Heilsuvernd - 01.06.1953, Síða 14

Heilsuvernd - 01.06.1953, Síða 14
42 HEILSUVERND neyzlu, samsvarar það 2—4 flöskum af 1,9%, 1,6—3,2 flöskum af 2,6% öli eða 1,3—2,6 flöskum af 3,2% öli. Þessar tölur tákna 'þá minnsta magn öls með mismunandi áfengisinnihaldi, sem hófdrykkjumaður þarf að neyta til þess að áfengisáhrifa gæti hjá honum. Tvær flöskur af öli. Mikilsverð starfsemi í taugakerfinu tekur að bila hjá hófdrykkjumönnunum, er þeir hafa drukkið 2—3 flöskur af 2,6—3,2% öli. Þessar niðurstöður af athugunum í rannsóknarstofunni koma heim við verklegu tilraunirnar. Við bifreiðaakstur teljast mörk þess að áhrifa taki að gæta til hins verra um 0,35—0,40 pro mille. Raunveruleg áfengisneyzla var í þessu tilfelli 3—4 flöskur af 3,2% öli. Við símritun eru mörkin um 0,20—0,25 pro mille. 1 báðum þessum tilfellum voru mennirnir, sem tilraunirnar voru gerðar á, vanir llóflegri neyzlu áfengis. (Þýtt úr ,,Reformatorn“). Ofanrituð grein sýnir, hve lítinn skammt af áfengum drykk þarf til iþess að trufla þann viðnámsþrátt og starfs- hæfni, sem hverjum manni, sem stjórnar vélknúnu tæki, er svo ómissandi. Karolinska institutet er trygging fyrir því, að rannsóknum þeim, er hér um ræðir, megi treysta. Nafn Goldbergs dósents er að góðu kunnugt meðal allra þeirra, er kynnzt hafa rannsóknum hans. Það er nú svo komið, að jafnvel áfengisdýrkendur eru áhugsamir að tryggja sig og aðra gegn þeim hættum, er stafa af þeim ökuþórum og flugstjórum, sem eru undir áhrifum áfengis við stýrið. Sannleikurinn er sá, að áfengir drykkir til neyzlu eru ósamrýmanlegir þeirri vélaöld, sem vér nú lifum á, nema oss sé öldungis sama um allt. Þú, sem prédikar hóf- drykkju, viltu hafa „hófdrukkinn“ ökumann við stjórn í bifreiðinni, sem þú ekur í? Þú, sem ert áfengisdýrkandi, viltu hafa „hófdrukkinn" flugstjóra í flugvélinni, sem þú ert í? — Svona getum vér haldið áfram. Vi'ltu hafa hóf- drukkinn eða sætkenndan formann í bátnum, sem þú hefir

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.