Heilsuvernd - 01.06.1953, Qupperneq 33

Heilsuvernd - 01.06.1953, Qupperneq 33
HEILSUVERND 61 ER MÆNUVEIKI NÆRINGARSJÚKDÓMUR ? í 3. árgangi HEIRSUVERNDAR, 1. hefti, birtist ítarleg grein eftir ritstjórann um mænuveiki, varnir gegn henni og meðferS hennar. Þar er því haldið fram, aS enda þótt baktería eSa vírus kunni aS eiga einhverja sök á þessum sjúkdómi, sé aSalorsökin röng meðferS líkamans, og sérstaklega röng næring, sem veiki mótstöSuafl lians gegn sýklum og öSrum sýkingaröflum. Ýmsir erlendir læknar eru og þessarar skoSunar og hafa stutt hana sterkum rökum. Læknir einn i Ameríku, dr. B. Sandler, liefir frá árinu 1931 gert sérstakar athuganir og tilraunir varSandi áhrif mikillar sykurneyzlu á næmi manna fyrir sýklasjúkdómum, og fann hann náið samband þar á milli. í ágúst 1948 birtu öll dag- blöð í Norður-Karólínu, en þar er dr. Sandler húsettur, ítarlega frásögn af rannsóknum hans. M. a. hefir hann komizt að þeirri niðurstöðu, að rjómaís, kóladrykkir og aðrir gosdrykkir séu ein meginorsök mænuveiki. (Veg. N. D. 1952). LJÓT MEÐFERÐ Á APPELSlNUM. I svissneska tímaritinu Der Wendepunkt, sem gefið er út af lækni, syni hins heimsfræga náttúrulækningafrömuðs Bircher- Benners, sem lesendur HEILSUVERNDAR kannast við, er sagt frá því, hvernig farið er með appelsínurnar í Flórída í Banda- ríkjunum. Þær eru teknar grænar af trjánum, látnar liggja í ofni við hæfilegan hita í 3—4 daga, bleiktar og loks litaðar fallega gular. Þegar auk þess er vitað, að jarðvegurinn er þrautpíndur með tilbúnum áburði, sem skortir öll „míkró“-næringarefni og lífræn efni (humus), og bæði jarðvegur og ávaxtatré úðuð með eitur- efnum til varnar gegn skorkvikindum og sýklum, er engin furða, þótt mikil brög'S séu að því, að menn þar vestra fái útbrot i andlit af að drekka appelsínusafa, sem oft er búinn til í svonefndum „mix“-vélum, án þess að taka börkinn af ávextinum áður. Avextir frá Suðurlöndum munu ekki sæta þessum misþyrming- um öllum, þótt vafalaust sé þar notaður tilbúinn áburður og varnarlyf gegn sjúkdómum. (WMM 1953, 1). ræða, miðað við árabilið 1941—1945. Vísar hann harðlega á bug öllum grunsemdum um, að hann taki botnlanga úr sjúklingum sínum að ástæðulausu og fullyrðir, að allir hafi þeir raunverulega haft botnlangabólgu. Sjálfur hafi hann engra hagsmuna að gæta, þar sem hann sé á föstum laun- um og fái enga aukagreiðslu fyrir uppskurði.

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.