Heilsuvernd - 01.03.1952, Side 14
HEILSUVERND
Þorsteinn Kristjánsscn:
Lífrcenar
rcehtunaraðferðir.
Höfundur þessarar greinar er ungur Reykvíkingur, sem fékk árs-
vist á enskum búgarði fyrir milligöngu NLFÍ. Þar eru aðeins notað-
ar lífrænar ræktunaraðferðir, sem hann kynntist þannig bæði verk-
lega og fræðilega.
Eftir því sem líffræðinni fleygir fram, fer áhugi vísinda-
manna á hinum lífræna jarðvegi vaxandi, enda er hann ein
aðal undirstaðan undir öllu æðra lífi á jörðinni. Án hins
smávaxna gerlagróðurs í moldinni væri rofinn hlekkur í
þeirri keðju orsaka og afleiðinga, sem viðheldur lífinu á
jörðinni.
Þetta hefir mönnum ekki ávallt skilizt, og hefir sú van-
þekking leitt til þess, að þeir hafa hafið strið gegn náttúr-
unni, gegn undirstöðu síns eigins lífs. Þetta hefir m. a.
komið í ljós með sívaxandi rányrkju jarðar. Rányrkja er að
vísu ekkert nýtt í þessum heimi, og mörg af hinum gömlu
stórveldum féllu einmitt vegna þessa. Skilningsleysi manna
Liek lét sér ekki nægja að varpa fram þessari staðhæf-
ingu. Hann tók sem dæmi henni til sönnunar ýmsar ákveðn-
ar ritgerðir og niðurstöður mikilsmetinna prófessora, og má
geta þvi nærri, að þeir tóku því ekki með þökkum.