Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 64
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Kolbeins
Marteinssonar
n Bakþankar
Ekkert samband í lífi mínu hefur
breyst jafn mikið með tímanum og
samband mitt við jólin. Sem barn
var ég að springa af tilhlökkun
og gleði. Jólin voru sannarlega
hápunktur ársins. Í dag er það sam-
veran með fólkinu mínu sem mér
þykir vænst um við jólin. En jólin
eiga sér dekkri hlið sem eru enda-
laus markaðsskilaboð í aðdraganda
þeirra. Skilaboð um að okkur vanti
enn þá meira í ár en í fyrra og að
eina leiðin til að sýna ást sé með
dýrum gjöfum. Niðurstaðan verður
oft streita, óþarfa vesen og ofneysla.
En verstur er óþarfinn. Allar
þessar gjafir sem eru gefnar af
því bara og enda eftir opnun í
Sorpu eða ruslinu síðar. Allt eru
þetta þættir sem hafa slæm áhrif
á umhverfið, fjárhag okkar og eru
afleiðing vel smurðrar markaðs-
vélar sem endurtekur í sífellu að
það sem við höfum sé ekki nóg. Það
er keyrð upp sturluð neysla á öllu
þegar kemur að hátíð ljóss og friðar.
Þess vegna ættum við að prófa
þessi jólin að gefa færri gjafir, gjafir
sem við höfum ekki hugmynd
um hvort viðkomandi muni ein-
hvern tímann nota. Gefum frekar
upplifanir, boðsmiða í leikhús eða
gjafakort sem þiggjandinn getur þá
ráðstafað að vild. Rannsóknir hafa
líka sýnt að upplifanir færa okkur
miklu meiri gleði og djúpstæðari
minningar en eitthvert dót sem
við fengum. Það að þú eyddir ekki
hálfum degi í að finna rétta gjöf
handa maka þínum þarf ekki að
bera vott um kaldlyndi eða tilfinn-
ingadoða. Í stað þess að kaupa gjöf
sem þú veist ekki hvort viðkomandi
langar í skaltu skrifa einlægt og
fallegt kort með. Slík nálgun eykur
hagkvæmni jólanna, sparar mikinn
tíma og er svo ljómandi góð fyrir
umhverfið. Notaðu svo tímann sem
sparast í að njóta. n
Jólapening
Svartur
FÖSTU-
DAGUR
26. - 28.
nóvember
Valdar vörur
á 20-45%
afslætti
Fylgstu með á byko.is
allt að 50% afsláttur
25% af öllum barnavörum
Eldur Jakki
Nú kr. 9.743.-
Kr. 12.990.-
Eldur Buxur
Nú kr. 5.993.-
Kr. 7.990.-
Vindur úlpa
Nú kr. 14.243.-
Kr. 18.990.-
Kynntu þér frábær tilboð í
SVARTUR FÖSSARI
25.--28. NÓVEMBER