Heilsuvernd - 01.06.1953, Síða 18

Heilsuvernd - 01.06.1953, Síða 18
46 HEILSUVERND losa hann og gera áburðinn aðgengilegri fyrir plönt- urnar. 3. Hann stuðlar að því, að fram geti farið frumefnabreyt- ingar, þar eð jarðvegurinn er heilbrigðari með lífræn- um en ólífrænum áburði. Þetta hefir þau áhrif á plönt- urnar, að þær geta fremur sinnt því hlutverki, þar sem þess er þörf. í lífrænni ræktun er hinum ólífrænu áburðarsöltum hafnað, vegna þess að þau hafa ekki aðra kosti en að veita plöntunum næringu, en hafa 'hinsvegar spillandi og eyð- andi áhrif á huldugróður jarðvegsins og veiklandi áhrif á plönturnar. Varast ber að koma áburðinum langt niður, ekki lengra en 15 cm, vegna þess að hinar loftsælnu bakteríur drepast í meira dýpi. Þessvegna skyldi ekki plægja áburðinn niður, heldur herfa hann fremur grunnt. Safnhaugar. Þeir geta aðallega verið tvennskonar. 1 fyrsta lagi: safnhaugar, sem að mestu samanstanda af jurtaleifum, ásamt mold, sem þeim fylgir. 1 öðru lagi: safrihaugar búnir til úr lögum af hús- dýraáburði, hálmi eða heyi og mold. Lýsing á þvi, hvernig gera skuli slika hauga, hefir nokkrum sinnum áður komið í riti Jþessu, og síðast í 1. hefti síðasta árgangs eftir Þor- stein Kristjánsson, og sleppi ég henni því hér. Aðeins vil ég geta þess, að Elstrup Rasmussen, hinn danski ráðunaut- ur í lífrænum landbúnaði, ráðleggur að láta hitann í haugn- um ekki fara hærra en sem svarar líkamshita mannsins, vegna þess að ef að hitinn fer mun hærra, t. d. í 50° C, þá komi fram óæskilegar bakteríutegundir í haugnum og or- saki mikið köfnunarefnistap. Preparötin. I hinni lífrænu jarðrækt eru notuð nokkur hjálparmeðul, hin svokölluðu 'pre/paröt, en ég hefi ekki fundið neina heppilega íslenzka þýðingu á því orði. Tilraunir eiga að hafa verið gerðar í Danmörku með preparötin, og skýrsla hefir verið gefin út um árangur- inn, sem sýndi, að Iþau höfðu engin áhrif. Tilraunirnar átti

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.