Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 25.11.2021, Blaðsíða 26
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Dýrahald snýst í eðli sínu um dýra- vernd. En í þessum efnum hafa lögin þar að lútandi verið þver- brotin – og það árum saman. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Kíktu í heimsókn! Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is Verð áður 89.900 kr. Sjá nánar á patti.is SX 7921 hægindastóll 45.000 kr. SVARTUR FÖSTUDAGUR Tilboð 22.-27. nóvember Síðasta ár var metár í uppbyggingu íbúða í Reykjavík, þegar rúmlega 1.500 nýjar íbúðir komu inn á markað. Árið þar á undan voru þær yfir þúsund. Það stefnir í að þær verði í ár vel yfir þúsund. Meðaltal áranna 2018-2021 er þegar komið yfir 1.000 íbúðir á ári. Það hefur ekki áður gerst í sögu borgarinnar, þótt árin í kringum uppbyggingu Breiðholts og Grafarvogs hafi vissulega líka verið góð. Tilraunir Samtaka iðnaðarins til að mála þetta blómaskeið sem kreppu taka stundum á sig furðulega mynd. Eins og sá samanburður að „einungis“ rúmlega 2.000 íbúðir hafi byggst upp árlega á höfuðborgarsvæðinu, á meðan rúmlega 3.000 vanti á landinu öllu. Reynt er að láta líta út eins og það sé 1.000 íbúða gat. Staðreyndin er að ekkert er óeðlilegt við að landsvæði, þar sem 2/3 landsmanna búa, skaffi 2/3 nýrra íbúða. Ástandið á landinu öllu er raunar einn- ig ágætt. Samkvæmt Þjóðskrá fjölgaði í fyrra íbúðum á landinu um tæplega 4.000. Lands- mönnum fjölgaði um 4.600 svo að það nánast bættist við ein íbúð fyrir hvern nýjan Íslending. Með sömu þróun mun hratt saxast á útreiknaða íbúðaþörf. Nóg verður hægt að byggja í Reykjavík á næstu árum. Yfir 2.000 íbúðir eru í byggingu. Yfir 3.000 íbúðir eru á deiliskipulögðum svæðum. Mörg þúsund íbúðir eru í skipulagsferli og vegur Ártúnshöfðinn þar þyngst. Lóðir fyrir yfir 1.600 íbúðir gengu kaupum og sölum milli einkaaðila í seinustu viku. Borgin sjálf hefur sett upp áætlun um að úthluta lóðum fyrir allt þúsund íbúðir á ári næsta áratug. Ábyrgð okkar er fyrst og fremst að sjá til þess að uppbygging haldist áfram, jafnt og þétt. Sé horft til nýbyggingarsögu landsins er það varla lærdómurinn að topparnir í kringum 1970, 1990 og 2007 hefðu mátt vera enn hærri. Mun frekar að lægðirnar þar á milli hefðu ekki þurft að vera svona djúpar. Að því þurfum við að vinna. ■ Met í Reykjavík Pawel Bartoszek borgarfulltrúi Viðreisnar og for- maður skipulags- og samgönguráðs Enginn þarf að velkjast í vafa um að svonefndar blóðmerar eru beittar harðræði hér á landi, eftir að hafa horft á hryllilega meðferð á þeim á myndum sem alþjóðlegu dýra- verndarsamtökin Animal Welfare Founda- tion gerðu nýverið opinberar. Þær voru teknar með földum myndavélum á bæjum íslenskra hrossabænda sem selja merablóð. Málið er allt hið ógeðfelldasta, jafnt dýra- níðið sjálft, sem vanræksla opinberra stofnana og næsta augljós meðvirkni með harðneskju- legri græðginni í þessum efnum. Dýrahald snýst í eðli sínu um dýravernd. En í þessum efnum hafa lögin þar að lútandi verið þverbrotin – og það árum saman. Eftir stendur sködduð ímynd af hrossarækt hér á landi og harla sprunginn stallur íslenska hestsins, sem hefur verið eitt af einkennistáknum íslenskrar þjóðmenningar um aldir, enda einstakur á heimsvísu fyrir fjölhæfni sína. Kjarni þessa máls er sá að ómögulegt er að taka blóð úr ótömdum og hálfvilltum hryssum í sérstökum blóðtökubásum án þess að beita þær harðræði, svo sem myndir dýra- verndarsamtakanna sanna, en dýrin eru þar bundin í þröngu hólfi, höfuðið reyrt upp og slám skotið yfir og aftan við þau áður en slag- æðin á hálsi er rofin og fimm lítrum er tappað af skelfingu lostinni merinni næstu fimmtán mínúturnar – og vel að merkja, allan þann tíma reynir hún allt hvað af tekur að brjótast úr búri sínu. Eftir þennan ótuktarskap stendur hryssan varla undir sér, enda búin að missa 15 prósent af blóði sínu – og til að bíta höfuðið af skömm- inni er athæfið svo endurtekið næstu átta vikur, en þá er búið að tappa af dýrinu sem nemur heildarblóðmagni þess. Allt er þetta gert til að svala gróðahyggju mannsins, ekki aðeins þeirra liðlega hundrað bænda sem leyfa þennan óskunda á býlum sínum, heldur líka forkólfa fyrirtækisins Ísteka sem kaupa árlega um 170 tonn af blóði úr þúsundum mera til að auka frjósemi gyltna á svínabúum, en PMSG-hormónið úr fylgju blóðmerarinnar, sem sprautað er í gylturnar, rýfur tíðahring þeirra svo hægt er að sæða þær miklu oftar. Níðingsskapurinn á blóðmerum er því gerður til að fjölga grísum á færibandi í iðnaðarframleiðslu. Matvælastofnun skrifar upp á þessi ósköp. Því fari fjarri að „augljóslega þurfi að beita hryssurnar ofbeldi“ við aftöppun blóðsins, eins og segir í einu svara hennar. Þau orð eru komin á öskuhauga eftirlitsins. ■ Dýraníð benediktboas@frettabladid.is arib@frettabladid.is Klúðursamband Íslands Hvernig getur stærsta batterí í íslenskum íþróttum sífellt klúðrað málum svo eftir er tekið? Það klúðr- aði því reyndar ekki að bjóða manni sem átti að hætta að drekka á fyllerí, það var viljandi. Íslenskir fjölmiðlar komust á snoðir um maðk í mys- unni á mánudag og fóru að herja á formann KSÍ, landsliðs nefndina og fleiri starfsmenn sambandsins. Ekkert var sagt. Ekkert var gefið út. Svo þegar flestir voru gengnir til náða birtist yfirlýsing klukkan hálf tólf þar sem Eiður Smári var búinn að missa vinnuna sína. Síðast þegar KSÍ ætlaði að vera sniðugt var fyrir Króatíuleikinn árið 2013. Þá seldi það miða um miðja nótt. Ingi og félagar Fólksfæðin er loksins almenni- lega að koma í bakið á okkur, verkefnin eru orðin svo sérhæfð að sá eini sem getur haft eftirlit með eftirlitsmanninum er hann sjálfur. Sama fólkið starfaði fyrir undirbúningsnefndina frægu og landskjörstjórnina, leikur grunur á að það fólk hafi líka verið að redda sér aukapeningum með því að telja atkvæði í Borgarnesi. Ingi dómari getur svo ekki dæmt Inga yfirstjórnarmann, sérstaklega ekki á grundvelli vitnisburðar Inga fast- eignasala um að allt hafi verið með felldu. Stefnir allt í að Norðvestur- kjördæmismálið muni rekja upp hina yfirborðskenndu íslensku stjórnsýslu. ■ SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 25. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.