Heilsuvernd - 01.09.1952, Blaðsíða 34
94
HEILSUVERND
FÉLAGSFRÉTTIR O. FL.
Matreiðslubókin kom út í byrjun júlí, og seldist fyrsta prentun
upp á einum mánuði. Önnur prentun kom út snemma í ágúst,
og stendur salan enn sem hæst. Verður þetta vafalaust metsölu-
bók félagsins, en til þessa hefir Matur og megin skipað þann sess.
Kornmyllur eru nú komnar upp á Akranesi og Siglufirði á veg-
um félagsdeildanna þar, auk Akureyrar og Reykjavíkur. í pöntun
er mylla fyrir ísafjarðardeildina.
Heilhveitibrauð úr nýju mjöli frá kornmyllu N.L.F.Í. í Reykja-
vík eru nú bökuð í nokkrum brauðgerðarhúsum i Reykjavík
(sjá auglýsingar liér í heftinu). Þykja þau hið mesta lostæti, og
hefir framleiðsla heilhveitibrauða úr innfluttu heilhveiti faRið
niður með öllu i þessum brauðgerðarhúsum.
Rúgbrauð úr nýju mjöli eru enn eigi bökuð i brauðgerðarhúsum,
vegna þess að mjölið er nokkru dýrara en innflutt mjöl. Hins-
vegar kaupa margar húsmæður mjölið, þrátt fyrir verðinismun,
og baka rúgbrauð heima.
Bökunardúnkar til bökunar á rúgbrauðum eru framleiddir og
seldir i tveimur stærðum í blikksmiðju Guðm. Breiðfjörð.
Hressingarheimili N.L.F.I. að Varmalandi starfaði frá 20. júni
til ágústloika. Aðsókn var meiri en hægt var að fullnægja. For-
stöðukona var ungfrú Benny Sigurðardóttir frá Hvammstanga. I
húsmæðraþættinum lýsir hún matseðli eina viku. Að öðru ieyti
verður frásögn af starfseminni, sem gekk mjög að óskum, að biða
næsta heftis.
Jónas Kristjánsson, forseti N.L.F.I., varð 82 ára hinn 20. sept.
Hann dvaldi að Varmalandi i sumar sem læknir heimilisins og flutti
jafnan erindi á laugardagskvöldum. Þá flutti hann tvö erindi
að lokinni guðsþjónustu í Stafholtskirkju. Ekki hélt hann alveg
kyrru fyrir, því að tvisvar gekk hann á Baulu (fór fótgangandi alla
leið frá Varmalandi og til baka niður að Hreðarvatni, við þriðja
mann), og einu sinni brá hann sér upp á Eiríksjöikul.
Líkamsæfingakerfi, sem tekur aðeins 5 minútur daglega og er
ætlað bæði konum og körlum á ölluin aldri, er nýlega komið út,
fjölritað, á vegum „Atlas“-útgáfunnar (sbr. augl. á bls. VIII).
Aðalfundur Náttúrulækningafélags Isafjarðar var haldinn 16.
marz 1052. Á starfsárinu voru haldnir 2 fundir, og á báðum voru
lesnir upp kaflar úr ritum NLFÍ. Á aðalfundinum var borið fram
íslenzkt te með snmrðu brauði og sýnd kvikmynd. Stjórnin var end-
urkosin. Enmfreniur var kosin nefnd til að athuga möguleika á að
koma upp jarðhúsi fyrir félagsmenn til geymslu garðávaxta. Félaga-
tal í árslok 55. (Framhald á bls. 95 neðst).