Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 33
GG Sport opnaði nýlega
nýja og glæsilega skíðadeild
í verslun sinni í Kópavogi.
Auk úrvals af þekktum
skíðavörumerkjum býður
verslunin upp á fjölbreytt
úrval af útivistarvörum.
GG Sport hefur fyrir löngu fest sig
í sessi sem helsta útivistarverslun
landsins. Verslunin býður upp á
mikið úrval af skíðabúnaði, göngu-
og klifurbúnaði, og vörur sem
tengjast ýmsum gerðum af sjó-
sporti svo nokkur dæmi séu nefnd.
Nýlega opnaði GG Sport nýja
og glæsilega skíðadeild í verslun
sinni sem staðsett er á Smiðjuvegi
8 í Kópavogi. Þar verður boðið upp
á frábær vörumerki, að sögn Leifs
Dam Leifssonar, annars eigenda
GG Sport, meðal annars Madshus
gönguskíðin. „Við erum mjög stolt
af nýju skíðadeildinni okkar. Ekki
bara vegna þess að við skörtum
frábærum vörumerkjum eins
og K2, Black Crows og Madshus,
heldur vegna þess að við gengum
hreinlega í allar framkvæmdir
sjálf. Skíðadeildin okkar er því
handgerð frá grunni og með þá
hugsun að leiðarljósi: „Hvernig
skíðadeild myndi ég vilja koma
inn í ef ég væri viðskiptavinur?“
Allt til að segja sögu og hámarka
upplifun. Við erum afar stolt af
búðinni okkar, það er stór hluti af
þessu öllu.“
Madshus eitt besta vörumerkið
GG Sport keypti Madshus
gönguskíðaumboðið í haust af
Bobba á Ísafirði, sem var búinn að
leggja góðan grunn sem verslunin
byggir nú á. „Madshus er eitt besta
vörumerkið og í GG Sport verðum
við án efa leiðandi á markaðinum.
Bobbi hefur sagt það sjálfur að
þegar hann sá hvernig við unnum
af fagmennsku, þá ákvað hann að
slá til, enda framtíðin björt fyrir
Madshus á Íslandi. Við erum líka
með frábæra endursöluaðila hjá
Útisport Akureyri og Ísfell verslun
Húsavík. Auk þess opnum við um
komandi mánaðarmót skíðadeild
hjá og í samstarfi við Ellingsen á
Granda.
Skíðadeildin kærkomin viðbót
Vinsældir skíðaíþróttarinnar vaxa
ár frá ári hérlendis og því er nýja
skíðadeildin kærkomin viðbót,
segir Leifur. Enda hefur verið tals-
verð áskorun að þjóna sívaxandi
útivistaráhuga Íslendinga undan-
farin ár, t.d. þegar kemur að göngu-
skíðum og öðrum vetraríþróttum.
„Við gerum okkar besta til að fylgja
eftir því sem viðskiptavinir okkar
vilja sjá í GG Sport. Ekkert hefur
vaxið eins hratt hérlendis og áhug-
inn á gönguskíðum. Þeim áhuga er
fylgt eftir með góðum verslunum,
gönguskíðahópum og nýjum og
betri leiðum um allt land, sem er
vel haldið við.“
Aðgengi að gönguskíðaslóðum
er því orðið mjög gott. „Það skapar
nýjan heim fyrir okkur sem höfum
áhuga á hreyfingu og útivist.
Þegar þú eignast par af göngu-
skíðum ertu að fjárfesta í vellíðan
og upplifun sem skilar sér svo í
betra eintaki af sjálfum þér. Það er
pínu skrítið að maður er farinn að
hlakka til þessa tímabils, sem er
jafnan dimmustu mánuði ársins.
Vinnudagurinn er alltaf skemmti-
legur þegar ég veit hvert ég er að
fara að bruna eftir vinnu. Þá förum
við yfirleitt saman ég, konan og
sjö ára strákurinn, því gönguskíði
eru fyrir alla fjölskylduna. Ef ég
vil fara hraðar yfir þá geri ég það
bara og konan tekur bara næsta
hring á meðan ég dúlla mér með
stráknum.“
Góðar ráðleggingar
Hann segir helstu sérstöðu GG
Sport vera, utan þeirra gæða-
vara sem verslunin býður upp á,
að passa vel upp á viðskiptavini
og gefa þeim góðar ráðleggingar.
„Salan kemur að sjálfu sér í fram-
haldinu. Ef við til dæmis setjum
þetta í samhengi við göngu-
skíðin, þá skiptir máli að finna
rétta spennu miðað við þyngd
notandans. Þá fær maður svokall-
aða flex-tölu. Við hvikum ekkert út
frá þessari tölu. Gönguskíðin eru
nefnilega þannig að þegar staðið er
jafnfætis á skíðunum snertir miðj-
an ekki snjóinn. Undir miðjunni
er sóli sem drífur þig áfram þegar
sparkað/ýtt er niður á skíðið með
öðrum fætinum. Þá þarf spennan
að vera hárrétt miðað við hvern og
einn og með réttu skíðunum svífur
þú áfram.“
Spennandi nýjungar
Ýmsar spennandi nýjungar eru í
vændum í vetur. „Við ætlum okkur
ekkert að gefa eftir þegar kemur
að fjallaskíðum og erum að taka
inn mjög töff fjallaskíði frá Black
Crows, ásamt því að vera með
aukið úrval í K2 fjalla- og svigskíð-
um og snjóbrettum. Einnig vorum
við að taka inn fisléttar fjallaskíða-
bindingar frá ATK og íþróttagler-
augu frá BlIZ sem henta einkar vel
á gönguskíði, í hlaup og hjólreiðar.
Þannig að það er stöðugt eitthvað
nýtt í gangi hjá okkur.“
Leifur er bjartsýnn á veturinn.
„Þjónustan er okkar helsta vara.
En auðvitað þarf að fylgja góðri
þjónustu eftir með öflugum og
áreiðanlegum vörumerkjum. Fyrir
hönd viðskiptavinarins þá tikkum
við í öll box hvað þetta varðar.
Hér eru aldrei vandamál sem
ekki er hægt að leysa, við megum
aldrei gleyma því fyrir hverja við
vinnum. Með þetta að leiðarljósi
verður líka vinnan svo gefandi og
skemmtileg.“ ■
Gönguskíði eru fyrir alla fjölskylduna
Leifur Dam Leifsson (t.v.), annar eigenda GG Sport, og Guðmundur sérfræðingur úr skíðadeildinni.
Úrval af Madshus gönguskíðum. Viðskiptavinir fá ráðgjöf við val á skíðum.
Ný og glæsileg skíðadeild GG Sport í Kópavogi skartar vönduðum merkjum
á borð við Madshus, K2, BlIz og Black Crows. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Í GG Sport er gott úrval af K2 snjóbrettum og svigskíðum fyrir fjölskylduna. Madshus gönguskíðin eru fáanleg á alla fjölskylduna.Vandaður skíðafatnaður frá Peak Performance.
K2 fjallaskíðin koma sterk inn í vetur.
Við erum afar stolt
af búðinni okkar,
það er stór hluti af þessu
öllu.
Leifur Dam Leifsson
ALLT kynningarblað 5FIMMTUDAGUR 25. nóvember 2021