Heilsuvernd - 01.09.1952, Blaðsíða 23
HEILSUVERND
J. Ellis Barker:
Merkileg sjúkdómssaga.
Englendingurinn J. Ellis Barker er læknissonur, fæddur árið 1870.
Fyrri hluta ævi sinnar átti hann við mikið heilsuleysi að stríða,
sem nær hafði dregið hann til dauða. Með hreyttum lifnaðarháttum
öðlaðist hann fulla heilsubót, og upp frá því tók hann að leggja stund
á lestur bóka um læknisfræði og heilsufræði. Hefir hann lesið ó-
grynnin öll um þau efni og mun flestum fróðari á þvi sviði. Hann
hefir ritað margar bækur um heilbrigðismál og læknisfræðileg efni,
þar á meðal tvær bækur um krabbamein, orsakir þess og varnir
gegn því. Hinn frægi enski skurðlæknir, Sir W. Arbuthnot Lane,
hefir ritað formála að ýmsum bókum Barkers, og er það til marks
um álit hans á höfundinum.
Eftirfarandi frásögn er úr einni bók Barkers, „Good Health and
Happiness“ (Heilbrigði og hamingja), sem kom út í London 1927.
Frásögn þessi er mjög lærdómsrík og sýnir betur en langar ritgerðir
orsakasambandið milli lifnaðarháttanna og heilsunnar.
Eg gat þess í upphafi þessarar bókar, að hún byggðist
ekki aðeins á ævilöngu námi og athugun, heldur og á tals-
verðri eigin reynslu. Líkami minn hefir fengið að kenna á
eyðileggjandi áhrifum rangs mataræðis og rangra lifnaðar-
hátta, en hann hefir einnig notið góðs af þeim miklu hags-
bótum, sem hver maður getur orðið aðnjótandi, ef hann
hverfur aftur til náttúrunnar. Eg hefi komizt að raun um,
að hæfileiki líkamans til þess að laga sig eftir nýjum skil-
yrðum, gera við og endurnýja skemmd og illa leikin
líffæri er svo að segja ótakmarkaður. Auðvitað verður
unnið tjón ekki afturtekið, slitin eða stórsködduð líffæri
eða vefi er ekki hægt að taka og setja önnur spáný í staðinn.
En við getum eigi að síður unnið bug á verstu áhrifunum af
syndum okkar gegn líkamanum og öðlast nýja heilsu og