá Pakistan eða Tyrklandi, fulla af sæmilegum rúmfötum, var hvorki raunhæft né heillandi. Ég kunni betur við Kínverjana á sýningunni. Þeir voru líka með betri efni og minna agress ívir,“ segir Björn, sem á Heimtextil í Frankfurt myndaði góð tengsl við nokkar kínverskar verksmiðjur sem í dag framleiða fyrir hann rúmföt úr silki, dún­ sængur og kodda. „En það var ekki fyrr en ég álpaðist upp á efstu hæð í höll númer ellefu að ég sá ljósið. Ég fékk hreinlega ofbirtu í augun því rúm­ fötin voru svo flott. Þetta var ítölsk verksmiðja og ég fékk fínar mót­ tökur. Ítalirnir spurðu mig reyndar hvað ég vildi mikið í metrum talið, sem hljómaði betur en allt gáma­ talið í Pakistönunum, og í f luginu heim vissi ég að ég væri kominn með allt til að opna búðina.“ Jólasalan fer vel af stað Jólin eru komin í Rúmföt.is. „Við erum að sjá mörg andlit sem hafa verslað hjá okkur áður. Einlita 600 og 900 þráða bómullarsatínið er mjög vinsælt í ár og hentar í alla jólapakka. Svo erum við líka með þessi geggjuðu ítölsku rúmföt sem ég fann á sýningunni,“ upplýsir Björn. Í síðustu viku kom í búðina kona og verslaði rúmföt handa öllum í fjölskyldunni. „Í fyrra hafði hún nefnilega gefið dóttur sinni rúmföt og sú hafði aldrei sofið undir neinu betra né jafn góðu. Rúmfötin okkar geta því verið mjög góðar jólagjafir sem fólk kann að meta. Sérstaklega ef viðkomandi á allt, eða maður veit ekki hvað á að gefa. Síðan er ekkert mál að skipta eftir jól eða kaupa gjafakort hjá okkur,“ segir Björn. Í ár er úrvalið líka meira en nokkru sinni fyrr í Rúmföt.is. „Það var dálítið tvísýnt hvort jólavörurnar kæmust til landsins, en Arnarfellið lagðist að bryggju með gáminn okkar á mánudaginn var. Sú pöntun var gerð í sumar og reyndi ég að velja rómantísk munstur í bland við geómetrísk, og svo pantaði ég nokkur óhefð­ bundin sem mér þótti f lott. Ég get ekki beðið eftir að taka upp úr kössunum og fylla allar hillur af hágæða lúxusrúmfötum,“ segir Björn kátur og sannarlega kominn í jólaskap. n Rúmföt.is eru á Nýbýlavegi 28 í Kópavogi. Sími 565 1025. Skoðið úrvalið á rumfot.is. Opið virka daga frá 12 til 17.30 og á laugar- dögum frá 11 til 15. Kóngafólk heimsins sefur undir ítalska rúmfatnaðinum frá Quagliotti. Æðislega flott og vönduð rúmföt frá þýska framleiðandanum Curt Bauer. Magga saumakona á veg og vanda af vönduðum sérsaumi rúmfata. Undurfallegt og ljósgrænt Magnolia úr bómullarsatíni. 900 þráða silkimjúkt satín veitir yndislegan nætursvefn. Nú er hátíð í bæ í Rúmföt.is enda nýkomin glæsileg jólasending í hús. Magga saumakona hér kát að líta á fegurðina. Tunglið mitt eru falleg rúmföt úr bómullarsatíni. Glæsilegt og vandað damask frá Curt Bauer. Það var ekki fyrr en ég álpaðist upp á efstu hæð í höll númer ellefu að ég sá ljósið. Ég fékk hreinlega ofbirtu í augun því rúmfötin voru svo flott. 2 kynningarblað A L LT 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.