Heilsuvernd - 01.06.1953, Page 29

Heilsuvernd - 01.06.1953, Page 29
HEILSUVERND llm lækningu á iiðagigt. I síðasta hefti er ákaflega lærdómsrík lýsing íslenzkrar konu á viðureign hennar við einn kvalafyllsta og ægilegasta allra sjúkdóma, liðagigtina. Venjuleg læknisráð stoðuðu eigi, og sérfræðingar töldu hana ólæknandi. En eftir 40 ára þjáningar snýr hún inn á leiðir náttúrulækningastefn- unnar, að vísu vonlaus um árangur. Og á einu ári öðlast hún nýja heilsu, eftir að hafa varpað fyrir borð venjuleg- um lyfjum, þar á meðal fjörefnalyfjum. Frásögn þessi er síður en svo einsdæmi. Hér á landi gætu allmargir haft svipaða sögu að segja, enda þótt aðstaða sjúklinga hafi verið hin bágbornasta, bæði vegna skorts á hollri fæðu og möguleikum til að njóta heitra baða og viðeigandi læknisaðstoðar. Og frásögnin sýnir ljóst brýna nauðsyn þess, að starfrækt verði að staðaldri heilsuhæli, þar sem beitt verði náttúrlegum lækningaðferðum undir stjórn læknis, sem full skil kann á slíku. Erlendis er víða komin allmikil reynsla í þessum efnum. I Sviþjóð hefir um tveggja ára skeið verið starfrækt hress- ingarheimili á vegum félagsins „Allnordisk Folkhálsa", sem stofnað er af Are Waerland. Að beiðni félagsins hefir aldrei hafa verið hraustari. En ég hélt uppteknum lifnaðar- háttum næstu tvö árin, jafnframt því sem ég tók að stunda skautaiþrótt og listdans. Ég náði ágætum árangri í þeirri grein, fékk mörg verðlaun og tók að lokum kennarapróf í listdansi. Ég varð auðvitað að ieggja hart að mér, en ég varð aldrei var minnstu óþæginda frá hjartanu. Mér hefir þessi síðustu ár aldrei orðið misdægurt, og ég er ímynd hreysti og heilbrigði, þrunginn af lífsþrótti og starfsorku. Hinn ,,ólæknandi“ lokusjúkdómur er að fullu læknaður. (Rude Health, marz 1953).

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.