Heilsuvernd - 01.03.1952, Blaðsíða 15
HEILSUVERND
11
á moldinni og þýðingu hennar hefir einatt leitt til hungurs-
neyðar. Landið hafði verið rányrkt, og það hafði blásið upp,
og hungruð þjóð með uppblásið land á sér ekki langra líf-
daga auðið. Þetta tilheyrir fortíðinni, mundi ef til vill ein-
hver hugsa. Þvi miður er því ekki svo farið.
Rányrkja vex á mörgum stöðum með ískyggilegum
hraða, enda hefir hún oft haft vísindin í þjónustu sinni til
hraðari tortímingar landinu. Mesta land tæknilegra fram-
fara er án efa Bandaríkin. Rányrkja hefir þar notið tækn-
innar við, því að skýrslur frá landbúnaðarráðuneytinu, sem
ná yfir síðastliðin 100 ár, sýna, að um 61% af yfirborðs-
jarðvegi Bandaríkjanna hafa blásið eða skolazt burtu.
Hér verða menn að skilja mismuninn á hinum lifandi
yfirborðsjarðvegi og hinum dauða jarðvegi, sem undir er.
I yfirborðsjarðveginum er allt hið lifandi frjómagn jarðar,
jurtaleifar, sem í árþúsundir hafa safnazt þar fyrir og
myndað þetta frjósama yfirborðslag, sem nokkurra ára
eða áratuga rányrkja getur eytt með öllu, annaðhvort með
beinni eyðingu frjóefna moldarinnar, svo að landið blæs upp,
eða með röskun á jafnvægi náttúrunnar, t. d. eyðingu
skóga, sem getur leitt til þess, að yfirborðsjarðvegurinn
skolast í burtu til hafs.
Fyrir utan þessa 61% jarðvegseyðingu hefir einnig orðið
vart vaxandi jarðvegshörðnunar, sem eflaust má rekja til
tilbúna áburðarins. Rányrkja er fremur afsakanleg hjá
frumstæðum þjóðum, sem þar að auki eiga hungursneyð
yfirvofandi, ef jörðin er ekki pínd til hins ítrasta. Þeir
verða því að lifa fyrir daginn í dag til þess að geta haldið
lífi. En þegar slíkt kemur fyrir hjá þjóðum, sem álitnar eru
menningarþjóðir, er það óafsakanlegt. Það hefir aldrei
vofað hungursneyð yfir Bandaríkjunum t. d. Þvert á móti
hefir offramleiðsla oft á tíðum þjakað landinu og átt sinn
þátt í að valda kreppum og óáran. Hefir jafnvel gengið svo
langt, að verðlauna hefir þurft þá bændur, sem minnst
framleiddu, til að halda framleiðslunni niðri. Stjórnin hefir
gert víðtækar ráðstafanir til heftingar landeyðingu, en