Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 40
32 Íþróttir 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR
hoddi@frettabladid.is
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Kynslóðaskipti lands-
liðsins halda áfram en á nokkrum
mánuðum hafa fjórir af þrettán
leikjahæstu leikmönnum íslenska
karlalandsliðsins, sem áttu stóran
þátt í velgengni þess undanfarin
ár, tilkynnt að landsliðsferlinum
sé lokið.
Einn þeirra, Kári Árnason, hefur
lagt skóna endanlega á hilluna og
Hannes Þór Halldórsson liggur
undir feldi með næsta skref fer-
ilsins á 38. aldursári en Ari Freyr
Skúlason er áfram samningsbund-
inn Norrköping og Birkir Már Sæv-
arsson Val. Samanlagt eiga þessir
fjórir 353 leiki fyrir Íslands hönd.
Þessir f jórir, ásamt Ragnari
Sigurðssyni, byrjuðu alla leikina
þegar karlalandsliðið komst í fyrsta
skiptið á stórmót og komst í átta
liða úrslitin á Evrópumótinu 2016.
Hlutverk Ara minnkaði í undan-
keppni HM 2018 þegar Hörður
Björgvin Magnússon byrjaði sex
leiki og alla leiki Íslands á HM í
Rússlandi en Ari var aftur kominn
í stærra hlutverk í næstu undan-
keppni.
Fréttablaðið fékk Frey Alexand-
ersson, sem var hluti af þjálfara-
teymi landsliðsins á HM 2018 og
aðstoðarþjálfari í undankeppni
HM 2020, til þess að fara stuttlega
yfir afrek þeirra með landsliðinu. n
Fjórar hetjur
úr landsliðinu
kveðja sviðið
Líklegt er að gamla bandið sem iðulega var talað um í undan-
keppni EM 2020 undir stjórn Eriks Hamrén hafi leikið sitt síð-
asta lag á dögunum. Ari Freyr Skúlason og Birkir Már Sævars-
son voru tveir af þremur síðustu leikmönnum íslenska hópsins
sem léku á Evrópumótinu 2016 en þeir tilkynntu að landsliðs-
ferlinum væri lokið. Stríðsmenn og frábærir einstaklingar, segir
fyrrverandi aðstoðarþjálfari landsliðsins.
Hannes Þór gaf Íslendingum varið víti gegn Lionel Messi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Hannes Þór Halldórsson
77 leikir 0 mörk 102 mörk fengin á sig
34 sigrar 13 jafntefli 30 töp
„Það er best og viðeigandi að lýsa ferli hans
með kvikmyndahandriti, sem væri eins og hálf-
gerð lygasaga. Þegar ég kynnist honum er hann
markmaður í yngri flokkum Leiknis og vara-
markmaður í annarri deild en hann verður síðan
besti markmaður Íslandssögunnar sem spilar í
lokakeppni EM og HM.
Mín upplifun frá því að vinna með honum
innan landsliðsins, var hvað hann hafði mikið
vægi innan leikmannahópsins. Hannes veitti
gott jafnvægi á milli þeirra sem voru að spila á
hæsta stiginu og annarra leikmanna. Hann var
ótrúlega mikilvægur fyrir jafnvægi leikmanna-
hópsins. Hann var mikill leiðtogi og mikilvægur
í klefanum, tók skotum vel en var um leið dug-
legur að skjóta til baka.“
Kári Árnason
90 leikir 6 mörk 6 stoðsendingar
32 sigrar 20 jafntefli 38 töp
„Held að flestir þjálfarar séu sammála um að
það hafi verið algjör draumur að vinna með
Kára. Hann hélt mönnum á tánum, bæði sam-
herjum og þjálfurum.
Ef það var eitthvað sem var ekki rétt, þá lét
Kári mann vita og lagði fram sínar hugmyndir.
Hann var ekkert bara að kvarta til að kvarta
heldur yfirleitt með lausnir til staðar. Það kæmi
mér ekkert á óvart ef hann myndi láta að sér
kveða áfram í knattspyrnuheiminum enda getur
hann lagt margt gagnlegt til málanna,“ segir
Freyr um miðvörðinn.
„Inni á vellinum var þetta einn mesti stríðs-
maður sem hægt er að finna og var tilbúinn að
fórna sér í hvaða aðstæðum sem er. Hann stóð
alltaf fyrir sínu enda frábær í að lesa leikinn og
öflugt vopn í föstum leikatriðum. Það voru ein-
hverjir með áhyggjur af hraðanum, örugglega
í tíu ár, en hann lét aldrei nappa sig. Hann sá til
þess að aðrir myndu loka réttu svæðunum svo
að hann myndi ekki líta illa út. “
Álitsgjafinn
Freyr Alexandersson var aðstoðarþjálfari Eriks Hamrén, og í kring-
um landsliðið sem njósnari og leikgreinir í tíð Heimis Hallgríms-
sonar. Hann stýrir nú Lyngby í dönsku b-deildinni þar sem liðið er í
öðru sæti og í harðri baráttu um að komast upp í efstu deild.
Birkir Már Sævarsson
103 leikir 3 mörk 5 stoðsendingar
35 sigrar 20 jafntefli 48 töp
„Líkt og hjá Hannesi ná kynni mín af Birki lengra
aftur. Fyrstu kynni mín af Birki eru úr háskólanum
á Laugarvatni þar sem hann er varamaður í Val
og að biðja um hjálp í ræktinni því hann þyrfti að
bæta snerpuna. Hann þurfti svo ekkert á því að
halda, þurfti að þyngjast aðeins,“ segir Freyr.
„Hann er frábær einstaklingur og eins og
Hannes reyndist Birkir mjög mikilvægur fyrir
valdajafnvægi innan landsliðshópsins. Birkir
var þögli stríðsmaðurinn sem var alltaf hægt að
stóla á.
Hann lét aldrei vaða yfir sig, hvorki innan né
utan vallar af mótherja né samherja. Um leið
voru aldrei nein vandræði í tengslum við hann,
ég man þegar hann var að hrökklast út úr hópn-
um í undankeppni EM 2020 hvað mér fannst það
erfitt en hann tæklaði það á sinn hátt, af mikilli
fagmennsku. Hann er algjör eðalmaður.“
Ari Freyr Skúlason
83 leikir 0 mörk 6 stoðsendingar
29 sigrar 8 jafntefli 36 töp
„Ari er frábær knattspyrnumaður sem var mjög
gaman að vinna með. Hann hefur ákveðið
hugarfar sem suma knattspyrnumenn skortir.
Alveg sama hversu stórt verkefnið var, þá var Ari
tilbúinn í slaginn. Þegar mótherjarnir tefldu fram
einhverjum stórum kantmanni til að pönkast á
litla bakverðinum okkar, þá hló hann að því og
tók því fagnandi,“ segir Freyr, spurður um Ara.
„Þjálfarateymið þurfti sjaldan að bregðast við
því hann tókst á við hvaða áskorun sem var sem
mótherjarnir lögðu fyrir hann og það reyndist
ekkert verkefni of stórt fyrir hann. Hann er
stríðsmaður, mikill karakter og um leið góður
fótboltamaður sem gat leyst hvaða stöðu sem
er og verkefni sem er.“
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA