Heilsuvernd - 01.06.1953, Qupperneq 15

Heilsuvernd - 01.06.1953, Qupperneq 15
HEILSUVERND 43 fengið far með? Viltu láta „kenndan“ kennara sitja í kennslustofu og kenna börnum iþínum? Viltu láta drukkinn lyfsala eða lyfjafræðing taka til meðul handa þér? — Nið- urstaðan af þessu öllu saman er bindindisstefnunni alveg í vil. Rannsókn Goldbergs dósents leiðir í ljós, að því aðeins er öryggi fyrir hendi, að ökumaðurinn eða annar, sem á að leysa af hendi eitthvað vandaverk, sé alger bindindis- maður. Hér duga ekki kenningar um hófdrykkju. Það verður jafnvel hver áfengisdýrkandi að viðurkenna, ef hann vill ekki gera sjálfan sig að flóni. Eina viðunanlega lausnin á áfengisvandamálinu er algert bindindi um áfenga drykki. En þeir, sem sí og æ hampa vínglösum, ágæta áfenga drykki og heimta, að þeir séu sem víðast á boðstólum, bera ekki sízt ábyrgð á slysunum, sem hljótast af áfengis- nautn. Það er áríðandi, að skólarnir séu hér vel á verði og brýni fyrir ungmennum þá hættu, er með svo mörgu móti stafar af áfengisnautn. Einmitt niðurstöður Goldbergs dósents eru vel fallnar til að vekja athygli unglinga á áfengishætt- unni. Skólarnir mega ekki bregðast skyldu sinni á þessum vettvangi. Ef þeir bregðast, er framtíðin á valdi drykkju- drabbsins. Það er alvörumálið mikla. (Or Morgunblaðinu 23. apríl 1952. Birt hér með leyfi B. T.). VERÐLAUNUM HEITIÐ. HEILSUVERND beinir þeim tilmælum til lesenda sinna, að þeir sendi stuttar frásagnir af reynslu sinni af áhrifum breyttra matar- og lifnaðarhátta á heilsu sína. Slikar frásagnir, sem hafa birzt í ritinu við og við frá byrjun, eru mjög lærdómsríkar og hafa þeim mun meira gildi, sem þær verða fleiri, einkum ef þær koma frá nafngreindu fólki. Til uppörvunar verða greiddar 100 krónur fyrir þá frásögn, sem að dómi ristjóra og ritnefndar er bezt hæf til birtingar i hvert af næstu heftum HEILSUVERNDAR, og fyrir næstbeztu frásögn verður úthlutað einni af útgáfubókum NLFÍ eftir eigin vali hlut- aðeiganda. Frásagnirnar verða birtar undir fullu nafni.

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.