Heilsuvernd - 01.03.1952, Blaðsíða 7
HEILSUVERND
3
hún hefir ekki vit á því að forðast þær hættur, sem baka
mönnum sjúkdóma og dauða.
Vísindalegar rannsóknir hafa sýnt og sannað, að sjúk-
dómar koma af orsökum, sem unnt er að forðast. En í
stað þess að hlíta þeim ráðum og ganga þá braut, sem
visindin sýna að leiða til heilbrigði, álpumst vér út í fenið
og verðum þar sjálfdauð, ef svo má segja.
Ég er sannfærður um, að hægt er að komast hjá orsök-
um flestra sjúkdóma með réttum lifnaðarháttum. Þetta
er það mikilsverðasta, sem ég hefi haft upp úr því að verja
hverjum eyri, svo að segja, er ég hefi innunnið mér í fullan
hálfan sjötta tug ára, og svo að segja hverri hugsun, í leit
að leið út úr ógöngum vaxandi kvillasemi þjóðarinnar, og
mestöllu starfi mínu síðan ég tel mig hafa orðið vitandi
vits. Ég hefi bakað mér óvild margra manna fyrir það að
halda fram þessari sannfæringu minni. En á þá andstöðu
lít ég sem andlega nærsýni.
Náttúrulæknirinn Hippókrates, sem lifði fyrir fullum
2300 árum, gaf þessi ráð í læknisfræði sinni: Eæðan (þ. e.
lifandi fæða) skal vera ykkar lyf, og ykkar lyf skal vera
(lifandi) fæða.
Höfum vér farið eftir þessum ráðum? Það er nú síður
en svo. Vér höfum farið þveröfuga leið og bakað oss sjúk-
dóma. Vér étum og drekkum fæðu, sem gerir oss sjúka,
og tökum inn eiturlyf, sem valda oss vanheilsu og dauða.
Hinn hvíti, menntaði maður (homo sapiens) er nú hvorki
vitrari né heimskari en þetta.
Menn skilja ekki hinn rétta feril sjúkdómanna. Hann er
sá, að vér framleiðum flestalla sjúkdóma með neyzlu
dauðrar og ónáttúrlegrar fæðu og fleiri heimskulegum lífs-
venjum og tiltækjum. Sannleikurinn er sá, að líkami manna
og heilbrigði eru háð ákveðnu lífslögmáli, sem vér verðum
að hlíta eða taka við afleiðingunum ella á vort eigið bak.
Og þær eru hrörnunarsjúkdómarnir í heild, sem enda oft
með krabbameini. Það kemur fram á einum stað fyrst, en
er sjúkdómur í öllum líkamanum og verður aldrei læknað