Heilsuvernd - 01.03.1952, Page 8

Heilsuvernd - 01.03.1952, Page 8
4 HEILSUVERND með eituriyfjum né deyðandi geislum, heldur með líf- geislum sólarljóssins, sem falla á líkama manna, jafnframt því sem þeir lífga bæði láð og lög, og þaðan meðtaka jurtirn- ar þá og gefa þá til heilsuræktar og heilsubóta mönnum og dýrum. Þannig er maðurinn upp úr moldu kominn. En and- inn, sem byggir sér musteri úr jurtaleir, hverfur aftur til sinna heimkynna. Stofnað hefir verið félag til að berjast gegn krabbamein- inu. Það hefir safnað fé til kaupa á röntgentækjum til þess að lækna þennan sjúkdóm. Hvað eru röntgentæki? Þau framleiða með hávísindalegum hætti drápsgeisla, sem geta drepið krabbameinsfrumurnar. En um leið veikla þeir allar heilbrigðar frumur, sem þeir skína á. f biblíunni segir guð við hina fákænu manneskju: Sjá, ég gef ykkur allskonar sáðberandi jurtir á allri jörðinni og allskonar tré, er bera ávöxt með sæði í. Það skal vera ykk- ur til fæðu. En hverjir eru þá hinir bönnuðu ávextir? Vér gætum sagt, að það sé dauð og deydd fæða. Eg sá um daginn tvær aug- lýsingar. Á annarri stóð: Drekkið sjóðandi kaffi. I hinni stóð: Drekkið ískalt kóka-kóla. Hvorttveggja er vænlegast til að eyðileggja heilsu manna. Svona er mannskepnan vit- ur, eða hitt þó heldur. Þar sem nú rétt valin fæða getur ein bjargað og viðhaldið lífi voru og verið oss lyf, þá ætti val hennar að vera það ábyrgðarstarf, að læknum einum væri trúað fyrir því, þar sem ekkert er góðri heilsu æðra né dýrmætara fyrir hvern einstakling og hverja þjóð. En sjálfir hafa læknarnir löng- um talið þetta óvísindalegt starf. Þeir eru önnum kafnir við að lagfæra það, sem sýnilega er bilað í líkama vorum, smíða nýjar tennur, þegar vér höfum eyðilagt þær með röngum lífsvenjum, skera kokeitla úr hálsi, skera brabba- mein og sár úr maga, gefa deyfilyf o. s. frv. Og oft eru unn- in óbótaverk á heilsu manna með eitri og allskonar lyfja- gjöf, sem er kallað vísindi. I stað þess að hin sönnu vísindi eru það að útrýma orsökum sjúkdómanna.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.