Heilsuvernd - 01.06.1953, Blaðsíða 11

Heilsuvernd - 01.06.1953, Blaðsíða 11
HEILSUVERND Brynleifur Tobíasson, yfirkennari: Eftirtektarverð niðurstaða af rannsókn á áhrifum öldrykkju. (Þýdd grein úr sænsku blaði). Því hefir oft verið neitað af ýmsum, að venjulegur sænskur pilsner í öðrum flokki hafi nokkur áhrif á manns- líkamann, en nú ihefir Leonard Goldberg, dósent í Stokk- hólmi, komizt að allt annarrri niðurstöðu í rannsóknum sínum þeim hinum miklu, er hann hefir gert fyrir milli- þinganefnd þá, er starfað hefir árum saman í Svíþjóð í áfengismálum. Sú rannsókn hefir meðal annars leitt í ljós, að ekki meira magn en tvær eða þrjár flöskur af pilsner hefir áhrif til hins verra á mikilvæga starfsemi tauga- kerfisins og að mjög lágur þúsundhluti (pro mille) áfeng- isinnihalds í blóðinu getur dregið verulega úr færni manna að aka bifreið. Rannsóknirnar voru gerðar í lyfjafræðideild læknahá- skólans í Stokkhólmi (Karolinska institutet) árin 1946— 1949, og var þar um að ræða bæði tilraunir í rannsóknar- stofu og verklegar tilraunir. 1 rannsóknum í efnarann- sóknarstofunni voru samtals 37 menn látnir drekka mis- munandi magn af öli, tvær til ellefu flöskur með mismun- andi áfengismagni (alkóhól-innihaldi). Fimm aðferðir voru

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.