Heilsuvernd - 01.03.1952, Page 17
HEILSUVERND
13
ur hefir verið undir þessa starfsemi. ,Eg dvaldist þar nokkra
daga sumarið 1950 og kynntist á hvern hátt tilraununum
var hagað. Landinu var skipt í þrjá jafnstóra hluta. Einn
hlutinn var eingöngu ætlaður til kornræktar og ekkert
annað notað til áburðar en loftáburður, eða svipað og gert
er í mestu kornræktarlöndum heimsins. Á næsta hluta
er blandaður áburður, þ. e. venjulegur húsdýraáburður og
loftáburður eins og algengast er. Föðrið sem kemur af
þessum hluta landsins, bæði hey, korn og kál, er notað
handa helmingi bústofnsins. Þriðji hlutinn, sem er haldið
vandlega aðskildum, er eingöngu ræktaður með lífrænum
áburði og allt fóður af þeim hluta er notað til fóðrunar á
öðrum helming bústofnsins. Til að koma í veg fyrir hlut-
drægni, eru tveir bændur úr sama héraði, annar, sem notar
eingöngu loftáburð á sínum búgarði og álítur það vera
bezt, en hinn blandaðan áburð, látnir hafa eftirlit og segja
fyrir verkum, hvor á sínu sviði. En þriðja hlutanum, þeim
lífræna, stjórnar forstjóri tilraunanna, Lady Eve Balfour,
Hún er þekkt fyrir rit sín um landbúnað í Englandi. Upp-
haflega var gert ráð fyrir, að eitthvað af kostnaðinum við
að reka slíka tilraunastöð væri hægt að fá frá einhverri
áburðarverksmiðju. Voru sendar áskoranir til áburðar-
framleiðenda um að sanna nú fullyrðingar sínar um ágæti
tilbúins áburðar með raunhæfum tilraunum, og skyldu þær
tilraunir vera undir sameiginlegu eftirliti áburðarframleið-
enda og félagsins The Soil Association. Allir áburðarfram-
leiðendur, sem skorað var á, færðust undan og höfnuðu
tilboðinu. Þeir hafa lært það af reynslunni, að raunhæfar
tilraunir geta oft komið gróðafíkninni illilega í koll.
Árið 1950 höfðu þessar tilraunir aðeins staðið í 3 ár og
ekki mikils árangurs hægt að vænta á svo stuttum tíma.
Þó hafði ýmislegt komið í ljós, sem benti til þess, að til-
raunirnar væru á réttri leið.
I þessu riti hefir áður verið lýst safnhaugagerð þeirri,
sem kennd er við Albert Howard og er allútbreidd í Eng-
landi. Fyrir menn, er lært hafa safnhaugagerð verklega,