Heilsuvernd - 01.09.1952, Síða 11
HEILSUVERND
Brynjúlfur Dagsson, læknir:
Um tóbflk
oo tóbahsnoiitn
Erindi flutt í ríkisútvarpið
27. júní 1952.
Tóbaksnautn, einkum sígarettureykingar, hafa vakið
aukna athygli lækna og vísindamanna viða um heim nú á
allra síðustu árum, vegna þess fyrst og fremst, að vaknað
hefir grunur um, að óhófleg tóbaksnotkun, einkum reyk-
ingar — og alveg sérstaklega sígarettureykingar — kunni
að vera orsök til krabbameins í lungum, en sá sjúkdómur
virðist fara ört vaxandi á síðari árum. Hér á landi hefir
prófessor Níels Dungal vakið máls á þessu opinberlega.
Hér er lungnakrabbi að vísu mjög sjaldgæfur sjúkdómur,
enn sem komið er a. m. k. Próf. Dungal telur ástæðuna þá,
að til skamms tíma hafa sígarettureykingar verið tiltölu-
lega hóflegar hér á landi. En hann spáir breytingu í því
efni, að lungnakrabbi gæti farið í vöxt, ef svo fer fram,
sem nú horfir um hóflitlar og vaxandi sígarettureykingar.
Alvarlegum og vel rökstuddum aðvörunum, sem fram
hafa komið, hefir þó verið lítið sinnt til þessa, og tóbaks-
notkun fer enn vaxandi, rneð ískyggilegum hraða að sumra
manna máli. Enda er við ramman reip að draga, því að
ræktun, iðnaður og sala tóbaks er stórkostlegt hagsmuna-
mál heilla þjóða, að því ógleymdu, að það gefur sítómum